Morgunblaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988
65
Vilhjálmur Birgis-
son - Kveðjuorð
an, hangandi í vír. Við minntumst
þess hvað spara þurfti pappírinn í
bamaskólanum af því sjómennimir
lögðu sig í hættu við að flytja hann
heim. Já, það var mikið rifjað upp
þennan dag. Við vomm báðar sam-
mála um að hér eftir skyldum við
lesa bækumar sem við myndum
gefa bamabömum okkar í framtíð-
inni.
Magga var bókelsk koría og
víðlesin. Henni þótti ekki nóg að
lesa bækumar, það þurfti að fjalla
um efni þeirra að lestri loknum.
Ef við höfðum ekki tækifæri til að
hittast þá töluðum við saman í síma
og spurðum gjarnan hvor aðra hvað
við væmm að lesa þessa stundina
og bentum hvor annarri á lestrar-
efni.
Vinkona mín var trúuð kona og
ég kveð hana með bamaversi sem
hún fór með þennan dag og ég fann
að henni þótti vænt um:
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Höf. ókunnur).
Þakka ég Möggu fyrir tryggð
hennar, vináttu og hugljúfar sam-
vemstundir. Fari hún í friði, friður
Guðs sé með henni.
Pálina Kjartansdóttir
Hann Villi er dáinn!
Þau tíðindi bámst á páskadags-
morgun að slys hefði orðið og að
hann Villi væri dáinn. Annað eins
reiðarslag hefur ekki dunið yfír
mig. Ég gat ekki trúað því, en það
var staðreynd, því miður. Af hverju
deyja þeir ungir sem Guð elskar?
Þeirri spumingu verður ekki svar-
að.
Vilhjálmur var sonur hjónanna
Viktoríu Vilhjálmsdóttur og Birgis
Brynjólfssonar. Ég man þann ham-
ingjudag þegar Villi var borinn í
þennan heim þann 29. ágúst 1978.
Þetta var mesti hamingjudagur í
lífi Bigga og Viggu. Fyrir eiga þau
þijár stúlkur, Brynju sem var þá
fímmtán ára, Önnu Maríu sem var
tíu ára og Jóhönnu sem var sex
ára. Drengurinn var kærkominn í
stúlknahópinn. Villi var augasteinn
þeirra allra.
Hann var ungur þegar hann fór
að ferðast með mömmu sinni og
pabba til fjalla, ég minnist margra
ferða sem við fómm saman. Það
kom oft fyrir að Villi ætti afmæli
í útilegu og var þá haldin afmæl-
isveisla með öllu tilheyrandi.
Villi var búinn að ferðast um
allt Island og þó ungur væri var
varla til sá staður hér á landi sem
hann hafði ekki komið á. En seinni
árin ferðaðist hann mest með pabba
sínum og félögum hans. Hann var
orðinn einn af hópnum. Villi var
mjög fullorðinslegur og var einstak-
lega gaman að tala við hann og
hefur hann skilið eftir sig stórt
skarð í hópnum.
Ég minnist ánægjulegrar ferðar
sem við fómm saman til Ítalíu þar
sem var margt að sjá. Villi naut
sín vel í dýragarðinum og á gondól-
unum í Feneyjum. Hann vann hug
allra sem honum kynntust því hann
var einstaklegá ljúfur og vel gefinn
drengur.
Nú er Villi farinn í sitt hinsta
ferðalag. Ég þakka fyrir að hafa
fengið að kynnast honum, að vera
með honum þennan stutta tíma, og
veit ég að hans bíður góð vist og
t
góðar móttökur. Megi hann hvfla í
friði.
Elsku Biggi og Vigga, megi Guð
hjálpa ykkur í þessari miklu sorg.
Brynja, Raggi og böm, Jóhanna,
Amar og Anna María, megi Guð
styrkja ykkur og vera með ykkur
öllum.
Þurý
KJlRlIXiAR
Eru
Holtakj úklingar
bestir?
Við höfum verið að
velta því fyrir okkur
vegnaþess að við
seljum fleiri þúsundir
í hverjum mánuði.
Grillaðir á aðeins
1 stk. í pakka
3 stk. í oakka
5 stk. í pakka
Laugalæk 2, s. 686511
Garóabæ,s. 656400
ÞUSUNDIR ÍSLENDINGA