Morgunblaðið - 22.03.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
19
og fleira, þannig af ef vel tekst til
á þetta að geta orðið hið besta fyrir-
tæki.“
Hvað varðar atvinnulífíð hér á
Seyðisfírði, sagði Þorvaldur, að það
væri ekki hægt að segja annað en
að það hefði verið mjög gott á
síðasta ári. „En þvf er ekki að leyna
að nú á árinu 1988 þá leynast viss-
ar hættur hér og þá hef ég aðallega
í huga jafn stóra atvinnugrein og
frystiiðnaðurinn er hér á Seyðis-
fírði. Frystihúsin eiga í miklum erf-
iðleikum og það er mín skoðun að
stjómvöld verði að koma meðsér-
stakar aðgerðir tii þess að aðstoða
þessa atvinnugrein. Það er alveg
ljóst að frystiiðnaðurinn hefur verið
rekinn með miklum halla og það
er ekki hægt að ætlast til þess að
þeir, sem eiga og reka þessi fyrir-
tæki haldi þessu áfram öllu lengur.
En varðandi útgerðina þá virðist
hún standa nokkuð vel og það má
kannski segja að það sé okkar
stærsti hausverkur hér á Seyðisfírði
að við skulum ekki eiga fleiri stór
skip. Það er alveg nauðsynlegt að
huga að því á hvem hátt við getum
stækkað skipastólinn hér í þessu
bæjarfélagi. Loðnubræðslumar
hafa haft nóg hráefni það sem af
er þessu ári og það er margt sem
að bendir til þess að afkoma loðnu-
bræðslanna nú í ár verði mun betri
en á árinu 1987.“
Varðandi vélsmiðjumar sagði
Þorvaldur það vera ljóst að þar
mundu verða nokkrir erfiðleikar ef
þeim tekst ekki að skapa sér verk-
efni. „Ef við tökum til dæmis Vél-
smiðju Seyðisfjarðar, sem nú er að
smíða sína síðustu báta af þessum
9,9 tonna bátum. Það eru ijórir
samningar í gangi og þegar þeim
er lokið þá hljóta að verða framund-
an vissir erfíðleikar svo fremi að
ekki takist að skapa trygg verk-
efni. Vélsmiðjan Stál hefur verið í
sinni álkerjasmíði, en það verður
að segjast eins og er að þau eru
mjög erfið f smíðum á þessu verði,
sem þeir hafa verið að smíða þau
á. Þess vegna held ég að málmiðn-
aðurinn hér í bænum þurfí virkilega
á því að halda £ið geta tekið stærri
verkefni að sér ásamt því að sinna
sfðan skipastólnum og smærri verk-
efnum hér í bænum og það verður
hægt með tilkomu dráttarbrautar-
innar. Nú ég hef trú á því að ef
tekst að leysa vanda fiskvinnslunn-
ar í landi og gera henni kleift að
halda úti sinni starfsemi þá sé at-
vinnulíf hér á Seyðisfírði tryggt.
í janúarmánuði sfðastliðnum út-
hlutuðum við tveimur byggingar-
lóðum, sem eru fyrstu lóðir sem við
höfum úthiutað í þijú ár. Önnur er
undir fyrirtæki og hin undir íbúðar-
hús. Þetta er mjög ánægjulegt.
Sfðan ætlar Seyðisfjarðarbær að
hefja byggingar á þriggja íbúða
parhúsi við Austurveg nú í vor
þannig að við skulum bara vona
að íbúðarbyggingar séu að hefjast
hér á Seyðisfirði eins og á gullaldar-
árunum og þá hlýtur framtíðin að
vera björt hér,“ sagði Þorvaldur
Jóhannsson að lokum.
— Garðar Rúnar
*T* • • / X
lvo goð. . .
Sjónvarpstæki frá ITT
Vestur-pýsk gæðatæki
fyrir þá sem gera kröfur
ITT leiðandi á sviði Digitaltækni
22” ITT DIGiVISION STERIÖ
16” ITT IDEAL COLOR OSCAR
• 22” ”High-Focus ITT” myndlampi
• Þráðlaus fjarstýring
• Teletextmóttakari
• 99 rásir og 30 minni
• Sjálfvirkur stöðvarleitari meö fínstillingu
• Sterió (eða 2 hljóðrásamóttaka
"bilingualsound”)
• Nýjasta Digitaltækni
• 40 watta HiFi magnari
• Sér Bassa og Diskant stilling
• "Hypersonic spatial stereo"
• Eurotengi (SCART) fyrir video, tölvur,
gerfihnattamóttákara
• RGB tengi
• Video inn-tengi, Video út-tengi
• HiFi inn-tengi, HiFi út-tengi (mögulegt að
nota tækið sem fjarstýrðan HiFi magnara)
• Auka hátalaraútgangur
• Tengi fyrir 2 heyrnatæki
• 16" ”High-Focus ITT” myndlampi
• Þráðlaus fjarstýring
• 30 rása
• Sjálfvirkur stöðvaleitari
• Tengi fyrir segulbandsupptökur
• Tengi fyrir heyrnatæki
• Fáanlegur sprennibreytir fyrir 12./24 volt
Kr. 21.755.- stgr.
verð áður kr„ 31.122.-
góðu verði!
í E V7S4
Kr. 59.950.- stgr.
GÆÐI Á GÓÐU VERÐI
í
liÍIIÍIMIllillll
KLÆDSKERI
EINKENNISFÖT
FYRIR STOFNANIR OG FYRIRTÆKI
Sérsaumuð, vönduð, vinsæl og þægileg
vinnuföt. Dömu og herra.
Einnig klassiskjakkaföt úr úrvali enskra fataefna.
augljós 33.045