Morgunblaðið - 29.03.1988, Page 44
ítftífr XÍIAM P<? flHOAOmniHd OTO?A,IHMUn5IOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1988
CFTIR flRTHUR ÍÍ1ILL6R
11. sýning miðvikud. 30. mars kl. 20.30.
12. sýning fimmtud. 31. mars kl. 20.30.
Sýningum fer að fækka.
MIÐASALA
iÁ
mmm 96-24073
iQKFéLAG AKUREYRAR
Páskar
Páska.............skraut
Páska........... kerti
Páska.........serviettur
Fermingargjafir o.fl.
Opið laugardaga 10-12.
KOMPAN
SKIPAGÖTU 2 • AKUREYRI
SÍMI 96-2 59 17
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiaa Akurevrar
BÍLALEIGA
með útibú allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Golfklúbbur Akureyrar:
Atvinnumót og Arctic Open bera hæst
Morgunblaðið/RÞB
Frá vinstri eru: Aðalheiður Alfreðsdóttir, Úlfhildur Rögnvaldsdótt-
ir, Inga Magnúsdóttir og Rebekka Guðmann.
IÐKENDUM golfiþróttarinnar
hefur fjölgað mjög á Akureyri
undanfarin fjögur ár. Einnig hef-
ur ásókn útlendinga aukist mikið.
Því var svo komið að 1986 sá
stjóm Golfklúbbs Akureyrar að
ekki yrði komist hjá stækkun golf-
skála. Þann fjórða apríl i fyrra
hófust framkvæmdir við 250 fer-
metra viðbyggingu og er skemmst
frá því að segja að 26. maí 1987,
eða réttum sjö vikum eftir að
framkvæmdir hófust, var húsið
vígt.
Það var því mikið áfall fyrir kylf-
inga hér norðanlands þegar þann 24.
janúar sl. kviknaði í skálanum og
nánast allt innanhúss éyðilagðist.
Ekki lögðu golfáhugamenn þó árar
í bát við þau tíðindi og strax daginn
eftir var hafist handa við endurbygg-
ingu og var Slippstöðin hf. fengin
til verksins ásamt félögum í GA sem
segja má að hafi lagt nótt við dag
við verkið. Þann 19. mars sl. gátu
félagar svo fagnað endurreistum
skála. Ekki er skálabygging þó einu
framkvæmdir GA því mikið átak
hefur verið gert í að fegra og bæta
völlinn. Á síðasta ári voru gróðursett
um 10.000 tré og eru tré á svæði
GA nú um 50.000 talsins, einnig
voru byggðir teigar og miklar fram-
kvæmdir unnar við framræslu. Þá
er ótalið að nú er á lokastigi bygging
200 fermetra vélageymslu þar sem
verður aðstaða til viðgerða svo og
kaffistofa fyrir vallarstarfsmenn.
Ekki hefði verið mögulegt að fram-
kvæma allt þetta ef ekki hefði kom-
ið til geysimikil sjálfboðavinna klúbb-
félaga, en láta mun nærri að hún
sé nú orðin um 10.000 tímar.
Bæjarstjóm og öðrum gestum var
boðið að skoða endurbygginguna sl.
föstudag og er óhætt að fullyrða að
verkið sé fagmannlega og vel unnið.
Jafnframt kynnti formaður GA,
Gunnar Sólnes, það sem efst væri á
baugi í mótahaldi í sumar og ber þar
vissulega hæst eitt af opnu Evrópu-
mótunum í golfi. „Mótshaldið er til-
valið tækifæri til að fá jákvæða
umfjöllun um land og þjóð á erlend-
um vettvangi og viljum við gjaman
stuðla að því að breyta þar með
ímynd okkar út á við, sem hefur að
undanfömu speglast ( hvalveiðidrápi
og öðrum neikvæðum þáttum. Þá er
mótið auglýsing fyrir Akureyrarbæ
og á líklega eftir að stuðla að fjölgun
ferðamanna hingað norður."
Atvinnugolfmót
efst á baugi
Atvinnugolftnótið ber heitið „The
Ladie’s Icemasters 1988“ og fer fram
dagana 4.-7. ágúst nk. Þátttakend-
ur, sem allir eru kvenmenn, verða
um 80 til 90 talsins, og þeirra á
meðal eru bestu atvinnugolfkonur
heims svo sem Dale Reid frá Skot-
landi, Laura Davies frá Englandi,
Corinne Dibnah frá Ástralíu og fleiri.
Ástæður fyrir því að Golfklúbbi Ak-
ureyrar var falið að annast þetta
mót má rekja til þess að GA hefur
á undanfömum árum unnið mark-
visst að kynningu á golfvelli sínum
að Jaðri á erlendum vettvangi. Gefn-
ir hafa verið út auglýsingabæklingar
og þeim dreift um víða veröld m.a.
í samvinnu við Flugleiðir hf. og
Ferðaskrifstofuna Úrval. Á sl. sumri
bauð klúbburinn Neil Elsee aðstoðar-
ritstjóra tímaritsins Golf World, sem
er stærsta og útbreiddasta golftíma-
rit Evrópu, að taka þátt í Arctic
Open og skrifaði hann grein um
mótið sem vakti mikla athygli. í
framhaldi af þessu lét samband at-
vinnugolfleikara, The Professional
Golfer’s Association, gera úttekt á
18 holu golfvöllum hér á landi og
var Jaðarsvöllurinn einn settur á
skrá hjá þeim sem keppnisvöllur.
Opnu Evrópumótin, bæði í karla-
og kvennaflokki, vekja jafnan mikla
athygli og má því gera ráð fyrir
fjölda fréttamanna frá blöðum, tíma-
ritum og sjónvarpsstöðvum, sem
munu fylgjast með mótinu. Þá koma
aðilar frá fyrirtækinu Total Sport
Management sem annast skipulagn-
ingu mótsins. Einnig verða hér aðilar
frá sambandi atvinnugolfleikara sem
sjá um stjómun og framkvæmd
mótsins. Forráðamenn GA búast við
að mótið verði hér árviss viðburður
ef vel tekst til nú í byijun. Til þess
að svo megi verða þarf GA stuðning
annarra því kostnaður við slíkt móts-
hald nemur milljónum króna.
Arctic Open
GA heldur þriðja Arctic Open
mótið dagana 24. og 25. júní nk.
Mótið, sem í kynningu á erlendum
vettvangi ber yífirskriftina „Midnigt
Golf in Iceland, The Arctic Open",
hefur tvíþættan tilgang. í fyrsta lagi
að vekja athygli á golfiþróttinni við
sérstakar aðstæður á nyrsta 18 holu
golfvelli heims og í örðu lagi að auka
ferðamannastraum til Akureyrar á
tíma sem er utan háannatíma í mót-
töku erlendra ferðamanna.
Leiknar verða samtals 36 holur á
tveimur dögum og er fyrirkomulagi
þannig háttað að allir þátttakendur
verða við keppni á golfvellinum um
miðnætti, en á þeim tíma sólar-
hringsins eru erlendir golfleikarar
hreint ekki vanir golfleik. Undirbún-
ingur fyrir Arctic Open hefur staðið
frá því í -október sl., og í samvinnu
við Crval hefur kynningarbæklingur
keppninnar ásamt ferðatilhögun ver-
ið sendur samtals 20 ferðaskrifstof-
um í Evrópu og Bandaríkjunum og
til golfklúbba vítt og breitt. Viðbrögð
eru góð, en stefnt er að þátttöku 30
erlendra gesta og mótið er að sjálf-
sögðu opið íslenskum golfleikurum.
Kodak
Express
litaframköllun
Tediömynflför?
Hafnarstræti 98 - Sími 96-23520
Kröfuhafar Haga hf. fá
10% krafna sinna greiddar
samkvæmt nauðasamningnm
NÁÐST hafa nauðasamningar á
milli Haga hf. og kröfuhafa fyr-
irtækisins um að Hagi hf. greiði
kröfuhöfum aðeins 10% af lýst-
um kröfum þeirra í fyrirtækið.
Kröfuhafar voru um 30 talsins
og námu kröfur í fyrirtækið 24
milljónum króna. Eignir þess
voru hinsvegar ekki nema upp á
600.000 krónur og sættust kröfu-
hafar því á tíunda hluta eigna
sinna úr fyrirtækinu, eða um 2,4
milljónir króna. Með þessu fyrir-
komulagi gengur endanlegt
gjaldþrot fyrirtækisins til baka.
Amar Sigfússon skiptaráðandi
sagði í samtali við Morgunblaðið
að haustið 1986 hefði fyrirtækið
verið lýst gjaldþrota og hafði þá
starfað f rúm 20 ár. Fyrirtækið
framleiddi svokallaðar Haga-eld-
húsinnréttingar og var aðaleigandi
þess Haukur Ámason. Amar sagði
að nauðasamningaleiðin væri að
aukast nú hin síðustu ár. Þessi leið '
hefði nánast aldrei verið farin nema
upp á síðkastið þó heimildin hafi
verið í lögum síðan 1924. Kröfu-
hafar mætu það oft á þá leið að
annaðhvort fengist greiddur hluti
krafna eða alls ekkert. Að öllum
líkindum þyrftu aðrir aðilar að
koma inn í það sem eftir stæði að
fyrirtækinu til að greiða þau 10%
sem kröfuhöfum ber samkvæmt
nýgerðum samningi þar sem eignir
fyrirtækisins væru þetta litlar.
Amar sagði að nauðasamningur
væri ákveðin aðgerð þar sem skuld-
ari næði samningum við kröfuhafa
sína um að greiða ákveðinn hundr-
aðshluta af lýstum kröfum gegn
niðurfellingu annarra krafna sem í
þessu tilfelli næmu 90% af heildar-
kröfunum, eða sem svarar til 21,6
milljóna króna. Skuldari myndi
jafnframt sleppa við gjaldþrot og
gæti hafist handa að nýju með
hreint borð.
♦ , * ♦
* » *
ASKIÐUM i SKEMMTIEC MER
í Hlíðarfjalli er gott færi og nægur snjór.
v (0 11
O)
03
TD
_o3
"cö
xO
‘cl
1 O
Ath.: MUNIÐ FLUGLEIÐATRIMMIÐ 3.APRÍL OG SKÍÐAMÓT ÍSLANDS 14.-17. APRÍL
‘ 4