Morgunblaðið - 22.03.1988, Page 76

Morgunblaðið - 22.03.1988, Page 76
Hvolsvöllur: Öllu starfs- fólkí hús- * gagnaiðju sagt upp KAUPFÉLAG Rangæinga hefur sagt upp öllum starfsmönnum húsgagnaiðju félagsins, 16 tals- ins. Ólafur Ólafsson kaupfélags- stjóri segir að fólkinu hafi verið sagt upp störfum vegna endur- skipulagningar á rekstri hús- gagnaiðj unnar og ekki standi til að leggja reksturinn niður. Fólkinu var sagt upp fyrir síðustu mánaðamót með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Ólafur segir að verkefni fyrirtækisins hafi minnkað verulega. Hann segir að fyrirtækið framleiði húsgögn fyrir stofnanir og heimili. Framleiðsla stofnana- húsgagnanna gengi vel, en þau væru þó aðeins um fjórðungur verk- efnanna. Verr hefði gengið að selja heimilishúsgögnin. „Við stefnum að því að halda áfram með stofnana- húsgögnin og það besta af hinu og reyna síðan að fínna eitthvað nýtt eða fara út í þjónustu og sérsmíði," sagði Ólafur um endurskipulagn- inguna. Ólafur sagði að jafnframt væri ætlunin að breyta húsgagnaiðjunni í sjálfstætt hlutafélag með þátttöku fleiri aðila, t.d. starfsfólks og ann- arra þeirra sem vildu vinna að þessu verkefni með kaupfélaginu. Hótelbók- anir álíka , og í fyrra FJÖLDI bókana á hótel er svip- aður og í fyrra að sögn forráða- manna þeirra hótela sem Morg- unblaðið hafði samband við. Þeir voru þó sammála um að ekki væri enn hægt að segja ákveðið til u m sumarið fyrr en nær drægi vegna fjölda óstaðfestra pant- ana. „Bókanir á Flugleiðahótelin, Esju og Loftleiðir, eru svipaðar og í fyrra, sem var mjög gott ár. Ann- ars er lítið að marka bókanir nú, 't ég hef aldrei talið þær marktækar 4 fyrr en í lok apríl vegna fjölda óstað- festra bókana frá ferðaskrifstof- -t um,“ sagði Einar Olgeirsson, hótel- stjóri á Esju. Hjá Holiday Inn er svipaða sögu að segja, að sögn Jónasar Hvann- bergs, framkvæmdastjóra hótel- sviðs, hefur fyöldi bókana verið þokkalegur. Fullbókað er í júní og ágúst, maí og júlí eru nokkuð vel bókaðir og mikið í september. „Við erum bjartsýnir á reksturinn," sagði Jónas. Konráð Guðmundsson, hótelstjóri á Sögu, sagði bókanir vera svipaðar og í fyrra, um 75% yfír sumarmán- ^ uðina. „Nú þegar hefur mikið verið bók- að en pantanimar eru breytingum háðar,“ sagði Bjami Ingvar Áma- son, eigandi Hótels Óðinsvéa. „Það er töiuvert um óstaðfestar bókanir í ár en líklega aðeins minna en undanfarin ár. Mér sýnist að í ár berist bókanir seinna vegna þess að gistirýmið er meira og því minni þrýstingur," sagði Bjami. .. Morgunblaðið/BAR Markús Öm Antonsson útvarpsstjóri skálar við lagahöfundinn Sverri Stormsker og söngvarann Stefán Hilmarsson eftir keppnina í sjónvarpssal i gærkvöldi. Islenska þjóðin er fyrst núna að uppgötva mig - segir Sverrir Stormsker sem sigr- aði í Söngvakeppni sjónvarpsins „ÉG HEF samið fjölda topplaga um ævina og hef ekki breytt um stfl. Þetta lag er nokkurs konar útfrymi af þeim stíl sem ég hef haft fram til þessa. Ég held að þjóðin hneykslist ekki á þessu lagi, þó aðrar lagasmíðar mínar hafi hneykslað hana,“ sagði Sverrir Stormsker, nýbakaður sigurvegari i Söngvakeppni sjónvarpsins, um lag sitt „Þú og þeir“. Sverrir sigraði með miklum yfirburðum í keppninni í gærkvöldi, hlaut hæstu stigatölu hjá öllum dómnefndum og fékk samtals 96 stig. Sverrir sagði lagið ekki samið sérstaklega fyrir söngvakeppnina. „Ekkert af því, sem ég hef hingað til samið, hefur verið samið fyrir aðra, þetta er allt saman mitt „einkaflipp". Ég er mjög ánægður með að fólkið hefur tekið undir með mér og fitlað við mig I andleg- um skilningi," bætti hann við. Sverrir bjóst við ferðafélagar hans og Stefáns Hilmarssonar söngvara til Dublin yrðu Bjöm Emilsson, tæknimenn, hljómsveit- arstjóri „og svo okkar heittelsk- uðu“. „Uti er 60 manna hljóm- sveit, sem er alveg nóg fyrir mig. Hugsanlega er einum af 60 hljóm- sveitarmeðlimum ofaukið fyrir mig.“ Steinar hf. gefur út lagið á safn- plötu sem kemur út innan skamms. Nafnið á henni sagðist Sverrir vilja láta liggja milli hluta. „Vitanlega verð ég íslensku þjóð- inni til sóma eins og ég hef verið fram að þessu,“ sagði hann að- spurður. „Hún er bara fyrst að uppgötva mig núna,“ sagði Sverrir. „Ég leit á þetta lag sem sigur- vegara frá upphafi, svo að þetta kemur mér mér alls ekki á óvart. Að segja annað væri hræsni," sagði Stefán Hilmarsson, sem syngur lag Sverris. Sjá frásögn af keppninni og dóm um sigurlagið á bls. 75. Islenzka úthafs- veiðifélagið: Rættum leiguá verksmiðju- togara ÍSLENZKA úthafsveiðifélagið ræðir nú við brezka fyrirtækið Hughes Food Group f Hull um leigu á verksmiðjutogaranum Ólafi f Garðastovu. Togarinn var áður í eigu Færeyinga og hafði verið rætt um leigu á skipinu við þá, en án árangurs. Árangur er talinn Ifklegri nú eftir að Bret- arnir keyptu skipið. Jón Kristjánsson hjá félaginu sagði í samtali við Morgunblaðið að hann vonaðist til að viðræðumar skiluðu árangri innan skamms tíma. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um gang mála. Úthafsveiðifélagið hefur heimild- ir til að veiða um 40.000 tonn af þorski við Alaska. Ætlunin mun að vinna aflann allan um borð í því skipi sem til veiðanna fæst og selja hann á markaði í Bandaríkjunum í gegnum íslenzkt fyrirtæki, Sam- bandið eða Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna. Samkvæmt gildandi regl- um eru hömlur á löndunum er- lendra fískiskipa í Bandaríkjunum, en að uppfylltum ákveðnum skilyrð- um, eru þær taldar yfirstíganlegar. Neyðarblys við Reykjavík NEYÐARBLYS sást á lofti við Reykjavfk um kl. 22.15 f gær- kvöldi og virtist þvi hafa verið skotið á loft annað hvort við Gróttu eða norður af Viðey. Bátar og skip, þar á meðal varð- skip, hófu þegar leit, en um kl. hálf eitt í nótt voru menn engu nær um hvaðan blysið hefði komið. Margir urðu varir við það, en bar ekki saman um hvar það hefði ver- ið. Þyrla Landhelgisgæslunnar hóf leit skömmu fyrir miðnætti og var ætlunin að halda leit áfram fram á nótt. Vongóður um að lausn finmst nú í vikunni - segir Hjörtur Eiríksson framkvæmdastjóri Vinnumálasambands samvinnufélaganna BÚIST er við að samningarnir sem gerðir voru við iðnverkafólk og verslunarmenn f gærmorgun muni hafa jákvæð áhrif á gang viðræðna vinnuveitenda við fulltrúa þeirra félaga innan VMSÍ sem enn eiga ósamið. „Ég held að það sem okkur ber á milli sé f raun og veru ekki svo óskaplega mikið. Við munum leggja rnikla áherslu á að það náist lausn á deilumálum nú f vikunni, og ég er afskaplega vongóður um að það takist,“ sagði Hjörtur Eiríksson, framkvæmdastjóri Vinnumála- sambands samvinnufélaganna, þegar Morgunblaðið náði tali af honum á Akureyri í gær. „Ég er ekki búinn að sjá þessa samninga ennþá og ég get ekkert sagt um hvort að þetta séu viðun- andi hækkanir, en mér skilst að þama hafí verið samið um heldur meira en í felldu samningunum," sagði Sigurður Óskarsson, formaður Alþýðusambands Suðurlands. „Ég held að þessir samningar liðki fyrir viðræðum að þvi leyti til að nú liggja þau spil sem gefín hafa verið á borð- inu, en menn byggja sjálfsagt sínar viðræður áfram á sínum kröfugerð- um fremur en á þessari niðurstöðu. • Ég á hins vegar von á að vinnuveit- endur visi mjög til þessarar niður- stöðu. Það er mjög óvist hvað gerist á Akureyri, þar sem menn hafa ekki rætt í þessum þremur fylkingum um launatölur." „Ég er útaf fyrir sig ánægður með að það skuli hafa verið samið, okkur fannst biðin vera orðin nógu löng og tími til kominn að vinnuveitendur litu til fleiri en tvístraðs Verka- mannasambands," sagði Bjöm Þór- hallsson, formaður Landssambands islenskra verslunarmanna. Bjöm sagði að mikilvægasti áfangi samn- inganna væri sá, að meðaltalskaup- máttur samningstímabilsins yrði sá sami og meðaltal árið 1987, ef þær forsendur sem menn hefðu gefíð sér myndu standa. „Við sömdum fyrir okkur, aðrir semja fyrir sig,“ sagði Bjöm þegar hann var spurður hvort hér væri um að ræða stefnumark- andi samninga. Hann sagði að hann teldi ekki sæmandi að elta uppi það sem aðrir kynnu að ná í samningum sínum, eins og Verkamannasam- bandið hefði nú tekið upp eftir opin- berum starfsmönnum. Hvert félag yrði að vera ábyrgt fyrir sínum samn- ingum. Fundur ríkissáttasemjara með fulltrúum vinnuveitenda og allra þeirra félaga innan VMSÍ sem enn eiga ósamið hefst á Akureyri eftir hádegi í dag, en í gær funduðu vinnu- veitendur með samninganefnd Al- þýðusambands Norðurlands þar. Sjá einnig leiðara, frétt á miðopnu og frétt á Akureyrarsiðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.