Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 2
2
~ ~áí(3RGUNBLÁÐÍÐ, ÞRÍÐJÚt)ÁGÍ)R"7.''jÚNf 1988
Tók út af litl-
um gúmmíbátí
Djúpavogi.
MANN tók út af litlum gúmmíbáti seint á laugardagskvöldið í mynni
Hamarsfjarðar skammt frá Djúpavogi. Mikil leit hefur staðið alla
helgina og gærdaginn að manninum en án árangurs. Sterkur útstraum-
ur var í firðinum er óhappið átti sér stað.
Maðurinn fór ásamt vini sínum og
flölskyldum þeirra um kvöldmatar-
leytið á laugardag út í Eskilsey í
mynni Hamarsfjarðar til þess að
huga að æðarvarpi sem þeir hafa
haft í eynni. Ágætisveður var og
gott í sjóinn. Fólkið var í Eskilsey
framundir kl. 23 um kvöldið en þá
fór maðurinn í land með konumar
og yngstu bömin, en eftir í eynni
vom vinur mannsins og flögur eldri
bömin.
Eftir að hafa skilað fólkinu af sér
við Búlandshöfn hélt maðurinn aftur
út í Eskilsey en þangað er 5-10
mínútna sigling á þessum báti. Eftir
nokkra stund fór fólkið í eynni að
svipast um eftir honum og sá þá
hvar gúmmíbáturinn sigldi í hringi,
stjómlaus. Fimm neyðarblys vom í
eynni og skaut sá sem í eynni var
öllum á loft. Fimmta blysið kveikti
í sinu í eynni og magnaði fólkið eld-
inn eins og mögulegt var, svo af
varð mikill reykur. Fólk í landi sá
reykinn og brá skjótt við, þegar var
haft samband við slysavamasveitina
Bám á staðnum og fóm menn úr
henni á bát út á Hamarsfjörð.
Er björgunarsveitarmenn komu að
gúmmíbátnum var hann mannlaus,
vélin í gangi og eldsneytisgjöfin í
botni. í honum áttu að vera fimm
björgunarvesti, vom flögur enn í
bátnum en eitt fannst rekið á fjörur
við flugvöllinn. Hafði bátinn rekið
langleiðina út undir Sandey en sem
fyrr segir var sterkur útstraumur í
firðinum er óhappið átti sér stað.
Á sama tíma og óhappið varð var
sjómannadagsdansleikur í félags-
miðstöðinni á Djúpavogi. Var dans-
Ríkislögmaður:
Alverssamn-
ingar kannaðir
ÞORSTEINN Pálsson, forsætis-
ráðherra, hefur óskað eftir því
við rikislögmann að hann kanni
hvort samningarnir sem gerðir
voru I álverinu i Straumsvík á
fimmtudaginn var séu i samræmi
við bráðabirgðalög ríkisstjórnar-
innar, sem sett voru 20. maí
síðastliðinn.
í lögunum em launahækkanir
takmarkaðar og gildandi og síðast-
gildandi kjarasamningar fram-
lengdir til 10. apríl á næsta ári.
Þorsteinn sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann vonaðist eftir
svari fljótlega í vikunni.
leikurinn stöðvaður og allir sem vettl-
ingi gátu valdið kallaðir út til leitar.
Einnig var haft samband við björgun-
arsveitarmenn á Homafirði, sem
komu á góðum bát um kl. 6 á sunnu-
dagsmorguninn. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar var einnig kölluð til, kom
hún kl. 5 um morguninn og leitaði
til kl. 8. Fjöldi trillubáta úr Djúpa-
vogshöfn hélt einnig til leitar. Fjömr
vom gengnar í utanverðum Hamars-
firði og í nærliggjandi eyjum og þær
kannaðar á tveimur fjórhjólum. Einn-
ig var haft samband við bæi í næsta
firði, Álftafirði, og fjörur gengnar
þar.
Leitin bar engan árangur og kl.
16 á sunnudag var gert hlé á henni
en aftur tekið til við leit þremur
tímum seinna. í gær vom flömr
gengnar og kannaði björgunarsveitin
í Breiðdalsvík svæðið frá Streitis-
hvarfí og Berufjarðarströndina aust-
an megin.
— Ingimar
Morgunblaðið/KGA
Grappelli vel fagnað
Jassfiðluleikarinn Stéphane Grappelli hélt tónleika í gærkvöldi í
Háskólabíói á Listahátíð. Húsfyllir var og rúmlega það því 100 sæt-
um hafði verið komið fyrir á sviði hússins. Grappelli og félagar hans
Marc Fosset gítarleikari og Jack Sewing bassaleikari fóm vítt og
breitt í lagavali. í lok tónleikanna risu áhorfendur úr sætum og
hylitu Grappelli.
Sjá ennfremur blaðsíðu 30.
Steingrímur Hermannsson:
Ætti að skerða hækk-
un lánskjaravísitölu
„ÉG FYRIR mitt leyti tel að það
ætti að skerða þessa hækkun, en
það er álit lögfræðinga að það
sé afar erfitt á þegar gerðum
skuldbindingum," sagði
Steingrimur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
er hann var spurður álits um spá
Fjárfestingarféiagsins um að
lánskj araví sitala muni hækka um
tæp 5% um næstu mánaðamót,
sem myndi samsvara um 70-80%
verðbólgu yfir heilt ár.
„Ef við emm að tala um að af-
nema rauðu strikin þá getum við
ekki látið lánskjaravísitöluna leika
lausum hala. Það er vandlega bent
á þetta af Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um, sem vekur athygli á að hér er
um verðbólguvald að ræða. Sumir
telja fjármagnið svo heilagt að það
megi ekkert hrófla við því þó það
megi hrófla við launum. Ég er ekki
sammála því,“ sagði Steingrímur.
Aðspurður um hvaða leiðir væm
hugsanlegar til að skerða hækkun
lánskjaravísitölu sagðist Steingrím-
ur ekki vilja segja neitt um það
fyrr en niðurstaða nefndar um
málið lægi fyrir, en hún ætti að
skila áliti um næstu mánaðamót.
Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ,
sagði að ef hækkun framfærsluvísi-
tölunnar yrði eins mikil og spá Fjár-
festingarfélagsins, benti það til að
verðhækkun á innfluttum vamingi
vegna gengisfellingarinnar hefði
einnig verið látin ganga yfir þær
birgðir sem til hefðu verið í landinu.
Afli togaranna:
Breki með
2.598 tonn
TOGARINN Breki frá Vest-
mannaeyjum var aflahæstur
islenzku togaranna að loknum
fyrstu fjórum mánuðum ársins
með 2.598 tonn. Hann skilaði
einnig mestum verðmætum á
land af minni togpirum eða 80
milijónunr samtals. Aðeins 6
frystiskip og einn stór togari,
sem byggir afkomu sína á sölu
aflans erlendis skiluðu meiri
verðmætum á land þetta tímabil.
Þess skal getið að Breki hefur
verið gerður út af miklnm krafti
þennan tíma, þar sem framundan
er mikil og timafrek viðgerð á
skipinu.
Þijú skip öfluðu meira en 2.000
lesta þessa mánuði, Breki var með
2.598, Örvar frá Skagaströnd með
2.359 og Haraldur Böðvarsson frá
Akranesi með 2.054 tonn. Fimm
frystiskip öfluðu fyrir meira en 100
milljónir og var þar Örvar fremstur
í flokki með 149,5 milljónir í 6 sjó-
ferðum. Akureyrin EA var í öðru
sæti með 116 milljónir, 1.828 tonn,
næstur var Sjóli frá Hafnarfirði
með 104 milljónir, 1.722 tonn, þá
Freri frá Reykjavík með 102,5 millj-
ónir, 1.782 tonn, og loks Sléttbakur
frá Akureyri með 102 milljónir,
1.768 tonn. Alls öfluðu frystitogar-
amir fyrir rúman milljarð króna.
Af stærri togurum öfluðu fimm
fyrir meira en 50 milljónir króna
og grundvallast afkoma þeirra á
sölu aflans erlendis. Hæstur var
Vigri frá Reykjavík með 83 milljón-
ir, 1.336 tonn, næstur kom Víðir
frá Hafnarfirði með 67,8 milljónir,
1.488 tonn, og loks Viðey RE með
61,3 milljónir, 1.412 tonn.
Breki var aflahæstur minni tog-
ara og skilaði mestum verðmætum
á land. Annar var Júlíus Geir-
mundsson ÍS með 60,6 milljónir,
1.625 tonn, og þriðji Bessi ÍS með
59,7 milljónir, 1.460 tonn. Alls náðu
11 minni togarar 50 milljóna króna
markinu á þessu tímabili. Þrír
þeirra voru frá Suður- og Vestur-
landi, fjórir frá Vestfjörðum, einn
frá Norðurlandi og þrír frá Aust-
fjörðum.
Grimsby:
Löndunargjöld lækka
Hugað að mögnlegri löndun allan sólarhringinn
Löndunarkostnaður við fersk-
fisksölu f Grimsby fer nú lækk-
andi í kjölfar uppstokkunar á fyr-
irtæki því, sem sér um landanir
þar. Ennfremur er að nást sam-
Sæunn bar
á sjómanna-
daginn
Flateyri.
KÝRIN Sæunn, sem varð fræg
á sfðastliðnu hausti fyrir fræki-
iegt sund sitt yfir Önundarfjörð,
eignaðist kvígu á sjómannadag-
inn. Var henni gefið nafn um
leið og hún fæddist og heitir
hún Hafdís Sæunnardóttir. Guð-
mundur Steinar Björgmunds-
son, bóndi á Kirkjubóli í Val-
þjófsdal, eigandi Sæunnar,
sagði að kvfgan yrði að sjálf-
sögðu alin.
Eigendur Sæunnar sögðu að þau
hefði verið farið að lengja eftir
kálfinum, en áttuðu sig á því þegar
hún veiktist á sjómannadaginn, að
auðvitað var Sæunn bara að bíða
eftir rétta deginum, því að sögn
Guðmundar Steinars heyrir hún
undir sjávarútvegsráðuneytið.
— Magnea
Morgunblaðið/Magnea
Hafdis Sæunnardóttir nj'tur hér atlætis móður sinnar skömmu
eftir að hún kom í heiminn að kvöldi Sjómannadagsins.
komulag um mögulega löndun
afla allan sólarhringinn og notk-
un kæligeymslna fyrir fiskinn,
fari hann ekki strax á markaðinn.
Þórarinn S. Guðbergsson, starfs-
maður Fylkis f Grimsby, segir
þessar brevtingar til mikilla hags-
bóta fyrir Islendinga og vera nán-
ast byltingu.
í upphafi síðasta vetrar varð lönd-
unarfyrirtækið í Grimsby gjaldþrota.
Á rústum þess var síðan reist fyrir-
tækið Grimsby Port Services Ltd.,
en Fylkir, sem er í eigu Jóns Olgeirs-
sonar, ræðismanns Islands á staðn-
um, á tvo sjöttu hluta í því. Hið nýja
löndunarfélag hefur lækkað löndun-
argjöld talsvert og segir Þórarinn
S. Guðbergsson, að löndunarkostn-
aður sé nú svipaður eða jafnvel lægri
en í Huil. Til skamms tíma var því
öfugt farið og meðal annars þess
vegna hafði hlutur Hull á kostnað
Grimsby í físklöndunum vaxið tals-
vert. Þórarinn sagði að með þessu
og því, að hægt yrði að landa fiskin-
um allan sólarhringinn og ganga frá
honum inn á markaðinn, hvort sem
hann væri úr gámum eða skipum,
væri stigið risastórt skref fram á
við. Því mætti stytta viðdvöl meðal-
stórra fiskiskipa í höfn niður í allt
að hálfan sólarhring. Mikill munur
flóðs og fjöru hefði valdið því að
skipin hefðu stundum þurft að koma
inn nokkuð löngu áður en löndun
hefði fengizt.
Þórarinn sagði að unnið væri að
uppsetningu kæligeymslna á hafnar-
svæðinu svo hægt væri að geyma
fiskinn um tfma áður en hann yrði
seldur. Þannig væri mögulega hægt
að ljúka löndun mun fyrr en ella
áður en sala hæfist. Ennfremur yrði
þá mögulegt að stýra fiskmagninu
betur inn á markaðinn með hliðsjón
af eftirspum og jafnvel selja oftar
en aðeins á morgnana. „Náist allt
þetta fram,“ sagði Þórarinn, „má
segja að um byltingu verði að ræða.“
Aðalfundur VSÍ í dag
Aðalfundur Vinnuveitendasam
bands íslands verður haldinn f
dag í Súlnasal Hótels Sögu og
hefst klukkan 11.30.
Gunnar J. Friðriksson formaður
VSÍ flytur ræðu í upphafi fundarins.
Að loknum hádegisverði aðalfundar-
fulltrúa og gesta, verða auk venju-
legra aðalfundarstarfa pallborðsum-
ræður um atvinnulíf og efnahags-
horfur. Þátttakendur í umræðunum
verða Kristinn Bjömsson fram-
kvæmdastjóri Nóa & Síríus , Ágúst
Einarsson framkvæmdastjóri Hrað-
frystistöðvarinnar í Reykjavík hf.,
Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri
Ilagkaups hf. og Jón Sigurðsson for-
stjóri íslenska jámblendifélagsins.
Umræðum stjómar Hörður Sigur-
gestsson forstjóri Eimskips hf.