Morgunblaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
47
Þingflokkur Samtaka
um kvennalista:
Ný uppskrift
af fisk-
veiðikvóta
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
þingflokki Kvennalistans:
„Núgildandi fiskveiðistjómun hef-
ur ekki skilað tilætluðum árangri.
Heildarþorskaflinn hefur á hveiju
ári farið langt fram úr því sem fiski-
fræðingar hafa ráðlagt og stjómvöld
lagt til. Fiskiskipum hefur fjölgað
og ný skip eru í flestum tilvikum
stærri en þau sem lagt er. Sjávarafl-
inn er illa nýttur og miklu kastað á
glæ í orðsins fyllstu merkingu. Kjör
starfsfólks í sjávarútvegi em óviðun-
andi. Einstaklingar hafa hagnast um
hundruð milljóna á sölu kvóta sem
þeir fengu úthlutað gefins.
Kvennalistakonur telja því nauð-
synlegt að fara nýja leið í stjórnun
fiskveiða. Þær kynntu tillögur sínar
á fundi í ráðgjafanefnd um stjómun
fiskveiða 11. nóv. sl. og skömmu
síðar í þingmannanefnd um sama
mál. Ennfremur birtist grein í Morg-
unblaðinu 17. nóv. sl. þar sem tillög-
ur Kvennalistans voru kynntar.
Meginefni þeirra er eftirfarandi:
1. Árlegur heildarafli verði eftir
sem áður ákveðinn af sjávarútvegs-
ráðherra að fengnum tillögum
Hafrannsóknastofnunar.
2. 80% heildaraflans verði skipt
milli byggðarlaga með hliðsjón af
lönduðum afla síðustu 5 ára. Vilji
byggðarlag halda sínum hlut miðað
við fýrri ár beri því að greiða fyrir
það sem á vantar.
3. Gjald byggðarlaga renni í sér-
stakan sjóð, sem varið verði til
fræðslu í sjávarútvegi, rannsókna
tengdum sjávarútvegi og verðlauna
til handhafa aflamarks. fyrir sér-
staka frammistöðu í nýtingu og
meðferð sjávaraflans eða lofsverðan
aðbúnað starfsfólks.
4. Byggðarlög ráði því að mestu
sjálf, hvemig þau ráðstafa sínum
afla og hvert gjald þau taka fyrir,
en eðlilegt væri, að tekjur sveitarfé-
laga af framleigu kvótans yrðu
notaðar til þess að bæta aðstöðu í
höfnum og auka þjónustu við sjávar-
útveginn.
Markmiðið með þessum tillögum
er að halda heildarafla meira í skefj-
um, draga.úr ofstjóm og miðstýr-
ingu og taka tillit tii byggðasjónar-
miða, efla rannsóknir, hvetja til betri
nýtingar og bættrar meðferðar sjáv-
araflans og búa betur að starfsfólki
í sjávarútvegi."
V>
ítaJskur
mADMXJR
ítölsk rúmteppi frá (fejvoftlor
sérstæð, efnismikil, fislétt - draumateppi
Mikið úrval af teppum á hjónarúm og barnarúm.
Þú gengur að gæðunum vísum.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartúni 29 Simi 20640
&TDK
OGHAFÐUALLTÁ HREINU
VELDU
ÞITT NÚMER
VERÐ KR.
300.00
SÍMAHAPPDRÆTTI
STYRKTARFÉLAGS LAMAÐRA OG
miðinr.: ?????? FATLAÐRA 1987
Vinningar: 11 BIFREIÐAR SAMTALS AÐ VERÐMÆTI 5 MILLJÓNIR KRÓNA
1. vinningur VOLVO 244 '*
2. -6. vinningur NISSAN SUNNY SEDAN
7.-11. vinningur NISSAN MARCH GL.
5 IMIS5AN SUIVIMY 5
NtSSAN MICRA GL
DREGIÐ 24. DESEMBER1987
UPPLÝSINGAR í SÍMA 686690 OG Á SKRIFSTOFU FÉLAGSINS í SÍMA 849&9
DRÆTTI HEFUR ALDREI VERIÐ FRESTAÐ