Morgunblaðið - 09.12.1987, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
61
r
I
vi Ý
ÍSLENSKIR ATHAFNAMENNI
Fyrsta bindi í þessum glæsilega flokki,
Þeir settu svip á öldina, íslenskir
stjórnmálamenn, hlaut afburöagóöar
viötökur lesenda og gagnrýnenda en fyrsta
bókin er nú á meira en 10.000 íslenskum
heimilum. Hér er haldið áfram þar sem frá
var horfið og hafiö aö segja frá íslenskum
athafnamönnum. Ógleymanlegir þættir um
nítján mikilvirka athafnamenn. Sumir brutu
sér leiö úrfátækt.aörir voru bornir til auös og
metorða. Framlag þeirra til mótunar
íslensks nútímaþjóöfélags er ómælt.
Athafnamennirnir sem sagt er frá í fyrsta
bindi eru Ágúst Helgason, Ásgeir G.
Ásgeirsson, Ásgeir Pétursson, Ásgeir G.
Stefánsson, Einar Guöfinnsson, Hallgrímur
Kristinsson, Hjalti Jónsson, Jóhannes
Nordal, Jón Halldórsson, Knud Zimsen,
Konráö
Hjálmarsson, Magnús Sigurösson,
Pétur A. Ólafsson, Siguröur Kristjánsson,
Stefán Th. Jónsson, Sveinn Jónsson,
Tryggvi Ófeigsson, Þórarinn B. Egilsson og
Þórarinn E. Tulinius.
Ritstjóri:
Gils Guðmundsson.
Johannes Mario Simmel
ÖRLAGASAGA
Einstæö og eftirminnileg saga manns sem
leggur allt undir í örvæntingarfullri baráttu
sinni viö óvægin örlög, bók sem oft hefur
veriö líkt viö fræga ævisögu Martins Grey,
Ég lifi, enda vekur hún sömu tilfinningar
hjá lesendum.
Mögnuö og átakanleg lýsing á grimmum
örlögum og mannlegri þjáningu, saga sem
grípur lesandann heljartökum.
Saga manns sem er hrakinn út í ógæfuna
af eigin ástríöum og örvæntingu, sjúkur
á sál og líkama. /S.
Phyllis A. Whitney
ALDREI OF SEINT
Kynngimögnuð og rómantísk saga um
unga konu sem kemur til friösæls bæjar
viö Kyrrahafsströnd til aö jafna sig eftir
mestu hörmungar lífs síns, dauöa sonar
síns og upplausn hjónabandsins sem
fylgdi í kjölfariö. En fyrr en varir er hún
oröin þátttakandi i hringiöu ýmissa atburöa
sem þar hafa átt sér staö. Afdrifaríkir hlutir
gerast, — ástir og óvænt atvik gefa lífinu
tilgang á ný. — Bók sem beðið hefur verið
meö eftirvæntingu, lesendum Phyllis A.
Whitney fjölgar stööugt.
Mary Stewart
ÖRLAGASLÓÐIR
Vanessa fer til Vínarborgar til aö reyna aö
komast aö því hvaö eiginmaður hennar,
Lewis, er eiginlega aö gera í Austurríki,
þegar hann haföi sjálfur sagst vera aö fara
til Svíþjóðar. Eöa var það kannski ekki
hann, sem hún sá bregöa fyrir í frétta-
myndinni af fjöileikahússbrunanum? Hana
grunar ekki, aö leit hennar aö Lewis á eftir
aö leiða hana á vit hættulegra
glæpamanna .. . Þetta er rómantísk og
spennandi saga um ástir og afbrot, sem
hvergi gefur fyrri bókum þessa vinsæla
höfundar eftir.
IÐUNN BRÆÐRABORGARSTÍG 16 • SÍMI 28555