Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
Tunglin o g tungan
eftírJón Óttar
Ragnarsson
Amar Hákonarson, umboðsmaður
gervitungladiska, skrifar grein í
Mbl. á dögunum og sendir mér tón-
inn.
Hann reynir að sjálfsögðu að beija
í bresti þessarar tegundar sjónvarps,
en gleymir því miður að fræða Islend-
inga um nokkrar almennar stað-
reyndir í leiðinni.
Það sem mestu skiptir er að gervi-
hnattasjónvarp nýtur alls staðar tak-
markaðra vinsælda nema í þeim lönd-
um þar sem ríkiseinokun tröllríður
ljósvakamiðlun eins ogt.d. í Noregi.
Ástæðan er einföld. Aðkeypt efni
er yfir 90% af dagskránni og yfír-
leitt a.m.k. 10 ára gamalt. Eigin
framleiðsla er einskorðuð við létt-
meti sem sjaldnast nýtur almennra
vinsælda.
Ekki bætir úr skák að allar gervi-
tunglastöðvar Evrópu riða til falls
vegna gegndarlauss taprekstrar.
Bendir allt til að gerbreytt tækni
(þ.á m. nýjar tegundir diska) sé
síðasta von þessa iðnaðar.
Gegn einokun
Gervihnattastöðvar, einkum Sky
Channel, hafa engu að síður gert
ótrúlegt gagn. Þetta fyrirtæki hefur
„Gervitunglasjónvarp á
fullan rétt á sér, eink-
um þar sem ríkiseinok-
un er enn í fullu gildi.
Hins vegar eiga að
gilda sömu reglur um
það eins og annað sjón-
varp og þ.á m. sú regla
að allt efni þeirra beri
að þýða og texta á góða
íslensku einsog gert er
á RÚV og Stöð 2. Regl-
an um að hægt sé að
dreifa þessu efni til allt
að 36 íbúða án textunar
er að mínu mati allt of
rúm því slík dreif ing
er orðin vísir að sjón-
varpsstöð og þar með
merki um undanhald.“
t.d. á eigin spýtur átt verulegan þátt
í að opna sjónvarpsmarkaðinn í Evr-
ópu.
Það er kaldhæðnislegt að árangur-
inn er aragrúi einkastöðva sem senda
út nýrra og betra efni sem hefur
dregið verulega úr áhuga almennings
á dagskrá gervihnattastöðvanna.
Við bætist að það er aðstandend-
um þessara fyrirtækja gífurlegt áfall
að allar vonir um verulega aukinn
samevrópskan auglýsingamarkað
hafa hrunið til grunna á síðustu 5
árum.
Þetta eru meginástæður þess að
tvær stærstu stöðvamar, Sky Chann-
el og Superchannel, eru að kikna
undan skuldahalanum og framtíð
þeirra er óviss svo ekki sé meira sagt.
Hvers vegtia léleg dagskrá
í gervihnattasjónvarp fer allt að
90% af fjármagni fyrirtækjanna í
tækjabúnað (fyrst og fremst í rekst-
ur á gervihnattarsambandi) og af-
gangurinn í dagskrárkaup.
Þessi hlutföll eru því sem næst
öfug miðað við það sem gerist í hefð-
bundnum sjónvarpsstöðvum á borð
við RÚV og Stöð 2 þar sem um 10%
fer í tækni og allt að 90% í dag-
skrána.
Þetta er m.a. ástæðan fyrir því
að gervitunglasjónvarp fær t.d. sýn-
ingarrétt síðast allra aðila, þ.e. eftir-
að myndin hefur verið sýnd í bíó,
Jón Óttar Ragnarsson
vídeó, áskriftarsjónvarpi og loks
ríkissjónvarpi.
Til samanburaðr fær áskriftar-
sjónvarp á borð við Stöð 2 kvikmynd-
ina á undan öllum öðrum tegundum
sjónvarps og þá venjulega a.m.k. 10
árum á undan gervihnattasjónvarpi.
Framtíð gervi-
hnattasjónvarps
Gervitunglasjónvarp á fullan rétt
á sér, einkum þar sem ríkiseinokun
er enn í fullu gildi.
Hins vegar eiga að gilda sömu
reglur um það eins og annað sjón-
varp og þ.á m. sú regla að allt efni
þeirra beri að þýða og texta á góða
íslensku einsog gert er á RÚV og
Stöð 2.
Reglan um að hægt sé að dreifa
þessu efni til allt að 36 íbúða án
textunar er að mínu mati allt of rúm
því slík dreifíng er orðin vísir að sjón-
varpsstöð og þar með merki um und-
anhald.
Varðveisla tungunnar er ekkert
gamanmál. Ég var nýlega í Edinborg
hjá frændum okkar Skotum. Þar
tala 80.000 manns skosku (gelísku).
Hinir sakna þess sárt að hafa glatað
tungunni.
Skotar eru a.m.k. eins stoltir af
sínu þjóðemi og íslendingar. Sú stað-
reynd að þeir glutruðu niður málinu
er aðeins ein af milljón ábendingum
til íslendinga að slaka hvergi á í
þessum efnum.
Lokaorð
Gervihnattasjónvarp á að sjálf-
sögðu fullan rétt á sér á íslandi sem
annars staðar, en það verður að lúta
sömu reglum og annað sjónvarp.
Alþingi hefur lögfest að ótextuðu
sjónvarpsefni megi ekki dreifa til
fleiri en 36 íbúða í einu kerfí. Allir
íslendingar eiga að leggjast á eitt
að þau lög verði ekki rýmkuð . ..
og ekki brotin heldur!
Höfundur er sjónvarpsstjóri
Stöðvar2.
Nú getur þú valið um Gevalia kaffi í tvenns
konar umbúðum. í Gevaliaflölskyldunni finnur
hver og einn kaffi við sitt hæfi. Hafir þú ekki
þegar kynnst gæðum Gevalia kaffisins - taktu
þá hiklaust harðan pakka- eða mjúkan.
NtJAR UMBUEHR
H
SOMU GÆDI
SAMAVERD
^ M. V
E-BrygK
l;AÍ>
- '.' -i
I !iltliVíií!)u flfi
l(íillifíuiiii f
ijolliuin iiiiili
■