Morgunblaðið - 04.03.1988, Page 1

Morgunblaðið - 04.03.1988, Page 1
88 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 53. tbt. 76. árg. FOSTUDAGUR 4. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Afganistan: Stjórnin slakar á kröfum Genf, Reuter. FULLTRÚAR afgönsku lepp- stjórnarinnar í Kabúl gerðu heyr- inkunnugt í Genf i gær að stjórn- in væri reiðubúin til að fallast á að sovéska innrásarliðið í landinu hefði sig á brott á níu mánuðum, og yrði helmingur liðsaflans kall- aður heim á þriggja mánaða tíma- bili. Pakistanar, sem styðja afganskar frelsissveitir, vilja hins vegar að her- liðið verði kallað heim á átta mánuð- um og hafa hingað til bundið slíkt samkomulag því skilyrði að bráða- birgðastjóm hafí tekið við völdum í Afganistan. Hins vegar gaf for- maður pakistönsku sendinefndarinn- ar til kynna í gær að stjórnin færi tilbúin til að fallast á tilslakanir í þessu efni. Reuter Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra ræðir við Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, er leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins komu saman til hádegisverðar í Brussel í gær. Fundi leiðtoga ríkja Atlantshafsbandalagsins lokið: Atlantshafsbandalagið er sterkara eftir þennan fund segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra Brussel, frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgrinblaðsins. FUNDI leiðtoga sextán aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins lauk hér í Brussel um hádegisbilið í gær. Að fundinum loknum Iýstu leið- togaranir ánægju með niðurstöðu hans. Ronald Reagan Bandaríkja- forseti sagði á blaðamannafundi í höfuðstöðvum bandalagsins, að styrkur og samstaða þjóðanna væri mikil: Bandaríkjamenn myndu enn um langan aldur treysta eigið öryggi og annarra með varnarsam- starfi við Evrópuríkin. Eftir töluverðar umræður um orðalag á þeim kafla i yfirlýsingu fundarins sem fjallar um vopnabúnað náðist sam- komulag í fyrrakvöld, sem allir kváðust ánægðir með. Eftir fundinn sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra að viðræðurnar hefðu styrkt bandalagið og markað framtiðarstefnu á sama grunni og áður. Fundur leiðtoganna í gærmorgun var stuttur. í upphafi hans skýrði Carrington lávarður, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, frá því að í fyrrakvöld hefði tekist sam- komuíag um orðalag á lokayfirlýs- ingu leiðtoganna. Staðfestu leið- togamir þá niðurstöðu og sagði Bandaríkjaþing: Hafna stuðningi við kontra-liða Washington, Reuter. FULLTRÚADEILD Bandaríkja- þings felldi óvænt i gærkvöldi tillögu þingmanna Demókrata- flokksins um stuðning við kontra-skæruliða í Nicaragua. í fyrstu atkvæðagreiðslu um til- löguna var hún samþykkt með 215 atkvæðum gegn 210. í síðari um- ferð var hún hins vegar felld. Sam- kvæmt henni var gert ráð fyrir að 30,5 milljónum Bandaríkjadala yrði varið til aðstoðar við skæruliða og að upphæðinni yrði eingöngu varið til kaupa á hjálpargögnum. Þingið felldi nýverið tillögu Ron- alds Reagans Bandaríkjaforseta sem gerði ráð fyrir 36 milljóna dala aðstoð við skæruliða. Repú- blikanar lögðust gegn tillögu Demókrataflokksins og kváðust stjórnmálaskýrendur í gær telja að atkvæði þeirra svo og þeirra demó- krata sem eru algjörlega andvígir stuðningi við skæruliða hefðu ráðið úrslitum. George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á blaðamannafundi að umræðurnar um yfirlýsinguna hefðu enn sýnt lýðræðislega stjórn- arhætti bandalagsins í framkvæmd. Orðalagið sem um var deilt er í fimmtu grein yfirlýsingarinnar þar sem segir að varnarstefna banda- lagsins byggist á fælingu þar sem stuðst sé við kjarnorkuvopn og hefðbundinn vígbúnað „sem áfram verði af nýjustu gerð þar sem það er nauðsynlegt". Snerust umræð- umar þannig um endurnýjun kjarn- orkuvopna í Vestur-Evrópu. Vildi Margaret Thatcher, forsætisráð- hera Bretlands, halda fast í hin til- vitnuðu orð og lýsti hún mikilli ánægju með lokaniðurstöðuna á blaðamannafundi, sem boðað var til í gær. í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra um niðurstöður fundarins: „Það er mikilvægast að Atlantshafsbandalagið er sterkara eftir þennan fund en áður. Hann markaði stefnu fram í tímann á grundvélli þeirra meginsjónarmiða, sem mótað hafa samstarf ríkjanna til þessa. Allir lýstu eindregnum stuðningi við samninginn um upp- rætingu meðaldrægu eldflauganna og lögðu áherslu á nauðsyn þess að semja áfram af styrkleika um fækkun kjarnavopna og hefðbund- inna vopna. Almenn samstaða er um þá skoðun að Míkhaíl Gor- batsjov vilji í raun breyta stjórnar- háttum í Sovétríkjunum. Vilja menn nýta þetta tækifæri til að bæta samskiptin við Sovétríkin en telja jafnframt nauðsynlegt að orðum fylgi athafnir og líta t.d. til Afgan- istans í því efni.“ Sjá ennfremur lokayfirlýsingu leiðtogafundarins á bls. 10 og fréttir á bls. 26. Azerbajdzhan: Féllu 17 í Sumgajt? Moskvu, Reuter. SOVÉSKUR andófsmaður segir 17 manns hafa fallið í átökum miili Azerbajdzhana og Armena í borginni Sumgajt á mánudag. Svo virðist sem óeirðirnar séu að breiðast út því í gær bárust af því fréttir að hermenn héldu uppi eftirliti í borginni Kirovabad í sovétlýðveldinu Az- erbajdzhan. Eru þetta mestu þjóðemisróstur í Sovétríkjunum um áratuga skeið. Andófsmaðurinn Sergej Gróg- oryants sagði í Moskvu á miðviku- dag að 17 manns hefðu fallið í átök- unum í Sumgajt í Armeníu. Stjórn- völd í Sovétríkjunum hafa enn ekki viljað skýra frá því hversu margir týndu lífí en Gennadíj Gerasímov, talsmaður sovéska utanríkisráðu- neytisins, hefur staðfest að „nokkr- ir“ hafi fallið. Gerasímov sagði á blaðamannafundi í Moskvu í gær að upphafsmenn átakanna hefðu verið handteknir en vildi ekki láta uppi hversu margir þeir væru. Átök- in brutust út síðastliðinn sunnudag vegna ágreinings Azerbajdzhana og Armena um yfirráð yfir Nag- omo-Karabakh-héraði sem tilheyrir Azerbajdzhan. Sovéskur embættismaður í borg- inni Kirovabad sagði í samtali við Reuíers-fréttastofuna í gær að „hópar ungra ofbeldisseggja" hefðu efnt til mótmæla í borginni á mánu- dag. Kirovabad er um 275 kíló- metra vestur af Sumgajt. Sagði embættismaðurinn að hermenn og sjálfboðaliðar úr röðum óbreyttra borgara héldu uppi eftirliti í borg- inni og að ekki hefði komið til frek- ari mótmæla. Bangladesh: Þingkosningamar eru blóði drifnar Dhaka, frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgfunblaðsins, og Reuter. ÞRETTÁN manns féllu í gær er til átaka kom í Bangladesh vegna kosninga í landinu að sögn heimildarmanna innan lögreglu. Aðstoðarforsætisráðherra landsins segir hins vegar að fimm hafi fallið i átökum fylgis- manna stjórnar Eshrads forseta og stjórnarandstæðinga. Eshrad forseti virtist rólegur og sagði hann í samtali við blaðamann Morgunblaðsins er hann mætti á kjörstað í gær að hann vonaði að kosningamar fæm friðsamlega fram. Loka þurfti 170 kjörstöðum vegna átaka og sprengingar hafa kveðið við linnulítið í Dhaka undan- farinn sólarhring. Búist er við því að flokkur forset- ans fari með sigur af hólmi í kosn- ingunum en stjómarandstæðingar hundsuðu þær að mestu og réðust þess í stað gegn þeim sem neyttu atkvæðisréttar síns. Sjá ennfremur „Stöðugar sprengingar . . . á bls. 27. i mmmm j Reuter LögTeglumenn flytja kjörgögn á brott í Dhaka, höfuðborg Bangladesh.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.