Morgunblaðið - 07.06.1988, Page 14

Morgunblaðið - 07.06.1988, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988 i Hamrahlíðarkórinn á æfingn í íslensku óperunni undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. „Ég vil finna til í því, sem ég er að vimia að“ Rætt við Jón Ásgeirsson tónskáld og Þorgerði Ingólfsdóttur kórstjóra um kórverk Jóns, Tímann og vatnið, sem verður frum- flutt á Listahátíð í kvöld, ásamt ballett eftir Hlíf Svavarsdóttur Á dagskrá Listahátíðar í kvöld frumflytur Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur verkið Tímann og vatnið eftir Jón Ásgeirsson. Textinn er auðvitað samnefnt kvæði Steins Stein- ars. Síðari hluti dagskrárinnar er svo ballettinn Af mönnum eftir Hlíf Svavarsdóttur, ballettinn sem vann verðlaun í fyrstu norrænu danshöfundakeppninni í Ósló um daginn. Þó verið sé að flytja Tímann og vatnið í fyrsta sinn nú, þá er það ekki nýtt frá hendi tónskáldsins, því hann lauk þvi sumarið 1979. Nú er það flutt að beiðni Listahátíðar. En hvað segir tónskáldið um tilurð verksins, hvers vegna varð ljóðaflokkur Steins fyrir valinu? „Ég þekkti Stein ekki mikið, ugg vegna þess hve hann gat verið hann var maður, sem vakti mönnum óvæginn í orðum. Gat jafnvel gert vini sína gáttaða með orðum sínum. Svo vikið sé að ljóðaflokknum sjálf- um, þá er oft einblínt á þá formbylt- ingu, sem felst í ljóðinu, sem er vissulega rétt, og bent á að þama sé að fínna þá abstrakt-hugsun, sem myndlistarmenn leituðu svo mjög eftir á sínum tíma. „A poem should not mean but be“ og allt það. Náinn vinur Steins áleit að þama lægju í raun sterkar tilfinn- ingar á bak við og að ljóðið væri ástarljóð, uppfullt af trega og eftir- sjá. Eftirsjá, sem er miklu sterkari en í venjulegu tregaljóði, fyrst og fremst vegna þess hve skáldið vill dylja sjálft sig. Óvægni hans í garð annars fólks er kannski skiljan- legri, sé hún skilin sem vöm hans og aðferð til að dyljast." Þú velur að gera kórverk. Hvers vegna það? „Þessi ljóðaflokkur hefur alltaf verið tónlist fyrir mér. Það er reynd- ar sagt að Steinn hafí sagt það vera ballett, en kannski var það bara útúrsnúningur á hans vísu. Það er hins vegar vitað að Atli Heimir hefur samið ballett við þetta sama kvæði og raunar hneyksli að ekki skuli búið að flytja hann, þó verkið sé kannski dýrt í uppfærslu. Mér fannst mannsröddin ein eiga hér við, en ákvað að nota ekki ein- söngvara, því einsöngur gæti verið of opinská tjáning fyrir svo dulinn kveðskap. Hljóðfæri vildi ég ekki nota, því þau gefa allt annan blæ en söngur. Þá var kórinn eftir og hann varð fyrir valinu. Þó túlkun í kórsöng sé persónubundin og komi frá hveijum einstaklingi, þá er hún samt ekki njörvuð við einstakar persónur. Hún er mannleg, fremur en persónuleg. En samt býður kór upp á mýkt, upp á ótrúlega við- kvæmnislega túlkun. Ég skipti flokknum í þrjá kafla, sjö ljóð í hveijum. Það em mest átökin í miðkaflanum, en í síðasta hlutanum er fjallað um þögnina, þar sem skáldið sættist endanlega við þögnina, þennan liðna atburð, kveikjuna að ljóðinu. Ég gerði fyrst tilraun til að semja tónlist við ljóðin eftir fyrstu útgáfu þeirra, þar sem ljóðin vom aðeins þrettán, urðu ekki 21 fyrr én seinna. Þessi sjö ljóð frumflutti Pólýfónkórinn undir stjóm Ingólfs Guðbrandssonár 1973. Hvað varðar tónlistina sjálfa, þá reyni ég auðvitað að tjá sjálfan mig, en láta ekki formúlur binda mig niður. í þessu verki nota ég til dæmis fimmundir, án þess að úr verði kvintsöngur. Það em viss stef, sem ganga í gegnum allt verkið, Jón Ásgeirsson tónskáld. en það er ekki byggt upp á andstæð- um, heldur hugsað sem heild. Fimmundamotkunin á ekki að minna á gamla, íslenska tvísönginn, heldur gefur hún ákveðinn lit. Verk- ið er tónalt í uppbyggingu, ekki þó tóntegundabundið. Það er engin ein tóntegund, sem ræður þar, þó það byiji á f og endi á f. Eg vann verkið í þremur atrenn- um, en endanlegri gerð lauk ég 29. júlí 1977, samtals 561 taktur, sé ég stendur aftast. Annars var ég farinn að halda að það yrði aldrei flutt. Listahátíð vildi minnast átt- ræðisafmælis Steins á þessu ári með Steins-kvöldi á Kjarvalsstöð- um. Láta flytja tónlist og fá rithöf- unda til að flytja kvæðin hans. En það datt allt upp fyrir nema kór- verkið stendur eitt eftir. Því var þá slegið saman við ballettinn hennar Hlífar við tónlist Þorkels Sigur- bjömssonar, sem ég hlakka til að sjá og heyra, og er sáttur við sam- fylgdina við þau. Ég er afar hrifínn af ballett, kannski vegna þess að ég kann ekki að dansa og er svo luralegur . . .“ Þú segist hafa verið orðinn ugg- andi um flutning á verkinu. Skiptir gmmI gmmm gmmmm crörör r' JMB Ætm (T V S* V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.