Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
töhniprentarar
Tölvuprentarar frá STAR styðja þig í starfi. Þeir eru
áreiðanlegir, hraðvirkir og með úrvali vandaðra letur-
gerða. STAR prentarar tengjast öllum IBM PC tölvum
og öðrum sambærilegum. Níu gerðir fyrirliggjandi.
Karlakórinn Þrestir
Tónlist
Egill Friðleifsson
Víðistaðaðakirkja 16.4.88
Flytjendur: Karlakórinn Þrest-
ir
Einsöngvari: Steinarr Magnús-
son
Undirleikarar: Bjarni Jónat-
ansson, Bragi Hlíðberg
Efnisskrá: Lög úr ýmsum átt-
imi
Karlakórinn Þrestir í Hafnar-
fírði hélt árlega vortónleika sína
í síðustu viku. Að þessu sinni fóru
tónleikamir fram í Víðistaða-
kirkju, sem vígð var fyrir stuttu.
Kirkjan er ágætlega fallin til tón-
leikahalds og hljómburður góður,
auk þess sem húsið er ákaflega
fallegt, þar sem freskumynd Balt-
asars eiginlega umvefur alla sem
í kirkjuna koma. Víðistaðakirkja
verður væntanlega hafnfírsku
tónlistarlífí til eflingar, auk þess
að þjóna sem guðshús að sjálf-
sögðu.
Karlakórinn Þrestir á sér
merka sögu og er elsti starfandi
karlakór landsins. Kórinn var
stofnaður árið 1912 og hélt upp
á 75 ára afmæli sitt með pomp
og prakt á síðasta ári og fór í
söngför til útlanda. Eftir slík átök
koma gjaman lægðir í starfsemi
sem þessa, en það var ekki að
heyra á Þröstum að þeir væm
eftir sig heldur vom hinir spræk-
ustu.
Stjómandi kórsins er Kjartan
Siguijónsson, en hann hefur unn-
ið með kómum hin síðustu ár.
Kjartan er hógvær í verkstjóm
sinni og leggur áherslu á áferðar-
fallegan söng fremur en átakam-
ikinn. Kórinn söng lipurt. Efnis-
skráin var í hefðbundnum karla-
Steinarr Magnússon
kórsstíl og þar var fátt um nýj-
ungar. Fyrir hlé vom eingöngu
íslensk lög utan eitt, en eftir hlé
vom erlend lög úr ýmsum áttum.
Einsöngvari með kómum var
Steinarr Magnússon og komst vel
frá sínu. Hann hefur bjarta og
fallegá tenórrödd og beitti henni
smekklega. Undirleikarar vom
þeir Bjami Jónatansson og Bragi
Hlíðberg. Kirkjan var þéttsetin
áheyrendum, sem tóku flytjendum
hlýlega.
Velta atvinnugreina árið 1987:
Söluaðilar:
Andi sf., Hverfisgötu 105, 105 Reykjavik
Atlantis, Laugavegi 168,105 Reykjavík
EinarJ. Skúlason hf., Grensásvegi 10, 108 Reykjavík
Gísli J. Johnsen sf., Nýbýlavegi 16, 200 Kópavogi
GunnarÁsgeirsson, Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík
Heimilistæki sf., Sætúni 8, 125 Reykjavík
Hugtak hf., Vestmannabraut 25, 902 Vestmannaeyjum
Hugur hf., Hamraborg 12, 200 Kópavogi
Magnús sf., Bolholti 6,105 Reykjavík
Penninn, Hallarmúla 2, 108 Reykjavík
Reiknistofa Vestfjaröa, Aðalstræti 24, 400 ísafjörður
Skrifstofuvélarhf., Hverfisgötu 33, 105 Reykjavik
Stuðull, Skagfirðingabraut 6, 550 Sauðárkróki
Traust, Ragnar Jóhannss., Miðási 11,700 Egilstöðum
Tölvusamskipti, Skipholti 35,125 Reykjavík
Tölvutæki-Bókval hf., Kaupvangsstræti 4, 602 Akureyri
Tölvuvörur, Skeifunni 17,108 Reykjavik
Hlutur Reykjavíkur í
heildarveltu verslunar 67%
140% aukning
veltu í bíiasölu á
Reykjanesi
HLUTUR Reylgavíkur í heildar-
veltu verslunargreina á síðasta
ári var 66,6% samkvæmt upplýs-
ingum Þjóðhagsstofnunar. Þetta
er nokkur aukning frá árinu
1986, en þá nam þessi tala 65,8%.
Hlutfall Reykvíkinga af fjölda
landsmanna er hins vegar 37,8%.
Mikil aukning varð um allt land
á verslun með bíla og bUavörur,
veltan jókst um 58,3%. Reylganes
sker sig þó úr; þar var aukningin
139%.
Tölur þær, er Þjóðhagsstofnun
3
r eru oruggir
í hvelfingum -
en hvemig væri
að láta þá vinna fyrir þig?
Kynntu þér valkosti Ávöxtunar sf.
ÁVÖXTUN 8f é&
Fjármálaráðgjöf - Ávöxtunarþjónusta - Verðbréfamarkaður
LAUGAVEGI 97 - SÍMI 621660
hefur sent frá sér, em byggðar á
söluskattsframtölum fyrirtækja og
sýna heildarveltu, bæði þann hluta
sem er söluskattskyldur og þann
sem undanþeginn er söluskatti.
Samkvæmt þessum tölum var heild-
arvelta í smásöluverslun á landinu
54 milljarðarkróna og jókst um 32%
frá fyrra ári. í almennri heildverslun
nam veltuaukningin 34%, sala á
bílum og bflavömm jókst um 58,3%
og á byggingarvömm um 40%. Alls
jókst velta verslunargreina um 36%
og var um 107,2 milljarðar króna
á síðasta ári.
í þjónustugreinum varð veltu-
aukningin rúmlega 41%. Heildar-
velta í vömgreinum iðnaðar var
35,4 milljarðar króna og jókst um
34,4%.
í fréttatilkynningu Þjóðhags-
stofnunar segir að vísitala vöm og
þjónustu hafi hækkað um 18,5%
milli áranna 1986 og 1987. „Má
af því ráða að umsvif í verslun
hafí aukist að raungildi á sama tíma
um tæp 15% en í þjónustugreinum
nokkm meira eða 19%, en hér er
um grófar vísbendingar að ræða
þar sem vægi einstakra liða í vísi-
tölu vöm og þjónustu kann að vera
annað en í veltutölunum," segir í
fréttatilkynningunni.
Bæði almenn heildverslun og
versiun með bfla og bflavömr er að
langmestu leyti skráð í Reyigavík
og Reykjanesi, um 95% af heildar-
veltu beggja greina. í byggingar-
vömverslun fara einnig um 84%
viðskiptanna fram á suðvestur-
hominu. Byggingavömverslunin í
Reykjavík eykur veltuna á kostnað
Reykjaness, en í öðmm landshlut-
um stendur hún í stað.
Ef litið er á breytingar á heildar-
veltu verslunargreina eftir lands-
hlutum, sést að í langflestum tilvik-
um eykst veltan meira í Reykjavík
og á Reykjanesi en í öðmm lands-
hlutum. Þar vekur sérstaka athygli
139% aukning veltu í bflasölu á
Reykjanesi. í fréttatilkynningu
Þjóðhagsstofnunar segir að lokum:
„Að öllu samanlögðu gefa þessar
veltutölur þó vísbendingu um meiri
umsvif og þenslu á höfuðborgar-
svæðinu en annars staðar á
landinu."