Morgunblaðið - 09.12.1987, Page 61

Morgunblaðið - 09.12.1987, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987 61 r I vi Ý ÍSLENSKIR ATHAFNAMENNI Fyrsta bindi í þessum glæsilega flokki, Þeir settu svip á öldina, íslenskir stjórnmálamenn, hlaut afburöagóöar viötökur lesenda og gagnrýnenda en fyrsta bókin er nú á meira en 10.000 íslenskum heimilum. Hér er haldið áfram þar sem frá var horfið og hafiö aö segja frá íslenskum athafnamönnum. Ógleymanlegir þættir um nítján mikilvirka athafnamenn. Sumir brutu sér leiö úrfátækt.aörir voru bornir til auös og metorða. Framlag þeirra til mótunar íslensks nútímaþjóöfélags er ómælt. Athafnamennirnir sem sagt er frá í fyrsta bindi eru Ágúst Helgason, Ásgeir G. Ásgeirsson, Ásgeir Pétursson, Ásgeir G. Stefánsson, Einar Guöfinnsson, Hallgrímur Kristinsson, Hjalti Jónsson, Jóhannes Nordal, Jón Halldórsson, Knud Zimsen, Konráö Hjálmarsson, Magnús Sigurösson, Pétur A. Ólafsson, Siguröur Kristjánsson, Stefán Th. Jónsson, Sveinn Jónsson, Tryggvi Ófeigsson, Þórarinn B. Egilsson og Þórarinn E. Tulinius. Ritstjóri: Gils Guðmundsson. Johannes Mario Simmel ÖRLAGASAGA Einstæö og eftirminnileg saga manns sem leggur allt undir í örvæntingarfullri baráttu sinni viö óvægin örlög, bók sem oft hefur veriö líkt viö fræga ævisögu Martins Grey, Ég lifi, enda vekur hún sömu tilfinningar hjá lesendum. Mögnuö og átakanleg lýsing á grimmum örlögum og mannlegri þjáningu, saga sem grípur lesandann heljartökum. Saga manns sem er hrakinn út í ógæfuna af eigin ástríöum og örvæntingu, sjúkur á sál og líkama. /S. Phyllis A. Whitney ALDREI OF SEINT Kynngimögnuð og rómantísk saga um unga konu sem kemur til friösæls bæjar viö Kyrrahafsströnd til aö jafna sig eftir mestu hörmungar lífs síns, dauöa sonar síns og upplausn hjónabandsins sem fylgdi í kjölfariö. En fyrr en varir er hún oröin þátttakandi i hringiöu ýmissa atburöa sem þar hafa átt sér staö. Afdrifaríkir hlutir gerast, — ástir og óvænt atvik gefa lífinu tilgang á ný. — Bók sem beðið hefur verið meö eftirvæntingu, lesendum Phyllis A. Whitney fjölgar stööugt. Mary Stewart ÖRLAGASLÓÐIR Vanessa fer til Vínarborgar til aö reyna aö komast aö því hvaö eiginmaður hennar, Lewis, er eiginlega aö gera í Austurríki, þegar hann haföi sjálfur sagst vera aö fara til Svíþjóðar. Eöa var það kannski ekki hann, sem hún sá bregöa fyrir í frétta- myndinni af fjöileikahússbrunanum? Hana grunar ekki, aö leit hennar aö Lewis á eftir aö leiða hana á vit hættulegra glæpamanna .. . Þetta er rómantísk og spennandi saga um ástir og afbrot, sem hvergi gefur fyrri bókum þessa vinsæla höfundar eftir. IÐUNN BRÆÐRABORGARSTÍG 16 • SÍMI 28555

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.