Morgunblaðið - 29.03.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1988
Samið um 8% verðlækkun á saltfiski til Portúgals:
Gjaldeyristekjur lækka
um hundruð milljóna
SÖLUSAMBAND íslenzkra fisk-
framleiðenda hefur samið við
Helgarumf erðin:
Ölvaðir 24
og 42 óku
of hratt
LÖGREGLAN í Reykjavík
þurftí að hafa afskipti af mörg-
um ölvuðum ökiunönnum um
helgina. Alls voru 24 gripnir
grunaðir um ölvun og 42 öku-
menn reyndust aka of hratt.
Þeir ölvuðu voru aðallega á
ferðinni aðfaranótt laugardags og
sunnudags. Hraðamælingarnar
fóru að mestu fram á föstudags-
og laugardagskvöld og af þeim
42, sem óku of hratt, voru 5 svipt-
ir ökuréttindum. Loks reyndust 4
ökumenn, sem lögreglan hafði
afskipti af, ekki hafa réttindi til
aksturs, þar sem þeir höfðu verið
sviptir þeim áður.
Auk ofangreindra brota þurfti
lögreglan að hafa afskipti af öku-
mönnum sem sinntu ekki stöðvun-
arskyldu, óku yfír á rauðu ljósi
eða notuðu ekki ökuljós eða
bflbelti, svo fátt eitt sé nefnt. Á
það skal bent, að þeir sem ekki
sinna stöðvunarskyldu verða
4.000 krónum fátækari,
Fundaðmeð
mjólkur-
fræðingum
SAMNINGANEFNDIR Mjólkur-
fræðingafélags íslands og Vinnu-
veitendasambands íslands voru á
samningafundi hjá ríkissátta-
semjara í gær. Nefndirnar komu
saman til klukkan 14 í gær og
voru enn að um miðnættið. Samn-
ingamenn áttu þá frekar von á
að sitja áfram.
Mjólkurfræðingar neita að vinna
jrfírvinnu, en eru þó ekki í formlegu
yfírvinnubanni. í gær var ekki vitað
hvort þessi aðgerð þeirra leiðir til
skorts á ijóma eða öðrum mjólkur-
vörum um páskana.
í dag
portúgalska kaupendur um 8%
verðlækkun að meðaltali á salt-
fiski, sem þangað er seldur.
Lækkunin kemur fyrst og fremst
til af því, að miklar birgðir af
saltfiski voru til um áramót,
einkum í Noregi og keppinautar
okkar bjóða fiskinn á mun lægra
verði en við höfum gert. Þessi
verðlækkun hefur í för með sér
lækkun útflutningstekna um
hundruð milljóna króna.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að áherzla hefði
verið lögð á það að halda verði
síðasta árs. Það hefði tekizt um
Fyrsti sáttafund-
ur á miðvikudag
DEILU Verslunarmannafélags
Reykjavíkur og vinnuveitenda
hefur veríð visað til ríkissátta-
semjara og verður fyrsti samn-
ingafundurínn haldinn á morg-
un, miðvikudag, klukkan 13.
Frestur sá sem önnur félög
verslunarmanna höfðu tU að
greiða atkvæði um samningana
hefur veríð framlengdur til 11.
april, en í samningunum var
kveðið á um að greiða þyrftí
atkvæði fyrir 30. mars.
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, sagði að félagið hefði ekki
boðað verkfall, enda vildu menn
ræða við vinnuveitendur áður en
til slíks kæmi. Magnús sagði að
VR hefði óskað eftir því við vinnu-
veitendur að fá lengri frest en til
30. mars, þar sem menn hefðu
viljað halda allsheijaratkvæða-
greiðslu, en ekki hefði fengist
nægur tfmi til þess. Þegar samn-
ingurinn var felldur í VR hefði
Vinnuveitendasambandið hins
áramótin, en ekki nú. Miklar birgð-
ir af saltfiski, sem ætlaðar hefðu
verið á markað í Brasilíu, hefðu
verið til í Noregi um áramót. Bras-
ilíski markaðurinn hefði lokazt og
því kæmi þessi fískur inn á evr-
ópsku markaðina, einkum Portúgal,
á töluvert lægra verði en verðið á
fískinum okkar hefði verið. Auk
þess væri þrýstingur á alla físk-
markaði og tegundir físks um verð-
lækkun og þessi markaðsstaða
hefði knúið okkur til að samþykkja
verðlækkun. Ljóst væri þó, að hægt
yrði að gera upp við framleiðendur
á verðinu sem gilti frá áramótum
fyrir fisk, sem væri framleiddur
fyrir 15. marz.
Á AÐALFUNDI Verslunarbanka
íslands sem haldinn var síðastlið-
inn laugardag kom fram að
hagnaður af rekstrí bankans á
síðasta árí var rúmar 40 milljón-
ir króna. Rekstrartekjur voru
1.530,3 milljónir en rekstrargjöld
1.489,8 mil^jónir sem er um 94%
aukning frá fyrra árí. Eigið fé
bankans í árslok var 424,2 miUj-
ónir en aðalfundurínn samþykkti
að auka hlutafé um 100 mUljón-
ir. Útlán jukust um 56,3% á árínu
og voru í árslok alls 4.974,9 miUj-
ónir. Innlán voru 3.284,9 mil\jón-
ir í árslok og jukust um 28%.
í ræðu sinni vék Ámi Gestsson,
formaður bankaráðs, að þeim breyt-
„Það, sem hér er um að ræða,“
sagði Magnús, „er um helmingur
rammasamnings okkar við Portú-
gali. Hvaða áhrif það hefur á fram-
leiðsluna er ekki fyllilega ljóst, en
væntanlega dregst hún eitthvað
saman. Þá er heldur ekki ljóst hvað
verður í næstu samningum innan
rammans við Portúgali og heldur
ekki í samningum við aðrar þjóðir.
Það gengur ekki til lengdar að selja
á mun hærra verði en helztu keppi-
nautar okkar. Við verðum að taka
mið af markaðnum eins og aðrir.
Þeir, sem hafa haft hvað mestar
áhyggjur af gróðanum í saltfisk-
verkun, ættu því að geta sofíð róleg-
ir á næstunni," sagði Magnús.
ingum sem gerðar voru á starfs-
háttum bankans á árinu. í nýju
skipuriti bankans væri byggt á
sveigjanlegu og viðbragðsfljótu
stjómskipulagi þar sem valdi og
ábjrrgð væri dreift til 9 fram-
kvæmdasviða og 8 útibúa.
Á fundinum var samþykkt að
auka hlutafé um 100 milljónir til
að styrkja eiginfjárstöðu bankans
og gera hann betur í stakk búinn
til að ná markmiðum sínum auk
þess sem hlutafjáraukningin gerir
bankann hæfari til að uppfylla kröf-
ur bankalaganna um eigið fé við-
skiptabankanna. Um síðustu ára-
mót var eiginfjárhlutfall samkvæmt
By ggðastof nun;
Lánað til
endurskipu-
lagningar í
fiskvinnslu
STJÓRN Byggðastofnunar
samþykkti á fundi sínum í
gær að lána 180 milljónir
króna til útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækja, en stærst-
ur hlutí fjármagnsins fer til
fjárhagslegrar endurskipu-
lagningar.
Guðmundur Malmquist for-
stjóri Byggðastofnunar sagði L
samtali við Morgunblaðið að
þessir peningar væru lánaðir
til 15 fyrirtækja, aðallega
vegna fjárhagslegrar endur-
skipulagningar, en einnig væri
nokkuð lánað til nýfram-
kvæmda.
Mokveiði
hjá togurum
fyrir norðan
MOKVEIÐI er út af Stranda-
grunni og víðar fyrir Norður-
landi. Nokkrír norðlenskir togar-
ar sem eru á veiðum þar hafa
fengið góðan afla síðustu sólar-
hringa. í sumum tilvikum hafa
þeir þurft að hætta að toga til
að komast í aðgerð.
Togarinn Snæfell frá Hrísey
hafði í gærkvöldi fengið 70 tonn á
tæpum tveimur sólarhringum rétt
utan við 12 mílumar út af Siglu-
nesi. Ámi Bjamason skipstjóri
sagðist þá hafa verið á leiðinni á
Strandagrunn en lítið miðað áleiðis
vegna góðrar veiði. Hann sagði að
þorskurinn væri góður, sá besti sem
hann hefði séð á þessu ári.
skilgreiningu bankalaganna 10,6%
en svokallað fastafjárhlutfall, þ.e.
hlutfall bókfærðs virðis fasteigna
og búnaðar af eigin fé, var um
100%. Bankalögin gera kröfu til að
eiginíjárhlutfallið sé 5% en fasta-
fyárhlutfallið 66%.
Fundurinn kaus nýtt bankaráð
sem er skipað þeim Guðmundi H.
Garðarssjmi viðskiptafræðingi,
Leifi ísleifssyni kaupmanni, Þor-
valdi Guðmundssyni forstjóra, Þor-
varði Elíassyni forstjóra og Gísla
V. Einarssyni stórkaupmanni. Gísli
V. Einarsson var kosinn formaður
ráðsins í stað Áma Gestssonar for-
stjóra sem gaf ekki kost á sér til
áframhaldandi setu.
Morgunblaðið/PPJ
Farfuglarmr birtast
TVÆR flugvélar af gerðinni de Havilland
Canada Twin Otter sem voru á leiðinni yfir
Atlantshaf til Bretlands lentu á Reykjavíkur-
flugvelli sl. föstudagskvöld.
Ein og sér getur koma slíkra flugvéla hingað
ekki talist til merkilegra viðburða því allmargar
'flugvélar af þessari gerð hafa hér viðkomu ár
hvert. En þar með er ekki öll sagan sögð því flug-
vélar þessar em hér reglulegir gestir og geta tal-
ist vorboðar hér á Reykjavíkursvæðinu.
Flugvélamar sem hér um ræðir tilheyra Bresku
suðurheimskautsmælingastofnuninni eða British
Antarctic Survey, og hafa komið hingað tvisvar á
ári um margra ára skeið á leiðinni milli Bretlands
og suðurheimskautsins, en þær hafa sumardvöl á
Bretlandi þegar vetrarveður ríkir syðra.
Suður á bóginn halda vélamar í byrjun október
og aftur koma þær hingað á heimleið síðla mars-
mánaðar. Flugleið vélanna milli heimsálfanna ligg-
ur um ísland, Kanada, Bandaríkin og landa á
austurströnd Suður-Ameríku og er flugtíminn um
70 klukkustundir.
Deilu V R og VSÍ vísað
til ríkissáttasemjara
vegar boðið félögum verslunar- að þau gætu viðhaft allsheijarat-
manna úti á landi lengri frest til kvæðagreiðslu.
Aðalfundur Verslunarbankans:
Hagnaður 40 milljónir