Morgunblaðið - 29.03.1988, Síða 66
66ra
MORGUNBLAÐIÐ,- ÞRÍÐJUDAGUR 29jrMA«Z<l'988 ■'
Minning:
Sveinn Guðnnmds■
son fv. forstjóri
Fæddur 27. ágúst 1912
Dáinn 21. mars 1988
Sveinn Guðmundsson, fyrrver-
andi forstjóri Vélsmiðjunnar Héð-
ins, andaðist í Landakotsspítala 21.
mars síðastliðinn, 75 ára að aldri.
Vélsmiðjan Héðinn var starfs-
vettvangur Sveins Guðmundssonar
alla hans starfsævi. Hann kom
þangað sem unglingur og varð lærl-
ingur í rennismíði og lauk prófi í
þeirri iðngrein 1933. Hann nam
síðan vélfræði við Tekniska Instit-
utet í Stokkhólmi og lauk þaðan
prófí 1936, en um sama leyti voru
í Svíþjóð við _ skólagöngu Helga
Markúsdóttir ívarssonar og eldri
systir hennar, Guðrún. Arið 1937,
ári eftir að Sveinn lauk námi og
kom aftur til starfa í Héðni, áttust
þau Helga Markúsdóttir. Fáum
árum síðar voru þeir stofnendur og
sameigendur fyrirtækisins, Bjarni
Þorsteinsson og Markús ívarsson,
báðir fallnir frá, langt um aldur
fram, Bjami fyrst, aðeins um fer-
tugt, en þremur árum síðar Mark-
ús, innan við sextugt. Tók Sveinn
þá einn við framkvæmdastjórn Héð-
ins 1943, og stýrði fyrirtækinu
nokkuð á fjórða áratug, en nú
síðustu árin, eftir að heilsa Sveins
var þrotin, hafa synir hans þrír lagt
þar hönd að verki, undir forystu
elsta sonarins, Sverris. Nokkru eft-
ir fráfall Helgu Markúsdóttur
kvæntist Sveinn aftur, Önnu Er-
lendsdóttur, og áttu þau nokkur góð
ár saman, en heilsa Sveins fór þá
að bila og hin síðustu ár hafa verið
erfíð, en hvað eru erfíð ár? Það eru
einnig góð ár þegar góður maki
heldur heilshugar í hönd sem þarfn-
ast styrks, og styrkur Önnu hefur
í engu hvikað við hinar erfiðustu
heilsufarsaðstæður.
Orð þessi eru skrifuð til þess að
flytja Sveini Guðmundssyni kveðju
og þakkir frá tengdafólki hans á
Sólvallagötu 6, og þá ekki síður
vegna tengdamóður hans, Kristínu
Andrésdóttur, þótt nú nálgist 20.
árið frá fráfalli hennar. Sveinn var
Kristínu ljúfur og tillitssamur
tengdasonur, og þegar eldhugi á í
hlut, getur brugðið til ýmissa átta
um slíkt, en það bar ekki við um
viðhorf hans til Kristínar, sem hann
virti og þótti vænt um, að verðleik-
um vissulega.
Þegar ég kynntist Sveini, fyrir
nærri fjórum áratugum, er _ ég
kvæntist yngri systur Helgu, voru
böm hans þijú, Sverrir, Markús og
Kristín, er þá vom fædd, enn á
bamsaldri, en Snjólaug og Guð-
mundur fæddust síðar. Var svo sem
vænta má mikill samgangur milli
fjölskyldnanna, og þá ekki síður við
Astmund bróður Sveins, en með
þeim bræðmm var fágætleg sam-
vinna og samhugur, og var þeim
báðum mikill styrkur að, ekki síður
af því að þeir vom um margt ólík-
ir, þótt báðir væm hinir hæfustu
menn. Aður var nefnt hver eldhugi
Sveinn var og er ekki vafí á að
hann var með ráðsnjöllustu mönn-
um í öllum framkvæmdum og sá
öðmm betur hvers var þörf og
hverra vinnubragða þurfti við. Hitt
duldist mörgum, af því að hann gat
verið snöggur upp á lagið, að hann
var í raun bæði hlýr maður og við-
kvæmur. Eitt atvik, sem mér finnst
ekki mega gleymast og lýsir öllum
þessum eiginleikum, var þegar hér
á ámm þrengdi nokkuð að í jámiðn-
aði og hann fann að ýmsir hinir
færastu starfsmenn fyrirtækisins,
sem ekki höfðu iðnréttindi, gátu átt
það á hættu á að missa störf sín
ef réttindamenn sæktu eftir. Sveinn
stofnaði þá í skyndingi smá-iðn-
skóla inni í fyrirtækinu og dreif
nokkra af þessum nýtu mönnum til
að setjast á skólabekk, suma á
miðjum aldri eða meir, og em áhöld
um hveijum þetta var meira átak,
honum að hvetja þá svo að dygði
eða þeim að setjast á skólabekk.
En þetta tókst, og íslenskri iðnaðar-
mannastétt bættust nokkrir full-
gildir iðnaðarmenn. Það er gott að
eiga, meðal annars, svo góðan
bautastein.
Baldur Möller
í dag er til moldar borinn Sveinn
Guðmundsson, forstjóri. Hann var
fæddur á Eyrarbakka, sonur hjón-
anna Guðmundar bóksala þar og
bókhaldara Guðmundssonar og
Snjólaugar Jakobínu Sveinsdóttur.
Sveinn stundaði iðnnám í Reykjavík
og lauk prófí í rennismíði 1933 og
prófi í vélfræði frá Tekniska Inst-
itutet í Stokkhólmi 1936. Frá þeim
tíma starfaði hann við Vélsmiðjuna
Héðinn og varð 1943 meðeigandi í
fyrirtækinu og forstjóri þess. Hann
var jafnframt forstjóri Stálsmiðj-
t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, t Bestu þakkir til allra fyrir samúð og hlýhug viö andlát og jarðarför
THOMAS RICHARD BEHEN, GUÐJÓNS SIGURÐSSONAR
lést á heimili sínu í Chantilly, Virginia 26. mars '88. frá Svæöi,
Jaröarförin fer fram miövikudaginn 30. mars. Dalvik.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Hjördís Einarsdóttir Behen, Sérstakar þakkir færum við sjúkrahúspresti og starfsfólki á gjör- gæsludeild Borgarspítalans.
Kristin Una Behen, Barbara Behen Colella, Unnur Sigurðardóttir,
Mary E. Colella, Michael E. Colella. börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auösýnda samúð og vinsemd vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, fööur, fósturfööur, tengdafööur og afa,
GUÐMUNDAR SKÚLA ZAKARÍASSONAR,
Vesturgötu 113,
Akranesi.
Sérstaklega þökkum viö starfsfólki E-deildar Sjúkrahúss Akraness
fyrir umönnun á liönum árum,
Þórey Jónsdóttir,
Erla Guömundsdóttir, Gfsli S. Sigurðsson,
Viðar Guömundsson, Jenný Marteinsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð og vináttu viö andlát og útför
sonar míns, bróður okkar, mágs og frænda,
LEIFS GÍSLA RAGNARSSONAR,
Fremri-Hundadal.
Guö blessi ykkur öll. __
Málfrföur Kristjánsdóttir,
Kristfn Ragnarsdóttir,
Ingvar Ragnarsson, Hanna Baldvinsdóttir,
Soffía Ragnarsdóttir, Hörður Björnsson,
Ólafur Ragnarsson, Snæbjörg Bjartmarsdóttir
og systkinabörn.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug viö andlát og útför fööur
okkar, tengdafööur, afa og langafa,
WILLIAMS ÞORSTEINSSONAR
frá Ólafsfirði.
Þorsteinn Williamsson,
Rósa Willlamsdóttir,
Sigríður Williamsdóttir,
Eva Williamsdóttir,
Freydís Bernharösdóttir,
Danfel Williamsson,
barnabörn
Sofffa Þorvaldsdóttir,
Gunnar S. K. Sæmundsson,
Andrés Guömundsson,
Kristfn Egilsdóttir,
og barnabarnabörn.
t
Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug viö
andlát og útför móður minnar, tengdamóöur, ömmu okkar og
langömmu,
INGIBJARGAR SIGURGEIRSDÓTTUR.
Katrfn Irvin, Sigurður Svavarsson,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Alexander Bridde,
Gróa M. Sígurðardóttir, Erling Eiríksson,
Einar Sigurðsson
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér samúð og vinarhug
viö andlát og útför eiginkonu minnar,
SÓLRÚNAR VILHJÁLMSDÓTTUR,
Hringbraut 89,
Keflavfk.
Pótur Benediktsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og
útför eiginkonu minnar og móöur okkar,
KRISTÍNAR JENNÝAR JAKOBSDÓTTUR,
Neðstabergi 7.
GunnarÁ. Ingvarsson og synir.
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Marmom/Gmit
Steinefnaverksmiöjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
unnar hf. og Jámsteypunnar hf.,
en Héðinn átti vemlegan hlut í þeim
fyrirtækjum.
Sveinn kvæntist Helgu Markús-
dóttur 1937 og áttu þau 5 böm.
Helga andaðist 1971, en eftirlifandi
konu sinni, Önnu Erlendsdóttur,
kvæntist Sveinn 1973!
Sveinn Guðmundsson var, jafn-
framt því að gegna forstjórastarfí
í einu stærsta iðnfyrirtæki landsins,
skeleggur talsmaður íslensks iðnað-
ar. Var því eðlilegt, að til hans
væri leitað og honum falin marg-
háttuð trúnaðarstörf. Þannig var
hann formaður framkvæmdanefnd-
ar iðnsýningarinnar 1952, í stjóm
Félags ísl. iðnrekenda mörg ár, í
Rannsóknarráði ríkisins 1965—
1971, í stjóm Iðnaðarmálastofnun-
ar íslands 1956—1962 og í nefnd,
sem undirbjó stofnun Iðnaðarbank-
ans 1951. Em nú margir horfnir
úr því vaska liði, sem börðust fyrir
stofnun Iðnaðarbankans. Sveinn
tók sæti í fyrsta bankaráðinu og
sat þar til 1968.
Ég kynntist Sveini Guðmunds-
syni fyrst að ráði, þegar ég kom
til starfa í Iðnaðarbankanum 1963.
Fann ég þá hvílíkur athafnamaður
og skömngur Sveinn var. Þurftum
við bankastjórar oft til hans að leita
með ráðgjöf vegna framkvæmda,
sem bankinn stóð þá í við stofnun
og byggingu útibúa. Var Sveinn að
jafnaði hollráður og skjótráður. Þá
er eftirminnilegt hvem hlut hann
átti í endurbyggingu Iðnaðarbanka-
hússins eftir bmnann í Lækjargötu
10. mars 1967. Kom sér þá vel
reynsla hans, verkkunnátta og
framtakssemi.
Sveinn Guðmundsson hafði yndi
af fögmm listum, einkum málara-
list. Gætti þar eflaust áhrifa frá
tengdaföður hans Markúsi ívars-
syni, sem lengi verður minnst vegna
stuðnings hans við forgöngumenn
íslenskrar myndlistar. Trúr þessum
áhuga studdi Sveinn það, að Iðnað-
arbankinn prýddi húsakynni sín
með góðum myndum, og enn er í
gildi tillaga hans í þeim efnum, sem
heimilaði bankastjómm að festa
kaup á listaverkum.
Sveinn Guðmundsson tók virkan
þátt í starfí Sjálfstæðisflokksins og
var formaður landsmájafélagsins
Varðar 1963—1967. Hann var al-
þingismaður 1965—1971. í stjóm-
málastarfínu vom það iðnaðarmál-
in, sem áttu hug hans allan, enda
naut hann eindregins stuðnings iðn-
aðarmanna og iðnrekenda.
Það var í senn mjög skemmtilegt
og lærdómsríkt að vinna með Sveini
Guðmundssyni. Hann var kvikur í
hreyfíngum, gamansamur, fljótur
að skilja kjamann frá hisminu og
framtakssamur svo af bar.
Þess vegna var auðvelt að skilja,
að veikindi hans hin síðari ár væm
honum ennþá þungbærari, þar sem
hann varð að vera fjarri öllum fram-
kvæmdum.
Á þessum erfíða tíma naut hann
einstakrar umhyggju konu sinnar
Önnu. Flyt ég henni, börnum Sveins
og öðmm vandamönnum einlægar
samúðarkveðjur okkar Ragnheiðar.
Bragi Hannesson
Blómastofa
FriÖjinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opiö öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.