Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Sýning Gerðar
Myndlist
Valtýr Pétursson
í hinu nýja sýningarplássi Ny-
höfn, hefur verið efnt til sýningar
á verkum Gerðar Helgadóttur, en
hún var einn af brautryðjendum
abstrakt myndlistar hér á landi,
þrátt fyrir þá staðreynd, að hún
vann mestallan starfstíma sinn er-
lendis og var þar á bekk með fram-
sæknustu listamönnum í skúlptúr á
sínum tíma. Gerður hefði orðið sex-
tug þann 11. apríl, ef henni hefði
enzt aldur til. En eins og flestir
vita varð hún aðeins 47 ára og lézt
því langt um aldur fram. Ég, sem
þetta rita, var svo heppinn að eign-
ast vináttu Gerðar og tel það til
þess ánægjulegasta sem hent hefur
mig um ævina. Það er því enn
ánægjulegra að fá að sjá skúlptúra
hennar enn einu sinni og það í því
ágæta umhverfí, sem raun ber vitni.
Það er nefnilega merkilegt, hvað
marmaragólfið í Nýhöfn fer vel við
hina svörtu jámskúlptúra, og sýn-
ing Gerðar er öll ágætlega valin og
auk þess komið fyrir af mikilli
smekkvísi og tilfinningu fyrir sjálf-
um verkunum. Þetta eru viðkvæm
verk og. fíngerð. Þarfnast þar af
leiðandi sérstakrar umgengni og
varkámi.
Þetta er falleg sýning í heild, og
klippimyndir og teikningar falla
ágætlega að aðal uppistöðu sýning-
arinnar, sjálfu jáminu. Nú tala
menn um rými og rannsóknir á því
sviði, en til gaman minnist ég á það
hér, að er Gerður hélt sína fyrstu
sýningu í gamla listamannaskálan-
um fyrir löngu, skrifaði ég nokkrar
línur í sýningarskrá, og var mikið
grín gert að þeim skrifum vegna
þess, að ég tók þannig til orða, að
Gerður geislaði tómið. Það voru
aðrir tímar og annað mannfólk í
þá daga. Gerður varð fyrst manna
hér á landi til að notfæra sér jám
í skúlptúr, og síðan fylgdu Ásmund-
ur og Siguijón í kjölfarið. Allir þeir,
sem eitthvað vita um tímabilið
1950—57 í íslenzkri listasögu eru
mjög vel vitandi um þátt Gerðar
Helgadóttur í þeim miklu breyting-
um, sem áttu sér stað f íslenzkri
myndlist á þeim tíma.
Gerður var mikilhæf listakona,
Steindur gluggi eftir Gerði
Helgadóttur í eigu Lista- og
menningarsjóðs Kópavogs.
Á Norðurlöndum ertu í senn á heimavelli og úti í heimi. Þar
ganga hlutirnir greiðlega, andrúmsloftið er þægilegt og náttúran
stórfengleg. Flugleiðir fljúga alls 37 sinnum I viku til Norðurlanda,
á hverjum degi vikunnar. Áfangastaðirnir eru sex:
Kaupmannahöfn (14), Osló (8), Bergen (3), Stokkhólmur
(8), Gautaborg (3), Helsinki (1).
Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá
söluskrifstofum Flugleiða, ferðaskrifstofum og umboðsmönnum
um land allt.
FLUGLEIDIR
-fyrírþíg-
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2,
Hótel Esju og í Kringlunni. Upplýsingasími 25 100.
Ferð tU móts-
við frændgarð
sem vann í fjöldamörg efni. Sýning-
in í Nýhöfn er hvergi tæmandi,
hvað það snertir, enda ekki til þess
ætlazt. Þama em 14 skúlptúrar,
hver öðmm skemmtilegri, og gefa
ágæta hugmynd um þetta tímabil
í list Gerðar. Síðan koma aðrar
myndir unnar í ýmis efni.samklipp-
ur, dúkristur og teikningar. Einnig
em þama tveir steindir gluggar,
en Gerður vann gríðar mikið á því
sviði, og em gluggar hennar bæði
hér á landi og víða erlendis, en alls
em 35 verk þama samankomin.
Það er List- og menningarráð Kópa-
vogs, sem stendur að þessari sýn-
ingu Gerðar, en þar í bæ er nú
verið að byija á safnbyggingu, sem
mun bera nafn listakonunnar.
Það mætti skrifa langt mál um
list og feril Gerðar Helgadóttur sem
myndhöggvara, en slíkt yrði of
langt mál hér og því aðeins farið
fáum orðum um þessa sýningu.
Gerður var um tíma lang þekktasta
myndlistakona af íslenzku bergi
brotin. Það var sár missir að sjá
hana safnast til feðra sinna svo
unga í anda og að ámm sem raun
bar vitni. Hún átti svo margt ógert,
en hafði afrekað svo mikið.
Sumar-
dagurinn
fyrsti í
Kópavogi
I ÁR sér skátafélagið Kópar um
hátíðahöldin fyrir Kópavogsbúa.
Dagskráin hefst að venju með
skátamessu í Kópavogskirkju
klukkan 11. Skrúðgangan fer frá
Menntaskólanum kl. 13.30 en
hátíðahöldin hefjast um kl. 14 í
íþróttahúsi Digranesskóla.
Sumardagurinn fyrsti er dagur
bamanna og taka skemmtiatriðin
mið af því. Hallveig Thorlacius kem-
ur með brúðu, Kársnesskólakórinn
syngur, nemendur úr dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar dansa,
skátamir sýna hvað þeir geta verið
skemmtilegir og Leikfélag Kópa-
vogs verður með uppákomu. Kynnir
er Sigurður Grétar Guðmundsson.
Þegar út kemur taka ungir hesta-
menn úr Gusti á móti hátíðargest-
um og leika listir sína á hestbaki
og verður bömunum ef til vill boðið
að setjast á bak.
Urtumar (mömmudeild Kópa)
verða með kaffí- og kökusölu í
íþróttahúsi Digranesskóla og í Fé-
lagsheimili Kópavogs.
(Úr fréttatilkynningu)
Talaðu við
ofefeur um
ofna
SUNDABORG 1 S.688588-688589