Morgunblaðið - 29.03.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1988
33
Til Odense á vit ævintýra
í slendingafélagið í Odense 25 ára
íslendingafélagið í Odense
átti 25 ára afmæli 16. marz sl.
Var það haldið hátíðlegt þann
dag í húsnæði félagsins á Al-
légade 78. Stjórnin bauð mörg-
um gestum, svo og félagsmönn-
um öllum, til kaffidrykkju af
miklum myndarskap.
Formaður ÍFÓ, Jón Ingi Guð-
mundsson, bauð gesti velkomna
og bað viðstadda íslendinga að
rita nöfn sín í forkunnarfagra
gestabók, sem vera skyldi gjöf
félagsins til Odense á 1000 ára
afmælinu og nánar verður sagt
frá. Þá talaði Skúli Fjalldal bygg-
ingafulltrúi, sem verið hefur stoð
og stytta félagsins frá stofnun
þess og ámaði félaginu heilla.
Meðal gesta í afmælishófinu
vom fulltrúar Kópavogs og Norr-
æna félagsins í Kópavogi, sem
komnir voru til Odense í tilefni
af stórafmæli vinabæjarins.
Kristján Guðmundsson bæjar-
stjóri og kona hans Margrét
Hjaltadóttir og Hjörtur Pálsson
formaður Kópavogsdeildar Norr-
æna félagsins og Steinunn Bjar-
man kona hans. Flutti Kristján
ávarp og afhenti gjafir, sem voru
2 hljómplötur, önnur með Skóla-
hljómsveit Kópavogs, sem Björn
Guðjónsson stjómar, og hin með
Skólakór Kársness, en honum
stjómar Þómnn Bjömsdóttir, son-
ardóttir próf. Jóns Helgasonar í
Kaupmannahöfn.
Stjóm Norræna félagsins í
Odense var í afmælinu, en Skúli
Fjalldal er varaformaður hennar.
Vom þeir stjómarmenn að koma
frá Hindsgavl úr hádegisverðar-
boði, sem Norræna félagið hélt
gestum frá vinabæjunum. Þar
afhenti Hjörtur Pálsson Lista-
verkabók Kristínar Jónsdóttur
sem gjöf frá Norræna félaginu í
Kópavogi. Tók formaður Norræna
félagsins í Odense, Frits Teichert
skólastjóri Landbúnaðarskólans,
síðan til máls og færði íslendinga-
félaginu gjafír og góðar óskir.
Minntist skólastjórinn þess, hve
margir íslendingar hafa stundað
nám við Landbúnaðarskólann, en
þar er eitt afmælið enn á næst-
unni. 7. maí nk. heldur skólinn
upp á 25 ára afmæli sem norrænn
landbúnaðarskóli, en hann hét
áður Den fynske husmandsskole.
F'ulltrúi íslands í stjórn skólans
er Guðmundur Jónsson fv. skóla-
stjóri á Hvanneyri.
Fleiri fluttu ávörp og færðu
afmælisfélaginu blóm og heillaó-
skir, m.a. Sven M. Carlsen, sem
leigir ÍFÓ Selið eins og húsnæðið
í Allégade heitir og hefur það
verið félagsheimili Islendinga í
Odense í 2 ár.
Afmælisblaðið
Félagið hefur gefíð út afmælis-
rit og er það 1. tbl. 6. árg. af
Þuríði, málgagni félagsins. í blað-
inu em m.a. greinar eftir Skúla
Fjalldal. Baldvin Einarsson og
Alexander Guðbjartsson, þar sem
rakin er saga félagsins, aðalfund-
argerð, þorrablótsvísur og grein
um málfreyjudeildina Frigg
Fjörgynsdóttur eftir Önnu Dóru
Garðarsdóttur.
Aðalhvatamaður að stofnun ís-
lendingafélagsins var Ólafur
Oddsson, skipatæknifræðingur.
Fór stofnun þess fram í húsi
KFUM, þar sem félagið hafði að-
setur fyrstu árin. Margir hafa lagt
hönd á plóginn í félagsstarfinu,
en oft tíð mannaskipti í félagi
námsmanna, sem auðvitað eiga
hér flestir stutta dvöl.
Málverkasýning
Margretar Nielsen
í tilefni af afmælinu heldur
Margret Nielsen málverkasýningu
í Selinu. Hún er íslendingur, fædd
í Reykjavík og maður hennar,
Ame Nielsen forstjori, var fyrsti
íslenzki konsúllinn í Odense. Þau
hjónin eru einnig fyrstu heiðurs-
félagar íslendingafélagsins í Od-
ense. Margret hefur ætíð verið
góður fulltrúi íslands, bæði á sviði
málaralistar og á öðmm sviðum,
segir Skúli Fjalldal um hana í
afmælisritinu.
Myndirnar á sýningunni em
allar frá íslandi og málar Margret
föðurlandið eins og hún geymir
það í minningunni og hefur feng-
ið mikið hrós fyrir víða um lönd.
Hún hefur sýnt í Svíþjóð, Noregi,
Belgíu, Þýzkalandi og tekið þátt
í fjölda sýninga í Frakklandi, en
þar vann hún bronsverðlaun á
Grand Festival Intemational de
l’art 1987 og fékk fyrstu verðlaun
í Salon d’Automne í Vaison sama
ár. Hér í Danmörku hefur Margr-
et haldið sýningar svo tugum
skiptir og tekið þátt í samsýning-
um.
Skal vitnað hér til blaðaum-
mæla um listakonuna, en þar er
af nógu að taka. Pierre Lúbecker
segir um Margret Nielsen í Politi-
ken: Litameðferð hennar er mjög
hógvær, mest em það gráir og
ieik Hrefnu Eggertsdóttur og var
það atriði framúrskarandi og
listakonunum fagnað innilega.
Þær vom sannarlega til mikils
sóma. Dagana á eftir vom þær á
ferðinni um bæinn og komu fram
í skólum og á sjúkrahúsum og
glöddu áreiðanlega marga með
því.
Sjálfur borgarstjóri Klakksvík-
ur söng fyrir sinn bæ ásamt
nokkmm öðrum söngvumm. Frá
Upemavik á Grænlandi var sýnt
svipukast og leikir. Fulltrúi
Norrköping, Krispin Bigniewski,
lék á fíðlu og fékk alla í salnum
til að taka undir við tónlistina.
Dönsku atriðin vom 3, Carl Niels-
en-kvartettinn lék, 3 stúlkur
sungu og þeir frægu Soren Pil-
mark og Per Pallesen, sem unnið
hafa verðlaun sjónvarpsstöðva í
Evrópu, ráku lestina.
Afhending gjafa í
ráðhúsi Odense
Sem að líkum lætur fékk Od-
ensebær ótal gjafír á 1000 ára
afmælinu. Þær vom afhentar 17.
marz og tók það marga klukku-
tíma. Innan við salinn, þar sem
dóttir, Guðni Stefánsson og Guð-
björg Ásgeirsdóttir og Guðmund-
ur Oddsson og Sóley Stefáns-
dóttir. Afhenti Kristján bæjar-
stjóri afmælisgjöfína til Odense,
en það var Skarðsbók. Sómdi sú
dýrmæta gjöf sér vel innan um
ólíkustu listmuni, bækur og blóm-
akörfur á geysilöngu gjafaborð-
inu. Sjónvörp til notkunar í
sjúkrahúsum bámst líka í tuga-
tali þ.á m. frá japönskum fram-
leiðendum.
Hvarflaði raunar að áhorfand-
anum, hvar hægt væri að koma
öllu þessu fyrir. En ráðhúsið í
Odense er rúmgott. Torgið Flak-
haven þar fyrir framan breytti
nokkuð um svip þennan sama
dag, er Ingiríður drottning af-
hjúpaði listaverk eftir hinn aldna
myndhöggvara Robert Jacobsen,
en kóngurinn Friðrik VII sem
áður stóð þar á torginu, var flutt-
ur í Kongens Have.
Gjöf íslendinga-
félagsins í Odense
Síðdegis afhenti ung íslenzk
telpa klædd upphlut gjöf íslend-
Morgunblaðið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir
Stjóm íslendingafélagsins í Óðinsvéum frá vinstri: Jón Ingi Guðmundsson, Jón Ingi Arnason,
Katrín Olga Jóhannesdóttir, Guðrún Sturlaugsdóttir, Sigurður Sigurðarson, Þorsteinn Gunnlaugs-
son og Guðmundur Ólafsson.
brúnleitir litir, en svo fjölbreyti-
legir þó, að hún hefur ekki aðeins
lýsinguna á sjálfu landslaginu á
valdi sínu, en er einnig fær um
að ná ljósabrigðunum og láta
málverkin túlka, hvemig náttúran
talar til hennar. Og Donatelle
Micault í La Presse Francaise í
París: Mjög fáir málarar em fær-
ir um að sýna sál Ijallanna, túlka
hina stórkostlegu og villtu fegurð
þeirra. Margret Nielsen getur það
og gleður okkur með því að sýna
þessi sérstæðu hémð, sem svo fá
okkar hafa séð. Við vonumst eftir
annarri sýningu á áhrifamiklum
verkum hennar hér í París sem
fyrst.
Hátíðakvöld vinabæjanna
Að kvöldi 16. marz var hátíð-
asýning vinabæja Odense í Carl
Nielsen-salnum í Konserthúsinu,
en það er næst stærsta tónleika-
hús Danmerkur. Odense á fleiri
vinabæi en þá norrænu, enda
skreyttu fánar Japans, Bretlands,
Hollands og Rússlands sviðið auk
hinna norrænu. Verner Dalskov
borgarstjóri bauð viðstadda vel-
komna og gladdist yfir því, að
allir vinabæirnir gætu verið með
á 1000 ára afmælinu. En þeir eru
m.a.s. 2 í Svíþjóð.
Fyrst á dagskránni vom 4 börn
frá Funabashi, sem léku á fiðlur
og bassa. Þá söng Harald Bjorkoy
frá Þrándheimi við undirleik Mar-
grethe Stachiewicz. Rússinn Kot-
orovieh Bogodar frá Kiev lék á
fiðlu. Stúlknakórinn Sasa frá Öst-
ersund söng létt lög og 2 piltar
frá Groningen í Hollandi léku
klassísk gítarlög. Þá komu furðu-
fuglamir Wemer Bros frá Tam-
pere og léku á þvottabretti og
fleiri áhöld við mikinn fögnuð
áheyrenda.
Atriði Kópavogs var næst á
dagskrá, en það var sópransöng-
konan Kristín Sigtryggsdóttir,
sem söng 3 íslenzk lög við undir-
Morgunblaðið/Nils Mogensen
Skúli Fjalldal útskýrir áletrun gestabókarinnar fyrir Vemer
Dalskov borgarstjóra. Arndís Arna Hilmarsdóttir stendur á milli
þeirra.
Vemer Dalskov borgarstjóri og
samstarfsmenn hans tóku við
gjöfunum, svignuðu borð undan
veizlumat, sem öllum stóð til boða
langt fram á kvöld.
I hópnum frá vinabænum
Kópavogi vom auk Kristjáns Guð-
mundssonar bæjarstjóra og Hjart-
ar Pálssonar formanns norrænu
deildarinnar og eiginkvenna
þeirra 4 bæjarfulltrúar ásamt eig-
inkonum: Heimir Pálsson og Guð-
björg Sigmundsdóttir, Richard
Björgvinsson og Jónína Júlíus-
ingafélagsins til borgarinnar, en
það var myndarleg gestabók af
hagleiksmanninum Sigurði M.
Sólmundarsyni. Bókin er úr
íslenzku birki og er brennd mynd
af Óðni með Hugin og Munin sinn
á hvorri öxl framan á spjaldinu,
en áletmn innan á. Litla stúlkan,
sem afhenti Verner Dalskov gjöf-
ina, heitir Arndís Anna Hilmars-
dóttir og var móðir hennar, Sigríð-
ur Brynja Sigurðardóttir, með
henni. Birtist mynd af Árndísi
með borgarstjóranum á baksíðu
Ifyns Stiftstidende.
160 íslendingar höfðu ritað
nöfn sín í gestabókina daginn
áður og vildu með því þakka borg-
inni móttökur og notalega dvöl.
Skúli Fjalldal flutti ávarp fyrir
hönd félagsins og sagði gestabók-
ina vera táknræna gjöf. Islending-
ar vildu gefa það bezta, sem þeir
ættu, þ.e. handrit til að minna á,
að Danir skiluðu handritunum
heim; gestabók, því hinir mörgu
námsmenn væm gestir í borginni
2—3 ár í senn, og í gær vom það
afmælisgestir, er skrifuðu nöfn
sín í bókina. Skúli lýsti áletrun-
inni, en þar segir frá Óðinsey á
Fjóni í Heimskringlu Snorra. Bað
Skúli að lokum borgarstjóra að
varðveita handrit þetta um
ókomna framtíð og biðja íslenzka
gesti borgarinnar rita nöfn sín í
bókina.
I boði Bents A. Koch
ritstjóra og íslandsvinar
FVéttaritari slóst í för með
Kópavogsbúum, en þeir þágu boð
Bents A. Koch á ritstjómarskrif-
stofum Ffynsk Stiftstidende. Hann
þarf ekki að kynna fyrir Islending-
um, því að við munum þátt hans
í handritamálinu. Hann er sænsk-
ur í aðra ættina, en samt segist
hann líta á ísland sem annað föð-
urland sitt. Nefndi ritstjórinn
marga vini sína á íslandi fyrr og
síðar og kallaði sig eins konar
sendisvein milli frammámanna í
handritamálinu. Minntist hann
einkum tveggja atvika frá þeim
ámm.
Bent A. Koch nefndi í ræðu
sinni fleiri afskipti sín af íslenzk-
um málefnum, svo sem söfnunina
til Skálholtskirkju og vegna Vest-
mannaeyjagossins, uppbyggingu
Norræna hússins í Reykjavík og
að hann væri formaður Sjóðsins
fyrir danskt-íslenzkt samstarf.
Þakkaði ræðumaður gjafír Kópa-
vogs, sem vom íslenzkar þjóðsög-
ur á dönsku og afmælispeningur
bæjarins.
Þá lýsti Bent A. Koch, sem er
bæði ritstjóri og framkvæmda-
stjóri Fyns Stiftstidende, blaði
sínu nokkuð, en það er næst-
stærsta danska dagblaðið utan
Kaupmannahafnar og er gefíð út
í 111 þúsund eintökum um helgar
og hefur 500 starfsmenn. Brátt
mun blaðið flytja í geysistórt blað-
hús, sem mun kosta um 60 millj-
ónir danskra króna að byggja.
Heimir Pálsson bæjarfulltrúi
þakkaði móttökumar og ostakök-
uraar góðu og lýsti yfír ánægju
sinni með norrænt samstarf.
Ræddi hann nokkuð um handrita-
málið og hrósaði ritstjóranum fyr-
ir hlut hans í því, öll önnur norræn
mál væm aukaatriði hjá handrita-
málinu. Færði Heimir Bent A.
Kock barmmerki Kópavogs að
gjöf.
„Odense, oplagt til
eventyr“
Þessi setning er yfírskrift 1000
ára afmælis Odense, en hátíða-
höld vegna þess munu standa allt
árið. Aðalhátíðavikunni lauk þó í
dag, laugardag, enda sjálfur af-
mælisdagurinn 18. marz. Þann
dag náði hátíðin hámarki, er
Margret drottning og Hinrik prins
heiðmðu borgina með nærvem
sinni. Mikið var um dýrðir allan
daginn, sem hófst með hátíða-
guðsþjónustu í Dómkirkjunni og
lauk með stórkostlegri blysför og
flugeldasýningu.
I dag opnaði Margret drottning
Carl Nielsen-safnið í Konserthús-
inu, þar sem munir hins fræga
tónskálds og konu hans, Anne
Marie Carl Nielsen, sem var
myndhöggvari, era varðveittir.
Síðan vom fjölbreyttir Carl Niels-
en-tónleikar í salnum, sem kennd-
ur er við nafn hans, en tónskáldið
fæddist hér á Fjóni.
Mikið er enn eftir af afmælisár-
inu og er hátíðahöldin enda
síðasta dag ársins, verða fy'öl-
margir búnir að gista Odense og
hrífast af þessari fallegu borg,
sem hefur í minningu H.C. And-
ersens gert hinn stolta hvíta svan
að tákni sínu. — G.L.Ásg.