Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
ÁTÖKIN Á PERSAFLÓA
Gífurlegt mann-
fall á Faw-skaga
Bonn, Nikósíu, Dubai, Reuter.
TALSMAÐUR sendiráðs íraka i
Bonn í Vestur-Þýskalandi sagði í
gær að Irakar hefðu náð Faw-
skaga í írak við mynni Shatt-al-
arab-fljóts á sitt vald. Þúsundir
íranskra hermanna hefðu særst
eða fallið í sókn Iraka sem hófst
á sunnudag.
í tilkynningu herstjómar íraka,
sem var birt fyrr í gær, sagði að
hersveitir þeirra hefðu unnið glæsta
sigra í bardögum á Faw-skaga. íran-
ir hefðu orðið fyrir miklu mannfalli
og væri einungis lokasóknin eftir
gegn sveitum óvinarins sem væru
einangraðar og óstuddar.
íranir hafa haft Faw-skaga á sínu
valdi frá þvi í febrúar 1986. Ónefnd-
ir embættismenn á þessum slóðum
sögðu í samtali við fréttamenn Reut-
ers-fréttastofunnar í gær að það
væri mikið áfall fyrir stjómvöld í
Teheran ef Faw-skagi gengi þeim
úr greipum. Hermt er að íranir hafí
skotið flugskeytum að Kuwait frá
Faw-skaga.
Útvarpið í Teheran skýrði frá því
í gær að hersveitir írana hefðu flutt
sig um set á skaganum. í fréttinni
sagði að „varðliðar íslams" hefðu
búist til vamar annars staðar á skag-
anum eftir að írakar og Bandaríkja-
menn hefðu samtímis gert árásir á
sveitir írana á landi, legi og í loft.
Sögðu fréttaskýrendur tilkynningu
þessa gefa til kynna að íranir hefðu
farið halloka í bardögum á skagan-
um. Fyrr um daginn hafði IRNA,
hin opinbera fréttastofa írans, skýrt
frá heiftarlegum bardögum á Faw
og sakaði fréttastofan Iraka um að
hafa beitt efnavopnum þar.
íranir réðust á 112.000
tonna breskt olíuskip
London. Reuter.
ÍRANIR réðust í gær á breskt oiíu- sunnudag tvö tundurdufl og voru þau
skip á Persaflóa en ekki var vitað skammt þar frá, sem bandarískt her-
mn skemmdir á því eða hvort skiprakstátundurdufl í síðustu viku.
manntjón hlaust af. Skýrði breska ___________________
varaarmálaráðuneytið frá þessu í _
Sovétríkin;
Arásimar
hættulegt
fordæmi
London. Reuter.
SENDIHERRA Sovétríkjanna í
Bretlandi gagnrýndi Banda-
ríkjastjórn harðlega í gær fyrir
árásirnar á írönsku olíuborpall-
ana. Sagði hann, að þær væru
mjög hættulegt fordæmi í al-
þjóðlegum samskiptum.
Leoníd Zamjatín sendiherra,
sem sæti á í miðstjóm sovéska
kommúnistaflokksins, sagði á
fréttamannafundi, sem haldinn var
vegna komu sovésks þingmanna-
hóps, að árásir Bandaríkjamanna
gengju í berhögg við tilraunir Sam-
einuðu þjóðanna til að koma á friði
meðal Persaflóaríkjanna.
„Við teljum, að árásir Banda-
ríkjamanna séu eins og olía á eld
og það er mjög hættulegt þegar
eitt ríki telur sig geta refsað öðru
Á fimmtudag sigldi bandariska freigátan Samuel B. Roberts á íranskt með þessum hætti,“ sagði Zam-
tundurdufl á Persaflóa og voru árásir Bandaríkjamanna í gær gerð- jatín og hvatti til þess, að erlendum
ar í hefndarskyni við tundurduflalagnir írana á aljþóðlegri siglinga- herskipum yrði siglt burt úr Pers-
leið. Myndin var tekin í gær og sýnir hún dráttarbát með banda- aflóa.
rísku freigátuna í togi á leið til hafnar í Dubai. ________________________
Irönskum eldflaugabát sökkt
og tvær freigátur laskaðar
gær.
Skipið, York Marine, 112,744 tonn
og skráð í Hong Kong, var eitt síns
liðs þegar á það var ráðist og sagði
talsmaður breska sjóhersins, að ekki
hefði verið vitað um ferðir þess í fló-
anum. Bretar hafa tvo tundurspilla
og eina freigátu í Persaflóa til vemd-
ar breskum skipum. Hafa þau aldrei
lent í neinum átökum en gert óvirk
nokkur tundurdufl.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Breta, sagði í gær, að árásir
Bandaríkjamanna á tvo íranska olíu-
borpalla væru skiljanlegar og eðlileg-
ar með tilliti til þess, að íranir hefðu
orðið uppvísir að þvi að koma fyrir
tundurduflum á alþjóðlegum sigl-
ingaleiðum.
Áhafnir belgísks og hollensks
tundurduflaslæðara eyðilögðu á
Washington, Reuter.
BANDARÍKJAMENN sökktu
irönskum eldflaugabát og lösk-
uðu tvær iranskar freigátur á
Persaflóa í gær. Fyrr um daginn
hafði floti Bandaríkjamanna lagt
tvo íranska olíuborpalla i rúst í
hefndarskyni við tundurdufla-
lagnir írana á alþjóðlegri sigl-
ingaleið á Persaflóa. Frank
Carlucci, varaarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði á blaða-
mannafundi í Washington að það
væri undir írönum komið hvort
áframhald yrði á átökum
ríkjanna. Gerðu íranir frekari
árásir myndu Bandarikjamenn
„grípa til viðeigandi aðgerða".
Marlin Fitzwater, talsmaður Ron-
alds Reagans Bandaríkjaforseta,
sagði á blaðamannafundi í Was-
hington að forsetinn hefði geflð flota
Bandaríkjamanna fyrirskipun um
árás á tvo íranska olíuborpalla.
Hefði þetta verið gert í hefndar-
skyni við tundurduflalagnir írana á
alþjóðlegri siglingaleið á Persaflóa.
I síðustu viku sigldi bandaríska frei-
gátan Samuel B. Roberts á tundur-
dufl á flóanum og særðust tíu sjólið-
ar í sprengingunni. Fjórir þeirra
hafa verið fluttir í sjúkrahús í eigu
Bandaríkjahers í Vestur-Þýska-
landi.
Byltingarverðir varaðir við
Fitzwater sagði að olíuborpallar
írana við eyjamar Sirri og Sassan
á sunnanverðum Persaflóa hefðu
verið lagðir í rúst sökum þess að
íranir hefðu nýverið hafið að nýju
að leggja ^tundurdufl á alþjóðlegri
siglingaleið. Vitnaði Fitzwater að
auki til tundurduflaárásar írana á
bandarísku freigátuna á flmmtudag.
Sagði hann þrjú bandarísk herskip
hafa skotið á borpallinn við Sirri og
þijú til viðbótar hafa tekið þátt í
aðgerðunum við Sassan. íranimir á
borpöllunum hefðu verið varaðir við
áður en árásimar hófust og þeim
þannig gefíð tækifæri til að forða
sér. Ekki hefðu borist fréttir af
mannfalli. Bandarískir embættis-
menn segja olíuborpalla írana einnig
gegna því hlutverki að vera stjóm-
stöðvar fyrir herafla þeirra. Munu
um 20 til 40 byltingarverðir að jafn-
aði vera á hverjum borpalli.
Frank Carlucci vamarmálaráð-
herra sagði bandaríska landgöngu-
liða hafa komið fyrir sprengiefni á
borpallinum við Sassan eftir að
írönsku byltingarvörðunum á pöll-
unum hefði verið ráðlagt að hafa
sig á brott hið fyrsta.
Að sögn Carluccis skaut íranskt
varðskip eldflaug að bandaríska
beitiskipinu Wainwright á meðan á
árásinni stóð. Skeytið missti marks
en bandarísku skipin snerust til
vamar og sökk íranska skipið eftir
að hafa orðið fyrir fjórum eldflaug-
um frá Wainwright og freigátunni
Simpson. Carlucci sagði að skip-
stjóri varðskipsins hefði haft aðvar-
anir Bandaríkjamanna að engu og
því hefði skipinu verið sökkt. Will-
iam Crowe, flotaforingi og yfirmað-
ur bandaríska herráðsins, sagði á
fundi í vamarmálaráðuneytinu að
tvær íranskar herþotur af gerðinni
F-4 hefðu verið á sveimi í nágrenni
við bandarísku herskipin á meðan
árásin var gerð á olíuborpallanna.
Þær hefðu hins vegar snúið frá er
eldflaugum var skotið að þeim.
íranir hefna árásanna
íranir brugðu hart við og réðust
á olíuborpall nærri strönd Samein-
uðu arabísku furstadæmanna, sem
bandarískir aðilar starfræktu þar til
nýlega. Frank Carlucci sagði þijá
íranska fallbyssubáta hafa skotið
að litlu flutningaskipi sem sigldi
undir bandarískum fána á þessum
slóðum en kvaðst ekki hafa fengið
nánari fréttir af þeirri árás.
Um hádegisbilið í gær að íslensk-
um tíma, sjö klukkustundum eftir
árás Bandaríkjamanna á olíubor-
pallana, skaut íranska freigátan
Sahand að þremur bandarískum
herþotum af gerðinni A-6 er þær
voru á flugi yfír Hormuz-sundi. í
fréttatilkynningu bandaríska vam-
armálaráðuneytisins sagði að þot-
umar hefðu þá skotið tveimur
Harpoon-flugskeytum að skipinu
auk þess sem þær hefðu gert á það
sprengjuárás. Þá hefði flugskeyti
frá bandarísku freigátunni Strauss
einnig hæft íranska skipið. Það hefði
orðið fyrir miklum skemmdum og
væri eldur laus um borð. Skömmu
síðar hefði íranska freigátan Sabal-
an skotið að bandarískri A-6-þotu.
Flugmaðurinn hefði varpað sprengu
með leysi-miðunarútbúnaði að skip-
inu og hæft það. Skipið hefði orðið
fyrir miklum skemmdum og væri
stefni þess í kafi en íranskir drátta-
bátar væru komnir á staðinn. Yrðu
ekki gerðar frekari árásir á skipið
nema það reyndist nauðsynlegt í
vamarskyni.
Ekki bárust fréttir af mannfalli
í röðum Bandaríkjamanna og emb-
ættismenn kváðust ekki vita til þess
að íranskir sjóliðar hefðu fallið í
árásunum. Heimildarmenn Reut-
ers-fréttastofunnar kváðust hins
vegar gera ráð fyrir því að ein-
hveijir hefðu týnt lífí þar eð átökin
hefðu greinilega verið mjög
hatrömm.
oru
fylgja kúvaaskum olíuskipum í júlí.
Vígbúna&ur Bandaríkjamanna
A-6:
Arásarþota af
flugmóður-
skipum.
Smí&uó af
Grumman.
Harpoon-flugskeytið:
Ratsjárstýrt flugskeyti gegn
skipum. Sm(6aö af
McDonnell- Douglas.
Bandarísku árásarskipiiji
Sassan
■ Merril - tundurspillir
■ McCormick - tundurspillir
■ Trenton - landgönguskip
Sirri
■ Simpson - freigáta
■ Bagley - freigáta
■ Wainwright - beitiskip
Sahand
■ Strauss - flugskeytaskip
■ O'Brien - tundurspillir
■ Jack Williams — freigáta
■ Enterprise -flugmóöurskip
4 Iranska
skipiö Sahand
skytur aó A6
árásarþotum af
Enterprise.
Þoturnar og
. kipiö
Strauss skjota
á móti og brátt
logar Sahand
stafna á milli.
KRGN / Morgunblaóiö / AM