Morgunblaðið - 04.03.1988, Side 16

Morgunblaðið - 04.03.1988, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 Kaupleiguíbúðir - nýr valkostur í húsnæðismálum eftirJóhönnu Sigurð- ardóttur, félagsmála- ráðherra Með því frumvarpi. sem fyrir Al- þingi liggur um kaupleiguíbúðir er lagt til að opna nýja leið í húsnæðis- málum landsmanna. Kaupleigu- íbúðir eru íbúðir byggðar eða keypt- ar á þéim forsendum að íbúar eigi kost á að velja um leigu eða kaup á íbúðunum með jöfnum mánaðar- legum greiðslum. Valið stendur um þrjá kosti: — Leiga á íbúð með kauprétti. — Leiga með kaupum á eignarhlut í íbúð sem tryggir fólki öruggan afnotarétt á íbúðinni. — Kaup á íbúð. Þar sem áhersla er lögð á val fólksins í þessum efnum er fram- kvæmdaaðila óheimilt að ákveða fyrirfram hvort íbúð verði leigð eða seld. Í frumvarpinu er lagt til að kaup- leiguíbúð verði með tvennum hætti: Félagslegar kaupleiguíbúðir og almennar kaupleiguíbúðir. Félagslegar kaupleiguíbúðir verða eingöngu á vegum sveitarfé- laga eða félagasamtaka sem þurfa að byggja kaupleiguíbúðir fyrir lág- launafólk eða aðra þá sem af félags- legum ástæðum þurfa aðstoð við húsnæðisöflun: Sá sem fær úthlutað félagslegri kaupleiguíbúð getur valið um að gera kaupsamning strax í upphafi eða gera leigusamning með kaup- rétti. Samkvæmt frumvarpinu hef- ur leigjandii a.m.k. 5 ára umhugs- unarfrest varðandi kaup á íbúðinni. Leiga í félagslegri kaupleiguíbúð greiðist mánaðarlega og miðast við afborgun og vexti af láni Bygging- arsjóðs ríkisins auk vaxtakostnaðar af 15% framlagi framkvæmdaaðila að viðbættum almennum rekstrar- kostnaði. Miðað við 4 milljóna króna meðalíbúð yrði mánaðargreiðslan um 10 þúsund krónur, en ef viðkom- andi óskaði að kaupa íbúðina þá breyttist mánaðargreiðslan í rúmar 12 þúsund krónur. Til viðbótar þessu kæmi síðan almennur rekstr- arkostnaður af íbúðinni. Með þessu fyrirkomulagi þarf viðkomandi ekki að taka nein lán heldur einungis greiða framkvæmdaaðila (sveitar- félagi eða félagasamtökum) fasta mánaðargreiðslu. Almennar kaupleiguíbúðir Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sveitarfélög, félagasamtök eða fyrirtæki, sem þurfa af sérstökum ástæðum að auka framboð íbúðar- húsnæðis, eigi kost á láni úr Bygg- ingarsjóði ríkisins til að kaupa eða byggja almennar kaupleiguíbúðir. )Jnnið er allt að 85% af kostnaðar- verði íbúðar. Með sama hætti og í félagslega kerfínu á fólk sem fær úthlutað almennum kaupleiguíbúðum kost á að velja um leigu eða kaup. Því yrði með lögum tryggður leigurétt- ur í 5 ár en framkvæmdaaðilinn getur ef hann svo kýs framlengt leiguna. A þeim tíma eða að honum loknum er síðan hægt að festa kaup á íbúðinni. Hér þarf viðkomandi ekki fremur en í félagslegum kaupleiguíbúðum að taka nein lán heldur leggur ein- ungis fram mánaðarlegar greiðslur. Mánaðarlegar leigugreiðslur al- rnennra kaupleiguíbúða miðað við 4 milljóna króna meðalíbúð yrði um 16 þúsund krónur. Þegar íbúðin er keypt er gert ráð fyrir að kaupandi yfirtaki strax 15% lán úr Bygging- arsjóði ríkisins sem hvílir á íbúðinní og greiði það upp á allt að 5 árum með sömu vöxtum og eru á skulda- bréfum lífeyrissjóða. Ifyrstu 5 árin yrðu mánaðarlegar greiðslur um 15 þúsund krónur vegna 70% láns úr byggingarsjóði ríkisins og endur- greiðslu framlags framkvæmdaað- ila auk um 12 þúsund króna vegna endurgreiðslu 15% viðbótarláns úr Byggingarsjóði ríkisins eða samtals um 27 þúsund króriúr. Að liðnum fyrstu fímm árum kaupleigusamn- ingsins eða þegar 15% lánið er end- urgreitt þá munu mánaðarlegar greiðslur léttast og fara niður í rúmlega 15 þúsund á mánuði. í þessu sambandi er rétt að vekja athygli á aðstoð skattakérfisins með sérstökum húsnæðisbótum í 6 ár til þeirra sem eru að eignast sína fyrstu íbúð. Uthlutun á almennum kaup- leiguíbúðum er ekki háð tekjumörk- um eins og gildir um félagslegar kaupleiguíbúðir og íbúðir í verka- mannabústöðum. Framkvæmdaað- ilum er gert skylt að auglýsa þær reglur sem gilda hverju sinni um ráðstöfun íbúðanna. Hins vegar er gert ráð fyrir því að til grundvallar afgreiðslu húsnæðismálastjórnar á láni til almennra kaupleiguíbúða liggi fyrir upplýsingar um sérstaka þörf á að auka framboð húsnæðis í sveitarfélaginu. Staðan í hús- næðismálum á landsbyggðinni veg- ur auðvitað þungt í þessu sambandi. Sala á hlutareign með af- notarétti af íbúðinni Enn einn kostur er í kaupleigu- kerfinu, en tilgangur kaupleigu- kerfís er að auka sveigjanleika hús- næðiskerfisins. Þess vegna er í frumvarpinu gert ráð fyrir að í al- menna kaupleigukerfinu verði opn- aður nýr möguleiki fyrir þá aðila sem vilja bjóða kaupleiguíbúðir á þeim forsendum að leigjendur kaupi skuldabréf framkvæmdaaðila og Jóhanna Sigurðardóttir, f élagsmálaráðherra eignist 30% hluta í íbúðinni. Þegar um er að ræða aldraða eða öryrkja er heimilt að selja leigjendum 15% hluta í eigninni en almenna reglan er 30% hlutareign. Hlutareign með þessum hætti tryggir afnotarétt af íbúðinni svo lengi sem viðkomandi óskar. Gert er ráð fyrir að þessi leið verði einungis bundin við al- mennar kaupleiguíbúðir. Leiguíbúðir með hlutareign henta sérstaklega vel fyrir fjármögnun og rekstur íbúða fyrir aldraða og ör- yrkja. Með þessu fyrirkomulagi verða íbúðarskiptin auðveldari fyrir t.d. aldraða sem vilja laga hús- næðismál sín að breyttum forsend- um á efri árum og komast í sérstak- ar íbúðir fyrir aldraða. Hlutareign gefur möguleika á þátttöku við stjómun og rekstur leiguíbúðanna. Þegar framkvæmdaaðili lætur leigjanda almenna kaupleiguíbúð í té með sölu á hlutareign er leigu- gjaldið afborganir af láni úr Bygg- ingarsjóði rkisins auk rekstrar- kostnaðar. Þegar leigjandi hættir afnotum af íbúðinni fær hann fram- lag sitt endurgreitt með verðbótum en án vaxta. Framkvæmdaaðilar Eins og áður sagði geta fram- kvæmdaaðilar verið sveitarfélög og félagasamtök að því er varðar fé- lagslegar íbúðir og sveitarfélög, félagasamtök eða fyrirtæki að því er varðar almennar kaupleiguíbúð- ir. Þessir framkvæmdaaðilar fengju 85% af kostnaðarverði íbúðar lánað úr byggingarsjóðunum hvort heldur sem um væri að ræða almennar kaupleiguíbúðir eða félagslegar. 15% framlag verða viðkomandi að leggja fram sjálf en bent er á þann möguleika í frumvarpinu að fram- kvæmdaaðili geti íjármagnað fram- lag sitt með sölu skuldabréfa t.d. til staðbundinn lífeyrissjóða. Með þeim hætti getur lífeyrissjóður heima í héraði stuðlað að nauðsyn- legu auknu framboði íbúðarhús- næðis og um leið aukið hlut byggð- arlagsins í útlánum húsnæðislána- kerfisins. Þetta ætti því að vera vænlegur kostur bæði fyrir lífeyris- sjóðina og sveitarfélögin, en miðað við að lánað yrði til 300 kaupleigu- íbúða á ári hvetju úr lífeyrissjóðun- um, þ.e.a.s. 15% framlag fram- kvæmdaaðilans, yrði þó einungis um að ræða 1% af rúmlega áætluðu ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna. Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna er áætlað um 13,6 milljarðar króna. Miðað við að lífeyrissjóðirnir fjár- mögnuðu 15% hlut sveitarfélaganna af 300 kaupleiguíbúðum á hveiju ári með skuldabréfakaupum væri um að ræða um 136 millj. króna. Húsnæðisvandi á landsbyggðinni Víða á landsbyggðinni er mikill íbúðaskortur og byggjngafram- kvæmdir í lágmarki þrátt fyrir góða afkomu og mikla eftirspurn eftir vinnuafli. Augljóst er að fjárfesting í íbúðarhúsnæði á landsbyggðinni getur reynst einstaklingum áhættu- söm ef langtímadvöl á staðnum er ekki fyrirhuguð eða augljós. Enda hafa einstaklingar á landsbyggðinni sótt minna í nýja húsnæðislánakerf- ið en þeir sem búa í þéttbýlinu við Faxaflóa. Biðröðin er orðin löng og því ljóst að hlutur landsbyggðarinn- ar í húsnæðiskerfinu verður helst leystur nú með sérstökum aðgerð- um í þágu landsbyggðarinnar. Kaupleiguíbúðir henta því vel við þær aðstæður sem eru á lands- byggðinni. Sveitarfélög og sam- starfsaðilar þeirra geta með þessu fyrirkomulagi boðið fólki sem er óráðið um framtíðarbúsetu leigu- íbúðir sem íbúum gefst kostur á að eignast ef ljóst er að viðkomandi ætlar að setjast að í sveitarfélaginu. Af því sem hér hefur verið lýst er ljóst að ef vilji stjórnvalda stend- ur til þess og gott samstarf tekst við þá aðila sem hlut eiga að máli eins og sveitarfélögin og félaga- samtök þá gætu kaupleiguíbúðir gjörbreytt ástandinu í húsnæðis- málum landsmanna. Fimmtíu ára skátastarf ♦ Skátar í Eyjum halda upp á afmæli Morgunblaðid/Albert Kcmp A myndinni sést að steinarnir sem hrunið hafa á veginn gera hann ógreiðfæran og erfiðan yfirferðar. Suðurfjarðavegur: Tllfær sökum grjóthruns Fáskrúðsfirði. Á veginum á milli Fáskrúðsfjarð- ar og Reyðarfjarðar, sem í dag- legu tali er nefndur Suðurfjarða- vegur, eru svonefndar Staðar- skriður og Vattarnesskriður. Oft kemur það fyrir þegar er frost á nóttunni og sólbráð á daginn, að grjót hrapar niður á veg. Vegfarendum finnst það all- merkilegt að það skuli svo dögum skiptir vera íátið liggja á vegin- um án þess að það sé hreinsað. Eftirlitsmaður er með þessum vegi er staðsettur suður á Breið- dalsvík og Vegagerð ríkisins er með höfuðstöðvar á Reyðarfirði. Oft þyrfti ekki nema einn mann á bíl með góða garðhrífu til þess að hreinsa veginn þannig að fólki staf- aði ekki hætta af að aka hann. - Albert Skátafélagið Faxi í Vest- mannaeyjum varð 50 ára 22. febrúar. Af því tilefni var opnuð sýning i skátaheimilinu á munum og minjum úr 50 ára skátastarfi, gefið var út myndarlegt afmælis- rit og vikulöng dagskrá hófst. Afmælisfagnaður var haldinn á laugardag þar sem margir eldri skátar úr Eyjum og ofan af fastalandinu rifjuðu upp gamlar minningar, tóku lagið og færðu Faxa margar góðar gjafir. Skátahöfðinginn Ágúst Þor- steinsson sæmdi nokkra yngri og eldri skáta heiðursmerkjum fyrir vel unnin störf í þágu hreyfing- arinnar. Eftir nokkra lægð er skátastarf nú í öflugri sókn í Eyjum. Dagskrá skátavikunnar hófst síðastliðinn laugardag með opnun sýningar á ýmsum munum og myndum, gömlum flokksbókum, nýjum og gömlum útilegubúnaði og gömlum búningum. Þótt mikið af hlutum tengdum starfi og sögu Faxa hafi farið í glatkistuna í gos- inu, þá kom það mörgum á óvart hve miklu hafði tekist að safna saman. Afmælisfagnaður Afmælisfagnaður Faxa var svo haldinn á laugardagskvöld í Akog- es-húsinu. Auk skáta úr Eyjum voru margir góðir gestir mættir frá íslandi svo sem skátahöfðinginn Halldór íngi, nokkrir meðlimir skátaflokksins Útlaga, en það er flokkur brottfluttra skáta sem starfað hefur í Reykjavík, auk ann- arra ágætra gesta. I tilefni af af- mælinu sæmdi skátahöfðingi nokkra skáta starfsmerkjum og heiðursmerkjum. Friðrik Jesson, fyrsti félagsforingi Faxa, sem staddur var í hófinu, var sæmdur Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Páll Zophoníasson félagsforingi ásamt nokkrum krökkum úr skátafé- laginu. gullmerki Bandalags íslenskra skáta og Páll Zophoníasson núver- andi félagsforingi, var bæði sæmd- ur gullmerki og Þórshamrinum. Faxa bárust margar góðar gjafir og hlý orð í tilefni afmælisins. Skátastarf í Eyjum Á þessum fimmtíu árum Faxa hefur húsnæðisskortur og ör skipti á húsnæði gengið eins og rauður þráður í gegnum starf félagsins. Eftir gos rættist fyrst verulega úr þeim vandræðum þegar Faxi festi kaup á íbúðarhúsi undir starfsemi sína. Kaup á því húsi voru fjár- mögnuð með höfðinglegum gjöfum jafnt innanlandsfrá sem utan. Að mörgu leyti hentaði þó íbúðar- húsnæði ekki starfsemi félagsins og fyrir nokkrum árum var hús félagsins selt og ráðist í byggingu nýs húss er hentaði starfseminni betur. N.ýja húsið sem er eitt glæsi- iegasta skátaheimili á landinu var byggt > samvinnu við hjálparsveit skáta. Eins og í öðru félagsstarfi liafa skipst á skin og skúrir í starfi félagsins. Skátastarf á landinu er nú í uppsveiflu eftir nokkura lægð. Með tilkomu nýs skátaheimilis og kröftugri stjórn félagsforingjans, Páls Zophoníassonar, er skátastarf nú í öruggri uppsveiflu í Eyjum og eru nú á þriðja hundrað skáta starf- andi í félaginu. — Bjarni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.