Morgunblaðið - 22.03.1988, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
29
AF ERLENDUM
eftir STEVE VINES
„Litli Gorba-
tsjovu í Víetnam
EKKI er langt síðan yfirvöld í Víetnam neituðu alfarið að ræða
um pólitíska fanga í landinu, en nú hefur ríkisstjórnin tilkynnt
að 1.014 fyrrum herforingjar og embættismenn gömlu Saigon-
stjórnarinnar, sem Bandaríkjamenn studdu (og kommúnistar
steyptu af stóli 30. april 1975) hafi verið leystir úr haldi.
Meðal fanganna sem nú hafa
verið látnir lausir voru Tran
Trung Dung fyrrum varnarmála-
ráðherra, þrír fyrrum þingmenn,
11 hershöfðingjar og 35 prestar
kristinna og búddatrúarmanna, en
alls var 9.147 pólitískum föngum
og afbrotamönnum sleppt til að
minnast Tet-hátíðarinnar, upphafs
nýs tunglárs. Auk þessa voru
6.685 fangar látnir lausir í sept-
ember í fyrra, þar af 480 pólití-
skir fangar.
Þessar fangalausnir eru í sam-
ræmi við þann nýja og breytta
anda sem ríkir í Víetnam undir
forustu Ngyen Van Linh, sem er
72 ára og aðalritari stjórnarflokks
kommúnista. Á því rúma ári sem
liðið er frá því hann tók við sem
flokksleiðtogi hefur Linh sýnt að
hann er engu minni umbótamaður
en Mikhail Gorbatsjov Sovétleið-
togi, og hann er stundum nefnd
ur„Litli Gorbatsjov".
En umbótastefnan sem Linh
rekur er á margan hátt mun rót-
tækari en sú sem reynt er að fylgja
í Sovétríkjunum, sem veita megnið
af þeirri erlendu efnahagsaðstoð,
sem Víetnam nýtur. Víetnam er
eitt af fátækustu löndum heims.
Lengst af undanfarna áratugi hef-
ur þjóðin staðið í borgarastyrjöld
með öflugri erlendri ihlutun. Að
vísu lauk borgarastyijöldinni árið
1975, en bardagar bijótast þó enn
út öðru hveiju við landamæri Kína.
Gegn skriffinnsku og
spillingu
Þjóðin er vel búin til hemaðar,
var löngum undir herstjórn og
hrærðist í hemaðaranda. Verkefni
Linhs er að færa' hemaðinn yfir
á svið efnahagsmála. Hann hefur
staðið ötullega að því og beitt sér
af hörku gegn vandamálum skrif-
fínnsku og spillingar sem hafa átt
sinn mikla þátt í að hefta fram-
farir í landinu.
Það fór ekki lengi leynt að
ónafngreindur dálkahöfundur í
málgagni kommúnistaflokksins,
Nahn Dan, var enginn annar er
Linh sjálfur, sem notaði blaðið til
koma upp um spillingu og dáð-
leysi skriffínnskunnar. Var hann
þannig óbeint að gagmrýna
harðlínumenn í flokknum, gamal-
reynda sigurvegara styijaldar
sem varð bæði Frakklandi og
Bandaríkjunum til lítillækkunar.
Ríkisstjóm Linhs reynir ekki að
efna til beinna árekstra við þessa
harðlínumenn, en bæði Linh og
fylgismenn hans hafa hægt og
sígandi unnið að einangrun þeirra.
í september i fyrra ákvað for-
sætisnefnd flokksins að hefja
hreinsun innan flokksins. Er
reiknað með að hún leiði til þess
að tugir þúsunda missi flokksskír-
teini sín. Reyndar er álitið að á
tiu árum, milli 1976 og 1986,
hafi 200.000 flokksmenn misst
skírteini sín. Þá hefur forsætis-
nefndin einnig lagt til að „sérrétt-
indi og forréttindi" þau sem emb-
ættismenn flokksins njóta verði
afnumin.
Jafnframt þessu hefur þess
verið vandlega gætt að friða gam-
alreyndu leiðtogana með því að
láta þá halda stöðum sínum, og í
stöku tilfellum hafa þeir hlotið
stöðuhækkanir þrátt fyrir háan
aldur. í júní í fyrra var Pham
Hung skipaður forsætisráðherra
og Vo Chi Cong var útnefndur
forseti. Báðir eru þeir hálfáttræð-
ir og tilheyra gamla skólanum,
aldir upp undir leiðsögn Ho Chi
Minhs.
Nýjar stjörnur
En nýju mennimir, sem em að
láta til sín taka innan ríkisstjórn-
arinnar, em af allt öðmm toga.
Þar ber mikið á Nguyen Xuan
Danh, sem er hagfræðingur frá
Harvard- háskóla í Bandaríkjun-
um og aðalráðgjafi stjómarinnar
í efnahagsmálum. Hann hefur
gengið erinda yfírvalda erlendis
við að reyna að fá útlyndinga til
að fjárfesta í Víetnam. Vo Van
Kiet, fyrrnrn borgarstjóri og
flokksleiðtogi í Ho Chi Minh borg
■- sem áður hét Saigon - er nú
aðstoðarforsætisráðherra og yfir-
maður fjárhagsáætlanadeildar
ríkisins. Hann er eindreginn fylg-
ismaður raunsæisstefnunnar.
Jafnhliða umbótum innanlands
er lagt mikið upp úr því að bæta
sambandið við umheiminn. Yfir-
völd í Víetnam, sem áður vom
mjög einangmð gagnvart um-
heiminum, buðu nýlega fjölda við-
urkenndra blaðamanna frá ná-
grannalöndunum að ferðast um
landið og ræða við embættismenn,
þar á meðal við Linh.
Hópur bandarískra þingmanna
og aðstoðarmanna þeirra fékk
konunglegar móttökur þótt enn
hafi ekki verið tekið upp stjóm-
málasamband milli ríkjanna.
Bandarískir blaðamenn eiga nú
allt í einu auðvelt með að fá vega-
bréfsáritanir til að fara til Víet-
nam, reyndar er þeim það auð-
veldara en blaðamönnum frá lönd-
um sem ekki áttu aðild að Víet-
nam-stríðinu.
Tilgangurinn með þessu
breytta hugarfari er augljós. Víet-
nam þarfnast aukinnar erlendrar
VETTVANGI
Enn ýta Víetnamar úr vör á
litlum og lekum bátum í leit að
betra lífi utan heimalandsins.
aðstoðar og fjárfestinga. Sjálf-
stæðisþörf þjóðarinnar er mjög
mikil, og hún vill verða óháðari
Sovétríkjunum og öðrum stuðn-
ingsríkjum sínum í Austur-Evr-
ópu. Stjóminni er ljóst að það
gerist ekki átakalaust. Hún gerir
sér einnig fulla grein fyrir því að
ein helzta hindrunin í vegi bættrar
aðstöðu á alþjóðavettvangi er her-
seta Víetnama í Kampútseu.
Mikið gert - en ekki nóg
Og stjómin hefur jafnvel lýst
sig reiðubúna til að hefja viðræður
við Bandaríkjamenn um örlög
bandarískra hermanna sem sakn-
að var í stríðinu.
Það sem Víetnamar hafa þegar
gert er að setja ný lög um erlend-
ar fjárfestingar þar sem megin-
reglumar eru skýrðar í fyrsta
sinn. Þeir hafa lýst stuðningi við
friðarviðræður milli fulltrúa
stjómar Kampútseu og samtaka
uppreisnaraflanna undir forustu
Sihanouks prins, og þeir hófu
brottflutning fjölmenns herliðs frá
Kampútseu í lok síðasta árs.
í janúar á þessu ári lýsti Linh
því yfir við bandaríska blaðamenn
að hann væri reiðubúinn til sam-
vinnu um að reyna að hafa upp
á þeim bandarísku hermönnum
sem saknað er, jafnvel þótt Víet-
namar dragi mjög í efa fullyrðing-
ar um §ölda þeirra sem sagt er
að séu á lífi og búsettir í landinu.
En þrátt fyrir allt þetta tjá
margir Víetnamar énn skoðanir
sínar í verki með því að ýta úr
vör á litlum og lekum bátum í
leit að betra lífi utan heimalands-
ins. Árangur umbótanna er tak-
markaður. Fyrst og fremst verður
að beijast gegn fátæktinni.
Höfundur er blaðamaður hjá
brezka blaðinu The Observer.
Rúmlega 1100 manns hvaðanæva úr Víetnam sitja þing kommún-
istaflokks landsins.
ÓSKAEFTIR
TOYOTUHILUX '80-81
í skiptum fyrirToyotu Carinu ’81.
Gott útlit og í góðu lagi.
Milligjöf greiðist upp á 10 mán.
Nánari upplýsingar í síma 680120 eftir
kl. 17 eða 44113.
A-STIGS LEIÐBEIN-
ENDANÁMSKEIB
Dagana 7.-10. apríl nk. efnir íþróttasamband fatlaðra
til A-stigs leiðbeinendanámskeiðs. Námskeiðið, sem fer
fram í Iþróttamiðstöðinni í Laugardal, verður alls 35
kennslustundir og verður bæði bóklegt og verklegt.
Námskeiðið er öllum opið en þátttökutilkynningar þurfa
að hafa borist til skrifstofu íþróttasambands fatlaðra,
íþróttamiðstöðinni í Laugardal, fyrir 27. mars nk. Síminn
á skrifstofunni er 91-83377. Námskeiðsgjald, sem er
3500 kr., greiðist í upphafi námskeiðsins.
SIEMENS
Fjölhæf hrærivél frá
Blandari og grænrtietiskvörn fylgja með!
Siemens hrærivélin MK 4500
>Allt á einum armi.
► Hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar,
rífur, og sker — bæði fljótt og vel.
► ítarlegur leiðarvísir á íslensku.
Smith & Norland
Nóatúni 4 — s. 28300
MICROSO HUGBÚNAÐUF FT \