Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 74
-74
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
4
MIKIÐ FANNFERGI OG ÓFÆRÐ Á AUSTURLANDI
<■ ■>
Morgunblaðið/Magnús Reynir Jónsson
Snjóflóðahætta talin
liðin hjá á Seyðisfirði
Almannavarnanefnd Seyðisfjarðar aflýsti hættuástandi á sunnu-
dag og á mánudag mátti hefja vinnu á ný í þeim fyrirtækjum, sem
höfðu orðið að loka vegna snjóflóðahættu. Samgöngur komust á
með flugi víðast hvar á laugardag og farið var að ryðja vegi á sunnu-
dag. Mikið fannfergi er á Norður- og Austurlandi og víðast hvar
ófærir þeir vegir sem ekki hafa verið ruddir. Ef frá eru talin snjó-
flóð á Seyðisfirði og í Siglufirði, hafa ekki orðið teljandi óhöpp af
völdum veðursins á Norður- og Austurlandi. Á fjallvegum á Austurl-
andi eru raflínur sumsstaðar hættulaga nærri snjónum, þannig að
fólki er hætta búin ef það fer þar nærri. Spáð er svipuðu veðri
næstu daga, norðan og norðaustan strekkingi og éljum austanlands
og úti fyrir Suðurlandi.
Morgunblaðið/Magnús Reynir Jónsson
Kindur sem drápust í snjóflóðinu á fjárhús Selstaða.
Á fundi Almannavamanefndar
Seyðisijarðar á sunnudag var aflýst
hættuástandi og mátti á ný hefja
vinnu í fyrirtækjunum, sem urðu
að hætta starfsemi vegna snjóflóða-
hættu fyrir helgina. Það voru fímm
fyrirtæki sunnan megin fjarðarins
og tvö að norðanverðu. Alls munu
á annað hundrað manns vinna á
þessum stöðum. Ekki er fullljóst
að hve miklu leyti fyrirtækin skað-
ast af þessum sökum. Þó er vitað,
að hjá Fiskvinnslunni hf varð stöðv-
unin þess valdandi, að ekki var
hægt að vinna karfa úr afla Gull-
vers á Japansmarkað, þar sem karf-
inn var ekki nægilega ferskur til
þess í gær. Þar af leiðandi þarf að
vinna hann í ódýrari umbúðir. Gull-
ver iandaði á fímmtudag og átti að
vinna aflann á föstudag og laugar-
dag.
Bændumir að Selstöðum urðu
fyrir tilfínnanlegu tjóni af völdum
snjóflóðsins, sem féll á föstudags-
kvöldið á hlöðu og fjárhús. Húsin
em mikið skemmd, hlaðan líklega
gjörónýt. 14 kindur drápust, þær
vom allar komnar að burði. Björg-
unarsveitarmenn og heimamenn á
Selstöðum náðu að bjarga 20 kind-
um lifandi úr snjónum. Það tók um
sex klukkustundir að moka út úr
fjárhúsunum. Annað snjóflóð féll
litlu utar, þar sem áður vom fjár-
hús sem fóru í snjóflóði 1974. Þetta
snjóflóð sem nú féll þar eyðilagði
girðingar. Á Selstöðum hefur sama
ætt búið mann fram af manni í
marga ættliði og sagði Eyjólfur
Kristjánsson bóndi þar, að afi hans
hefði ekki munað eftir snjóflóði á
þessari jörð áður.
Fólk, sem býr í nokkmm húsum
á mestu hættusvæðunum, hafði
orðið að flýja hús sín á fimmtudag.
í gær gat fólkið flutt heim til sín
á ný. Vegurinn yfir Fjarðarheiði til
Seyðisíjarðar var gjörsamlega
tepptur af fannfergi og var á sunnu-
dag byijað að ryðja þangað frá
Egilsstöðum. Það gekk seint, þar
sem snjór var blautur og vildi fest-
ast í blásaranum. I gær tókst að
Frá Seyðisfirði. Sjóinn innst i
firðinum krapaði í hinni miklu
fannkomu dagana fyrir og um
helgina.
komast yfír Fjarðarheiðina og verð-
ur hún mdd í dag, þannig að fært
verði öllum bflum.
Norðfírðingar vom vegasam-
bandslausir alla helgina og í gær
var ekki búist við, að fært yrði til
Neskaupsstaðar fyrr en í dag. Flug-
völlurinn opnaðist þó á sunnudag
og vom þá farnar tvær ferðir frá
Egilsstöðum. Áður hafði farið
snjóbfll frá Neskaupsstað yfír Odds-
skarðið og til Egilsstaða, en eftir
að opnaðist fyrir flugið yar hætt
við frekari snjóbflaferðir. í gær var
éljagangur á Neskaupsstað.
Vopnfírðingar biðu enn í gær
eftir að vegir opnuðust norðureftir
til Þórshafnar. Verið er að ryðja
veginn. Flogið var til Vopnafjarðar
á laugardag. Þar var svipað veður
og annars staðar á Austfjörðum,
éljagangur en fremur kyrrt og hafði
hlýnað. Góð færð var á götum
bæjarins.
Á Fáskrúðsfírði var nokkuð gott
veður og 1 - 2 gráða frost í gær.
Þar hefur hretið bitnað illa á sumar-
gestum: Skógarþrestir hafa fundist
frosnir í hel. Þeir hafa haldið sig
upp við húsveggi, fínna líklega ein-
hvem yl leggja út í gegn um vegg-
ina. Albert Kemp, fréttaritari Morg-
unblaðsins á staðnum, var að fylgj-
ast með fuglunum á sunnudag út
um stofugluggann hjá sér. Þá tók
hann eftir að einn fuglinn hafði
ekki hreyft sig lengi. Þegar betur
var að gáð, kom í ljós, að fuglinn
hafði frosið í hel. Álbert sagði að
Skógarþrösturinn hefði komið til
Fáskrúðsfjarðar fyrir um tveimur
vikum. Segja má að þeir vorboðar
hafí fengið kuldalegar viðtökur að
þessu sinni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni verður unnið að því
að ryðja vegi á Austurlandi eins og
afköst tækja og manna leyfa næstu
daga. Ekki má þó mikið hreyfa vind,
til þess að vegi teppi aftur, einkum
þó fjallvegi þar sem snjómokstur
hefur myndað djúpa ruðninga.
„Hryggur-
innkom-
inní
ofninn“
„Það er gott hljóð í okkur
hér, ég er búin að setja
hrygginn í ofninn og lífið
er farið að ganga sinn vana-
gang,“ sagði Þóra Guð-
mundsdóttir á Seyðisfirði í
samtali við Morgunblaðið í
gær. Hún var þá komin heim
aftur eftir að hafa þurft að
flýja hús sitt vegna snjó-
flóðahættu.
„Við erum búin að moka frá
gluggunum og hurðinni, það
var allt á kafí,“ sagði Þóra.
Hún sagði að ekki væri beygur
í þeim að flytja aftur heim.
Þegar stytt hefði upp og sést
til fjalla á ný, þá hefði komið
í ljós að ekki var eins mikill
snjór í fjallinu og haldið hafði
verið.
„Þannig að við höfum
sennilega ekki verið í neinni
yfírvofandi hættu, enda er
þetta varúðarráðstöfun. Hér
hefur aldrei fallið snjóflóð, svo
að það er engin sérstök ástæða
til þess að vera hræddur um
að fara á kaf.“
Morgunblaðið/Magnús Rejmir Jónsson
Fjárhúsin á Selstöðum, myndin er tekin daginn eftir að snjóflóðið féll á hlöðuna og fjárhúsin. Annar
bóndinn á Selstöðum, Eyjólfur Kristjánsson, gengur hér niður í fjárhúsin. Snjóflóðið umlukti húsin og
þegar myndin er tekin hafði enn fennt í.