Morgunblaðið - 29.03.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 29.03.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ;ÞRIÐJUDAGUR>29. MARZ' 1988 59 Margrét Guðmunds- dóttirfrá A — Minning Fædd 28. desember Dáin 19. mars 1988 „Það er svo margt að minnast á frá morgni æsku ljósum er vorið hló við bamsins brá og bjó þar skarti af rósum." (Ingi T. Lárusson) En það var vor, er leiðir okkar Möggu lágu fyrst saman fyrir um 40 árum. Þá steig ég mín fyrstu spor í túninu hennar við Breiða- fjörðinn. Og undir handleiðslu henn- ar og hans Bjama, átti ég fímmtán sumur æskunnar við leiki og störf: Magga á Á var hún alltaf kölluð af gestum og gangandi, en fullu nafni hét hún Margrét Guðmunds- dóttir fædd 28. desember 1902, að Hvammsdal í Saurbæjarhreppi, 12. bamið í röðinni. En hún naut aldrei umhyggju móður sinnar í æsku því hún kvaddi þennan heim er Magga fæddist. Hún þekkti því vel af eigin raun aðbúnað smælingjans, enda áttu margir afdrep og athvarf hjá henni og Bjama á Á eftir að þau hófu þar búskap. En sjálf eignuðust þau þrjá syni, Jón búsettan í Vogum á Vatnsleysuströnd, Ástvald búsett- an í Keflavík, Trausta bónda á Á. Einnig ólu þau upp Svanhildi Th. Valdimarsdóttur sem búsett er í Reykjavík. Svo og allir þeir drengir og stúlkur sem þar hafa verið á sumrin. En leiðir okkar Möggu hafa legið saman allt frá því að ég steig mín fyrstu spor í varpa og hefur hún verið mér sem önnur móðir, gefandi styrk og kraft, beinandi sjónum að lífínu og tilgangi þess, og sýndi fram á að við erum hér á jörð til að beijast til sigurs og æðr- ast ekki. En það sýndi hún allt til dauðadags, því að síðustu dagarnir hér á jörð kröfðu hana mikils. Nú þegar komið er að kveðjustund, vil ég þakka allar samverustundir, allt það sem hún gaf, allt sem hún fóm- aði fyrir mig og aðra. Megi nú góð- ur guð styrkja hana og varðveita og leiða um fyrirheitna landið svo hún fái notið þess sem hún sáði. Góði guð, gefðu ættingjum styrk á þessari kveðjustund. „Ég fell að fótum þínum og faðma lífsins tré. Með innri augum mínum ég undur mikil sé. Þú stýrir vorsins veldi og vemdar hveija rós. Frá þínum ástareldi fá allir heimar ljós.“ (Davíð Stefánsson). Hinsta kveðja frá öllum á Reykja- vegi 80 Mosfellsbæ. „Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V. Br.) Ella Er ég tek mér penna í hönd, til þess að minnast æskuvinkonu minnar, Margrétar Guðmundsdótt- ur, líður hugurinn vestur á Skarð- strönd sem okkur báðum var svo kær. En nú er hún hulin hvítri slæðu, er hún leggur upp í sína hinstu för héðan. En skammt er þar til raddir vorsins munu þar hljóma. En andi vorsins og hrein- leiki hjartans var Margréti í blóð borinn. Trúuð var hún og lét ekki bugast þótt móti blési. En fátækleg orð á kveðjustund mega sín lítils, því margs er að minnast, því koma mér í hug ljóðlínur Sigurðar frá Amarvatni: „Yndislega ættaijörð ástarkveðju heyr þú mína, Þakkarklökkva kveðjugjörð, kveð ég líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild og hörð, mig þú tak í arma þína. Yndislega ættaijörð, ástarkveðju heyr þú mína.“ Ströndin var henni allt, bærinn hennar í túninu við litla fossinn í ánni, efst í hulduhvamminum sem söng hana í svefn að loknum löng- um vinnudegi. En nú mun hann í klakafjötrum vetrar svæfa hana hinsta sinni, í þeirri mold sem var henni hvað kærust. Ég veit að sá sem öllu ræður mun styðja Mar- gréti, varðveita og styrkja, handan landamæranna miklu, þangað sem engin sorg nær og fylgja henni á fund þeirra sem á undan eru gengn- ir og styrkja böm hennar, tengda- böm og öll barnabömin. Guð blessi minningu Margrétar. Ninna W gefur vs %' mð sannu ’hátíðcibragM* Waldorfsalat er víða orðinn ómiss- andi hluti af hátíðamatnum, enda bragðast það einstaklega vel með fugla-, nauta- og svínakjöti, fyrir utan hreindýrakjötið. Við mcelum með þessari uþþskrift úr tilraunaeldhúsinu okkar: Waldorfsalat. 2 dósir sýrður rjómi — V4 tsk salt — 70 g sellerí — 300 g grœn vínber - 2 grœn eþli — 50 g valhnetukjamar. Bragðbœtið sýrða rjómann með saltinu. Skerið selleríið í litlarþunnar rœmur, helmingið vínberin og fjar- lœgið steinana, skerið eþlin í litla teninga og saxið valhnetukjamana Blandið þessu saman við sýrða rjómann í þeirri röð sem það er talið uþþ. Fyrir utan bragðið hefur sýrði rjóminn þann kost að í hverri matskeið em aðeins 28 hitaeiningar! Lítið atvinnuleyndarmál í lokin. Setjið sýrðan rjóma í súþuna (ekki í tcerar súþur) og sósuna, rétt áður en þið berið þœr á borð. Það er málið. Gleðilega hátíð. Nýjar 1 lítra umbúðir MEÐ KARAMELLURISTUÐUM HNETUM AX„aramelIurist- aöar hnetur og skafís. Hljómar vel, ekki satt? Hvað þá þegar skafísinn er ekta rjómaís. AUK hf. 3.219/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.