Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 63
TBVUTOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
63
Morgunblaðið/Bjami
SA sveit Taflfélags Reykjavíkur sem hlaut fyrstu verðlaun í deildakeppni. Frá vinstri: Þráinn
Guðmundsson forseti S.I., Jón Briem formaður Taflfélags Reykjavíkur, Ríkharður Sveinsson, Sig-
urður Daði Sigfússon, Þröstur Árnason, Jóhannes G. Jonsson, Tómas Björnsson, Andri Áss Grétars-
son og Þröstur Þórhallsson.
Skákmenn verðlaunaðir
SKÁKSAMBAND íslands
veitti þann 20. maí s.l. skák-
mönnum og Skáksveitum verð-
laun fyrir góðan árangur. Veitt
voru verðlaun fyrir deilda-
keppni, Skákþing íslands og í
opnum flokki. Einnig voru
verðlaunaðir FIDE-meistarar
og Alþjóðlegur meistari.
Fyrstu verðlaun í deildakeppni,
fyrstu deild, hlaut SA sveit taflfé-
lags Reykjavíkur, önnur verðlaun
fékk NV sveit Taflfélags
Reykjavíkur og þriðju verðlaun
hlutu Skákfélag Hafnarfjarðar og
Skáksamband Vestfjarða. í ann-
arri deild varð UMSE í efsta sæti,
Skákfélag Akureyrar, B sveit í
öðru og B sveit Skáksambands
Vestfjarða og C sveit Skákfélags
Akureyrar í því þriðja. Fyrstu
verðlaun í þriðju deiid fékk B sveit
Skákfélags Hafnarfjarðar, önnur
verðlaun Skáksamband Vest-
fjarða B sveit og þriðju verðlaun
hlaut Skákfélag Akureyrar C
sveit.
í áskorendaflokki á Skákþingi
íslands hlaut Elvar Guðmundsson
fyrstu verðlaun, Róbert Harðar-
son önnur verðlaun og Þráinn
Vigfússon þriðju, allir frá Taflfé-
lagi Reykjavíkur.
I opnum flokki fékk Jónas Jons-
son frá Taflfélagi Kópavogs
fyrstu verðlaun, Ingimundur Sig-
urmundsson frá Taflfélagi Ámes-
inga önnur verðlaun og Geirlaug-
ur Magnússon úr Taflfélagi Sauð-
árkróks hlaut þriðju verðlaun.
Einnig hlutu verðlaun FIDE-
meistaramir Hannes Hlífar Stef-
ánsson og Ingvar Ásmundsson og
sömuleiðis hlaut Þröstur Þórhalls-
Elvar Guðmundsson tekur við fyrstu verðlaunum í áskorenda- son Alþjóðlegur meistari verðlaun
flokki úr hendi Þráins Guðmundssonar forseta Skáksambandsins frá Skáksambandi íslands.
Morgunblaðið/Magnús Reynir Jónsson
Eldri borgarar á Seyðisfirði vinna að undirbúningi basars, talið frá
vinstri: Guðmunda Guðmundsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Kiddý
Jóhannsdóttir, Sveinveig Sigurðardóttir, Elín Frimann, Erla Blöndal_
leiðbeinandi, Sigrún Sigurðardóttir og Bergljót Kristinsdóttir.
Seyðisfjörður:
Eldri borgarar í vorferð
til Akureyrar og Hríseyjar
Seyðisfirði.
MIKIL félagsstarfsemi hefur
verið hjá eldri borgurum á Seyð-
isfirði í vetur. Hafa þeir hist
reglulega sér til ánægju og
dægrastyttingar. Á laugardög-
um hafa verið spilakvöld þar sem
spiluð hefur verið vist og á
fimmtudögum hefur verið föndr-
að undir leiðsögn Erlu Blöndal,
sem hefur verið aðalhvatamann-
eskjan í þessu starfi ásamt Krist-
jönu Bergsdóttur félagsmálafull-
trúa.
Basar var haldinn nú fyrir
skömmu þar sem margt eigulegra
muna var til sölu og safnaðist tölu-
vert fé í ferðasjóð eldri borgara.
Þessi sjóður er ætlaður til að greiða
niður kostnað af fjögurra daga ferð
eldri borgara til Akureyrar í lok
maí. í þessari ferð ætla þeir að
skoða sig um á Akureyri og í ná-
grenni, meðal annars verður farið
út í Hrísey til að borða úrvals
nautasteik af Galloway-nautunum
þar. Svo á að fara í leikhús og sjá
Fiðlarann á þakinu. Ekki er að efa
að þessi vorferð eldri borgara á
Askriftarsiminn er 83033
Seyðisfirði verður hin skemmtileg-
asta. - Garðar Rúnar
. SPARAÐU SPORIN
ÞU ÞARFT EKKILENGUR
AÐ UMSKRÁ
Frá 1. júní þarf ekki lengur að umskrá
bifreið þegar hún er seld úr einu umdæmi í
annað eða eigandi flytur á milli umdæma.
Umskráningar verða þó heimilar til 31.
desember n.k.
Við sölu á bifreið þarf því eftirleiðis einungis
að senda nákvæmlega útfyllta sölutilkynn-
ingu ásamt eigendaskiptagjaldi kr. 1.500.-
til Bifreiðaeftirlits ríkisins, eða fógeta og
sýslumanna utan Reykjavíkur.
Dómsmálaráðuneytið