Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
27
Hasina Wajid.
en gert að taka við þessu Jiýja
riki, þar ríkti öngþveiti og sundur-
lyndi, samgöngukerfíð var í mol-
um, efnahagurinn í rústum eftir
stríðið. Og Mujibur fékk litlu áork-
að og virðist ekki hafa tekizt að
hrífa menn með sér til verka á
sama hátt og hann hafði gert sem
baráttuglaður stjómarandstæð-
ingur. Þegar á leið valdatíma hans
urðu margir til að saka Mujibur
sjálfan um valdníðslu, spillingu
og óreiðu og stirfni í samvinnu.
Samt er hann í minningu
Bangladesha, ásamt Ziaur Rah-
man sveipaður ljóma hetjudáða
og píslarvættis.
Þetta tjóði ekki að ræða við
Hasinu Wajid þama um kvöldið.
Svo að ég venti mínu kvæði í kross
og spurði hana um fjöldafundina
sem hún og Khalida virðast efna
til — sitt í hvom lagi vitanlega —
að jafnaði nokkrum sinnum í viku.
Hún sagði að menn Ershads hers-
höfðingja reyndu að koma í veg
fyrir þá með ýmsu móti og sjón-
varpið væri málpípa hershöfðingj-
ans og það sama gilti um blöðin.
Allt væri reynt til að torvelda
þeim að ná til fólksins.
Daginn áður hafði ég farið á
útifund sem hún hélt, þar sem
ungir og alvörugefnir menn hlu-
stuðu á ræðumenn sem voru að
„hita upp“ unz hún birtist. Þegar
hún birtist ætlaði allt af kollinum
að keyra af fögnuði. Ræða hennar
fékk miklar undirtektir og síðan
fór hópurinn niður í gömlu Dhaka
og hrópaði slagorð Awami-banda-
lagsins: „Við viljum atkvæðaseðla
— burt með byssukúlurnar." Ég
hafði ekki orðið vör við neina lög-
gæzlu á svæðinu og allt fór frið-
samlega fram. Hópurinn hlykkj-
aðist hrópandi eftir þröngum göt-
um og við litlu útibúðirnar stóðu
margir og fylgdust með eða sló-
gust í hópinn. Ég spurði hana um
það hvemig henni hefði þótt þessi
fundur. Mér hefði verði sagt að
tíu eða fímmtán þúsund manns
hefðu verið á honum.
Hún sagðist vera ánægð með
fundinn og á hann hefðu miklu
fleiri viljað koma. Hvort tveggja
hefði verið að menn Ershads hers-
höfðingja hefðu takmarkað ferðir
að fundarstaðnum og svo hitt að
Khalida Zia hefði endilega þurft
að vera með fund um svipað leyti
annars staðar.
Það hlaut að verða niðurstaða
mín, að þrátt fyrir þá andúð sem
allur þorri manna virðist hafa á
Ershad forseta, þrátt fyrir að
hann brýtur án þess að blikna
allar reglur lýðræðis sem honum
verður svo tíðrætt um, þrátt fyrir
spillingu og mútuþægni í æðri
stöðum, eymd og hörmungar íbú-
anna og djúpstæða óánægju —
þrátt fyrir þetta og margt fleira
virðist það einn stærsti þátturinn
af vanda Bangladesh, hversu
máttvana og ráðalaus stjómar-
andstaðan er. Vandamál landsins
verða ekki leyst með skrúðyrðum
aðila. Og annað virðist ekki í boði.
BÍLABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S.68 12 99.
Mátt þú sjáaf
332 krónum
á dag?*
Skutlan er eins og sniðin fyrir nútímafólk. Hún er
sparneytin, 5 manna og sérlega léttog lipurí um-
ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það
tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum
sem til þekkja.
*LANCIA SKUTLA kostar kr. 320 þús.kr. stgr.
Útborgun kr.80.000 eftirstöðvar greiðast á 30
mánuðum, kr.10.113 pr. mánuð að viðbættum
verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu
er ekki innifalinn. (Gengisskr. 15.3.88)
Ef svo er þá getur þú eignast
splunkunýja LANCIA SKUTLU!
Öpið laugardaga frá kl. 1 - 5.