Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 27

Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988 27 Noregur: Mengun frá sovéskum iðnaði ógnar Finnmörku Ösló. Norinform. MENGUN í Finnmörku, nyrsta fylkinu í Noregi, gæti brátt orðið jafnmikil og sums staðar i sunn- anverðu landinu. Mengun af völdum brennisteinstvísýrings og þungra málma frá sovéskum iðn- aði hefur færst þar mjög í auk- ana á undanfömum árum. Enn er óvíst, hvenær samkomulag Norðmanna og Sovétmanna um umhverfisverad verður að veru- leika. Mengunarvamir ríkisins (SFT) og Norska vatnsrannsóknastofnun- in (NIVA), sem rannsakað hafa ástandið í Finnmörku, hafa greint frá því, að frá 1966 hafí mikil aukn- ing orðið á brennisteinstvísýringi og þungum málmum bæði í vatni og jarðvegi. Það er mengað loft frá Sovétríkj- unum og Austur-Evrópu, sem veld- ur vandanum f Finnmörku. Brenni- steinsmengunin frá iðnaði sovéska bæjarins Nikel eins er viðlíka og frá norska iðnaðinum í heild. Brennisteinninn mengar vatnsföll, drepur físk og eyðileggur jarðveg. Ekki er hægt að breyta núver- andi ástandi til hins betra nema með því að draga úr mengun frá iðnaði, segir Berit Kvæven, sem starfar hjá SFT. Hann segir, að mengunin verði að minnka að minnsta kosti um 30%. Hann telur, að ástandið muni lagast innan þriggja ára, verði því marki náð. iribtfritHf í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI Þessar litlu perlur geta létt af þer miklum áhyggjirm! 1 Milljónir Vesturlandabúa hafa á síðustu árum vaknað upp við vondan draum. Þeim hefur orðið ljóst að með „venjulegum" lífsmáta sínum stefndu þeir heilsunni í voða. Sérstaklega hefur eitt líffæri líkamans verið leikið grátt: HJARTAÐ. Hin almennu ráð til heilsubótar, hreyfing og hollur matur, hafa ein sér ekki reynst fullnægjandi fyrir hjartað. Vísindamenn hafa því lagt hart að sér við að finna ný vopn til að fyrirbyggja hjarta- og krans- æðasjúkdóma. Framlag Lýsis hf. og Háskóla íslands hefur þegar vak- ið heimsathygli. Það nefnist OMEGA-3! í OMEGA-3 er mikið af fjölómettuðu fitusýrunum EPA og DHA sem nú er talið fullvíst að dragi verulega úr hættunni á hjarta- og kransæðasjúkdómum. OMEGA-3 er náttúrulegt þykkni, unnið úr þorskalýsi. Æ&kilegur dogskammtur: 5-6peHur OMEGA-3 Hreint og hjartastyrkjandi! Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík. ...opnumvið betri byggingingavöru verslun Vestur á Hringbraut 120 hafa völundar á tré og járn og aðrir góðir byggingamenn unnið gott starf að undanfömu. Peirhafa byltöllu urn og útkoman er stórglœsileg alhliða byggingavöruverslun. Þarfæst allt sem þarf til húsbygginga og endurbóta, allt frá smæstu skrúfum til glæsilegra uno form innréttinga. JLVölundur betri byggingavörur Hringbriiut 120, -íini 28600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.