Morgunblaðið - 22.03.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
Árekstur við
Brtmnárbrú
í Hvalfirði
NOKKUÐ harður árekstur varð
á sunnudag í Hvalfirði. Þar
skullu saman jeppi og fólks-
bifreið og skemmdust töluvert.
Ökumenn og farþegar meiddust
ekki.
Áreksturinn varð um kl. 15 við
brúna yfir Brunná. Ökumennimir
misreiknuðu sig eitthvað þegar
kom að brúnni og ætluðu sér báð-
ir yfír samtímis. Bifreiðamar
stöðvuðu alla umferð um veginn í
nærri klukkustund, en nokkrir
jeppar komust þó yfír ána fyrir
neðan brú. Þar sem fólksbifreiðin
var mikið skemmd og óökufær var
ákveðið að kalla til lögreglu og
eftir að hún kom á vettvang gekk
greiðlega að ganga frá málum.
Árekstur bifreiðanna var harður og er fólksbifreiðin óökufær.
Morgunblaðið/Einar Falur
Forseta-
kjör ákveð-
ið 25. júní
KJÖR forseta íslands skal fara
fram laugardaginn 25. júní næst-
komandi. Framboðum til forseta-
kjörs skal skila í hendur dóms-
málaráðuneytinu, ásamt sam-
þykki forsetaefnis, nægilegri
tölu meðmælenda og vottorðum
yfirkjörsfjórna um að þeir séu á
kjörskrá, eigi síðar en fimm vik-
um fyrir kjördag.
í frétt frá forsætisráðuneytinu
segir, að forsetaefni skuli hafa
meðmæli minnst 1500 kosninga-
bærra manna, en mest 3000.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, hefur lýst því yfír að hún
gefi kost á sér til endurkjörs. Komi
ekki fram fleiri framboð telst hún
sjálfkjörin. Vigdís Finnbogadóttir
hefur verið forseti í tvö kjörtímabil
eða 8 ár.
VEÐURHORFUR í DAG, 22.3.88
YFIRLIT í gær: Norðaustur af landinu er 1.017 mb. hæð og iægðar-
drag skammt suður af landinu, en um 500 km suðsuðaustur af
Hvarfi er 955 mb. viðáttumikil lægö sem þokast austnorðaustur.
Heldur mun hlýna í veöri, einkum sunnan- og suðaustanlands.
SPÁ: í dag lítur út fyrir austan stinningskalda syðst á landinu en
heldur hægari austlæga eða norðaustlæga átt annars staðar. Dálít-
il slydda verður á Suð-Austurlandi og Austfjörðum og rigning vest-
ur með suðurströndinni en nokkuð bjart veður norðvestan til á
landinu. Frostlaust um mestallt land.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Austlæg átt og yfirleitt frostlaust. Slydda
eða rigning víða um land, einkum sunnanlands og austan.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Snýst smám saman til noröaustanáttar
með snjókomu eða slyddu, einkum um norðanvert landið. Aftur
heldur kólnandi.
W VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hhi veður Akureyri 44 léttskýjað Reykjavík 1 alskýjað
Bergen 6 skýjað
Helsinki 1 þokumóða
Jan Mayen +5 léttskýjað
Kaupmannah. 3 skýjað
Narssarssuaq 8 skýjað
Nuuk +3 heiðskírt
Osló i snjókoma
Stokkhólmur 3 hálfskýjað
Þórshöfn 4 súld
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 10 súld
Aþena vantar
Barcelona 15 þokumóða
Berlln 3 þokumóða
Chicago +4 léttskýjað
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt 13 skýjað
Glasgow 11 skýjað
Hamborg 8 alskýjað
Las Palmas vantar
London 11 skýjað
Los Angeles 13 léttskýjað
Lúxemborg 9 skýjað
Madrfd 17 skýjað
Malaga 23 alskýjað
Mallorca 20 skýjað
Montreal +18 skýjað
NewYork +6 heiðsklrt
Parfs 10 alskýjað
Róm 16 skýjað
Vín 10 rignlng
Washington +3 snjókoma
Winnipeg +8 alskýjað
Valenda 25 alskýjað
Þýskalandsmarkaður:
Lágt fiskverð
FISKVERÐ var lágt á markaðn-
um í Cuxhaven S gær og óttast
menn að verðið verði jafnvel enn
lægra undir helgina vegna sein-
kunar gámaskips til Þýzkalands.
Vilhjálmur Vilhjálmsson starfs-
maður LÍÚ segir að verðfall hafi
oft hlotizt af því, að ekki sé hægt
að treysta á áætlanir skipafélag-
anna. Gámarnir hafi þá komið
ofan S bókaða daga skipanna i
stað þess að ná á markaðinn á
áður ákveðnum dögum.
Ýmir HF seldi f gær 190 tonn,
mest karfa í Cuxhaven. Heildarverð
var 9,5_ milljónir króna, meðalverð
49,80. Á mánudag í síðustu viku var
meðalverð upp úr öðru íslensku skipi
68,59 og á föstudaginn 54,12. Nú
er að styttast í páska, sem er mikið
fiskneyzlutímabil og hefur verð á
ferskum físki þá oft verið hátt. Menn
óttast hins vegar að svo gæti farið
nú að verð verði lágt. Tæp 400 tonn
af físki í gámum eru á leiðinni utan
og verða þau ekki komin á markað
fyrr en á föstudag, en fímmtudagur
hafði verið ætlaður sem söludagur
fyrir gámafiskinn. Samkvæmt aug-
lýstri áætlun Eimskips, eiga gámam-
ir á ná á markað á þriðjudagsmorgun
í viku hverri. Vilhjálmur Vilhjálms-
son sagði, að oft hefði verið mis-
brestur á áætlunum skipafélaganna
og hefði það í mörgum tilfellum vald-
ið verðfalli. Til að tryggja að sala
úr þeim og skipunum rækist ekki á
á þessum viðkvæma tíma, hefði ver-
ið ákveðið að reikna með tveggja
sólarhringa seinkun og selja úr gám-
unum á fimmtudag. Nú væri seink-
unin hins vegar enn meiri og engir
gámar kæmu fyrr en á föstudag.
Á morgun selur Snorri Sturluson
í Þýskalandi, Ögri á miðvikudag og
síðan verður skip á hveijum degi
fram að páskum að undanskildum
fímmtudeginum. Markaðurinn verð-
ur opinn um helgina og gámamir
seldir á föstudag ofan í bókaðan sölu-
dag Snæfugls SU þar sem allir dag-
ar eru fráteknir fyrir skipin nema
fimmtudagurinn. Vilhjálmur sagði,
að hefði seinkunin verið ljós fyrr,
hefði verið hægt að flýta Snæfugli,
láta hann selja á fimmtudag og selja
úr gámunum á föstudag. Því miður
hefði svo ekki farið og því hætta á
verðfalli vegna röskunar á áður
ákveðnu skipulagi.
Dagnr vonar sett
upp í Los Angeles
LEIKRIT Birgis Sigurðssonar, Dagur vonar, verður tekið til
sýninga í Los Angeles Theater Center á næsta leikári. Birgir
er nýlega kominn heim frá Bandaríkjunum ásamt Stefáni Bald-
urssyni, leikstjóra verksins hér, þar sem þeir settu verkið upp
fyrir leiklestur. Auk þess voru þijú bandarísk leikrit leiklesin
en Dagur vonar var eina leikritið sem öll leikhússtjórnin var
sammála um að setja upp.
Að sögn Birgis var leiklesturinn
liður í hátíð sem leikhúsið stendur
fyrir á hveiju ári. Þeir félagar
fóru út í lok febrúar og dvöldu í
hálfan mánuð við uppsetningu
leiklestursins en sá háttur mun
vera mjög tíðkaður í Bandaríkjun-
um.
Þá eru leikarar staðsettir á
sviðinu og verkið leikið í grófum
dráttum, með handritið í höndum.
Tjöld og lýsing eru ekki til staðar
heldur reyna menn að gera sér
nokkum veginn grein fyrir hvem-
ig leikritið mun verða í uppfærslu.
Fleiri verk eru tekin til leiklestr-
ar en sett em upp. Sagði Birgir
að verkinu hefði verið vel tekið
og á föstudag hefði hann fengið
staðfestingu á því að það yrði
tekið til sýninga í leikhúsinu sem
er næststærsta leikhús í Los
Angeies. Það hefur lagt sig fram
um að kynna ný verk, einkum
bandarísk og hefur orð á sér fyr-
ir að vera leikhúsið þar sem hlut-
imir gerist. „Bandaríkjamenn em
ákaflega sjálfhverfír í sínu leiklist-
arlífí, svo að það er mjög skemmti-
legt að þeir ætli að taka Dag
vonar til sýninga," sagði Birgir.
„Eftir kynni mín af þessu leikhúsi
er ég mjög ánægður, þetta er
spennandi og þama er fólk sem
leggur sig raunveralega fram um
að gera hlutina vel. Vinnubrögð
bandarískra leikara em mjög góð
enda búa þeir við mikla sam-
keppni og verða því að standa sig
vel. Þama leika margir kvik-
myndaleikarar, t.d. lék leikkona
úr Dallas-þáttunum, Pricilla Po-
inter, Guðnýju í leiklestrinum."
Ekki liggur fyrir hvenær á ár-
inu leikritið verður sett upp eða
hvaða leikarar munu leika í upp-
færslunni. Verkið þýddi Jill Bro-
oke.