Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
41
0 ^ Morgunhlaðið/Bjami
ISEYJAITJORNINNI
Gosbrunnurinn í Reykjavíkurtjörn hefur náð
að hlaða upp lítilli íseyju eða jökulbungu í
Tjöminni í frostinu að undanfömu. Að sögn
Theódórs Halldórssonar, yfírverkstjóra hjá
Skrúðgörðum Reykjavíkur, fór gosbmnnurinn
í gang þegar ísinn þiðnaði ofan af honum
fyrir skömmu, en gosbrunnurinn á að vera í
gangi alltaf þegar logn er og Tjömin er auð.
Theódór sagði að „eyjumyndun“ eins og
nú væri ekki alveg einstök, en verra væri ef
einhver vindur væri, því þá bærist frostúðinn
yfír nærliggjandi götur og gæti valdið ísingu
á bflum. Theódór sagði að reynt væri að fylgj-
ast með slíku og nú væri búið að slökkva á
gosbmnninum í biii, en sjálfvirkur búnaður
ætti að slökkva á vatnsbununni þegar hvessti.
Þokkaleg-
ur afli í
Sandgerði
Keflavfk.
AFLI Sandgerðisbáta var þokka-
legur { síðustu viku og voru stóru
netabátamir með mestan afla.
Sæborg fékk 61 tonn f 6 róðrum
og Amey KE var með 57,7 tonn
einnig f 6 róðrum. Færabátarair
komust varla á sjó og var afli
þeirra eftir þvf. Einnig var lítið
að hafa hjá minni lfnubátunum.
Afli annarra netabáta varð þessi:
Hafnarberg 37,5 tonn, Þorkell 34,9
tonn, Dröfn 32,6 og Hólmsteinn 29,7
tonn. Þessir bátar em 50-70 tonn
og var afli minni bátanna þessi: Bragi
31,5 tonn, Guðfinnur 28 tonn, Ægir
Jóhannsson 24,7 tonn, Hafborg 14,6
tonn, Máni 12,7 tonn, Margrét 12,7
tonn og Ragnar 12,6 tonn.
Elliði sem er á trolli landaði 40,9
tonnum í tveim sjóferðum og Geir
var með 27,5 tonn í einni sjóferð.
Stóm línubátamir lönduðu tvívegis
og var Freyja með 28,1 tonn og Víðir
II 21,5 tonn. Efstu dragnótarbátam-
ir vom Geir með 22,9 tonn og Njáll
sem var með 13 tonn. Þá landaði
togarinn Haukur 125 tonnum þann
12. apríl eftir 7 daga veiðiferð og
var aflinn aðallega karfi.
Afmælisfundur
Slysavarnar-
deildar kvenna í
Norðurljósum
Slysavamadeild kvenna í Reykjvík
heldur árlegan afmælisfund sinn í
kvöld, þriðdagskvöld, kl 20.30 f
Norðurljósum, Þórskaffí. Boðið verð-
ur upp á kaffíhlaðborð og skemmtiat-
riði. Allir em velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Verið að koma fyrir fellihýsum
á sýningunni „Vorleik ’88“ f
Kringlunni.
Vorleik-
ur’88
Sölusýning í
Kringlunni
Sölusýningin „Vorleikur ’88“
verður f sýningarsal á þriðju hæð
Kringlunnar þessa viku. Á sýning-
unni verða bandarfskar vor- og
sumarvörur.
Vömmar á sýningunni verða seld-
ar á þann hátt, að kaupandi og selj-
andi gera með sér kaupsamning.
Seljandi pantar síðan vömna beint
frá framleiðanda og afhendir hana
kaupanda fyrir 30. maí n.k. í frétta-
tilkynningu frá aðstandendum sýn-
ingarinnar segir, að með þessu móti
sé hægt að ná vömverði vemlega
niður, enda sé markmið sýningarinn-
ar að sýna og sanna að hér á landi
sé hægt að halda vömverði í lág-
marki með því að fækka kostnaðar-
liðum frá verksmiðju til neytanda.
Á sýningunni verða bandarískar
vömr sem allar tengjast vorverkum
og útilífí. Þar á meðal em fellihýsi,
garðhúsgögn, útigrill, sláttuvélar og
reiðhjól. Sýningin verður opin alla
virka daga ftá kl. 10:00 til 22:00
dagana 16. til 23. apríl.
Gerast kaupiit betrí?
Silesia kæliskápur 220 lítra með 20 lítra frystihóífi.
Mál: Hæð: 116 sm. Br.: 55 sm. Dýpt: 60 sm.
Verð aðeins kr. 13.950,-
Kjölursf.,
Kjölursf.,
Hverfisgötu 37, símar 21490, 21846.
Víkurbraut 13, Keflavík, sími 12121.
Heildverslun - innflutningur
á fatnaði á besta stað. Gott húsnæði í mið-
bænum. Góður lager að upphæð kr. 4.700.000
selst með lagerog innréttingum á kr. 3.000.000
til 3.300.000 sem má greiðast á kaupleigu til
3-4 ára. Ekkertút.
Upplýsingar í síma 13150 á skrifstofutíma í dag
og næstu daga.
MAZDA
RFI
Bestu kaupin eru hiá okkur!
Hjá okkur fáið þið orginal pústkerfi í allar gerðir MAZDA
bíla á sérlega hagstæðu verði. Við veitum 20% afslátt ef
keypt eru heil kerfi með festingum. Kaupið eingöngu
EKTA MAZDA pústkerfi eins og framleiðandinn mælir með
- þau passa í bílinn!
BILABORG HF
FOSSHÁLSI 1.SÍMI 68 12 99