Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
29
veginum, þar sem flestir ferða-
mennimir em. Hann er þó ekki
lengra frá honum en það að enginn
getur sagt með sannfærandi rökum
að hann sé of langt í burtu, því að
hingað em aðeins 25 km frá
Varmahlíð og vegurinn allur lagður
bundnu slitlagi. Ekki síst þegar
haft er í huga hvað hægt er að
gera á Sauðárkróki og hvað hér er
boðið upp á. Þar er auðvitað fyrst
að geta ferðar út í Drangey, en
éinnig er Sauðárkrókur mjög vel í
sveit settur ef fólk hyggst fara fyr-
ir Skaga eða skoða sig um á Trölla-
skaga. Þá em hestaleigur hér og
öll almenn þjónusta, sem ferðafólk
getur vanhagað um.
Hvað við ætlum sjálf að gera
fyrir ferðafólk snýst einkum um
ýmiskonar afþreyingu á kvöldin. í
því sambandi má nefna að innifalið
í gistingunni á hótel og í svefnpoka-
plássi er frír aðgangur að golfvelli
og sundlaug, veiði og óvæntar
uppákomur undir borðhaldi. í því
sambandi höfum við leitað til nokk-
urra skagfírskra listamanna um að
koma fram og skemmta gestum.
Þá hyggjumst við verða með kynn-
ingu á skagfirskri myndlist, og úti
verðum við með sýnishom um torf-
hleðslu, en nú í vor stöndum við
fyrir námskeiðum í torfhleðslu þar
sem hinn kunni hleðslumaður Stef-
án Stefánsson í Brennigerði mun
leiðbeina. í móttöku verðum við
með upplýsingamiðlun fyrir ferða-
fólk og sýnishom af skagfírskri iðn-
framleiðslu. Þá bjóðum við upp á
kvöldferðir heim að Hólum, útreið-
artúra undir lágnættið og hægt
verður að leigja bát til siglinga á
Skagafírði.“
Leiðsögn um Skagafjörð og
viðamiklar kvöldvökur
Ætlið þið þá einungis að treysta
á tilfallandi heimsóknir ferða-
manna?
„Nei, síður en svo. Ef til vill ligg-
ur megin áhersla okkar í því að
bjóða hingað starfsmannafélögum
og félagasamtökum. í því sambandi
höfum við sett upp sérstaka dag-
skrá sem stendur í einn eða tvo
sólarhringa. Þar bjóðum við leið-
sögn um Skagafjörð, þar sem með-
al annars verður fetað í slóð feð-
ranna og þá einkum sögusvið Sturl-
ungu, og heim að Hólum. í því sam-
bandi er hin nýja útgáfa Sturlungu
mikill fengur. Ennfremur verður
fólki gefínn kostur á því að fara út
í Drangey.
Þá bjóðum við upp á sérstaka
kvöldvöku, þar sem ýmislegt er í
boði, svo sem fyrirlestur um Skaga-
§örð, tónlistarflutningur og fleira.
Við höfum nýlega sent frá okkur
kynningarbréf í þessu sambandi og
ekki er annað að sjá en viðtökur
séu góðar.
Eins og vonandi sést á þessu
erum við í okkar starfsemi að stór-
um hlut að höfða til íslendinga, en
auðvitað eru útlendingar jafn vel-
komnir. Erum við nú þegar komin
með talsvert af pönturium frá ferða-
skrifstofum fyrir erlenda ferðahópa,
og í sumar mun liggja frammi við
komustaði til landsins bæklingur
frá okkur."
Hyggist þið sjálf vinna við þenn-
an rekstur?
„Að sjálfsögðu munum við ráða
í þær stöður sem í þarf faglært
fólk og höfum við þegar gengið frá
því. Nokkrir hluthafar munu síðan
verða á meðal starfsfólksins en við
hin munum mynda nokkurskonar
varalið sem auðvelt verður að kalla
til, ef á þarf að halda, en okkar
daglegu vinnu er þannig háttað að
slíkt á að vera auðvelt í flestum
tilvikum."
Þetta verður eitt af góðu
ævintýrunum sem enda vel
Hvemig leggst starfsemin í ykk-
ur?
„Mjög vel. Þrátt fyrir vissa deyfð
hér yfír ferðamálum á undanfömum
ámm og tiltölulega litla kyriningu
á Skagafírði sem áningarstað í sum-
arfninu. Þessi hópur sem stendur
að Aningu er mjög samhentur, þrátt
fyrir það að við komum víðsvegar
að og höfum ólíkan bakgrunn. Það
tel ég í raun mikinn kost því allar
umræður okkar um það hvað gera
skuli og hvemig. standa skuli að
rekstrinum eru miklu fijórri fyrir
vikið. Eigum við nú þegar í handr-
aðanum langan hugmyndalista,
sem við munum ganga á í framtíð-
inni.
í vaxandi samkeppni um ferða-
manninn og þess forskots sem við
vitum að ýmsir aðrir staðir hafa,
gerum við okkur fyllilega grein fyr-
ir því að hér er um ákveðið ævin-
týri að ræða. Það er trú okkar að
þetta verði eitt af góðu ævintýrun-
um, sem enda vel eins og við vitum.
Á það vonandi jafnt við um ferða-
manninn sem sækir okkur heim og
okkur sjálf.“
Jóni Gauta er að lokum þakkað
spjallið. _ BB
Kort af aðalskipulagi Voga á Vatnsleysuströnd 1987-2007. Enn sem
komið er, hefur mjög lítið verið byggt austan gamla Keflavíkurvegar-
ins, sem liggur í gegnum byggðina á kortinu. Þar eru boðnar 10
lóðir undir atvinnuhúsnæði en langflestar íbúðalóðanna eru dreifðar
um byggðakjarnanum vestan vegarins.
ing að stækkun hans. Við búumst
við að framkvæmdum við hann
verði að fullu lokið innan 5 ára.“
Vilhjálmur sagði byggingakostn-
að álíka og á höfuðborgarsvæðinu
en byggingarleyfís- og gatnagerð-
argjald töluvert lægri, eða á milli 4
og 500 þúsund krónur á meðalein-
býlishús.
Lóðimar eru þegar til reiðu og
sagði Vilhjálmur töluvert hafa verið
um fyrirspumir og að fólk kæmi
og skoðaði en ekkert væri þó frá-
gengið enn. „Þetta þarf einhvem
tíma til að geijast með fólki en viss-
ara er að draga ákvörðunina ekki
of lengi því lóðimar eru á svipuðu
verði og þeir fyrstu hafa úr mestu
að velja. Okkur hefur fundist að
Vogamir séu stundum eins og
gleymdir, lóðaframboðið er leið til
að minna á okkur.“
Getum útvegað
Mack dráttar-og
vörubifreiðar með
hinumýmsu
útfærslum.
Þessar bifreiðar eru
ókeyrðar.
Hag-portsf.,
sími 92-12710.
Bílasímar 985-21615/985-25005.
UMBOÐSAÐILI:
Bílasalan Blik,
Skeifunni 8, Rvk.
Símar686477 og 686642.
FflRÐU OG KfKIPTU
BETRIBÍL
m
fí
Opið á
laugar-
dögum
Bflasala Guðfínns upplýsir:
Eldri bílar eru mikils virði ef þeir eru í
góðu lagi og skoðaðir.
Frúin hlcer í betri bíl frd
BILfiSÖLCJ GUÐFINNS