Morgunblaðið - 07.06.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
15
það tónskáld máli að verkin séu
flutt, ekki bara að þau séu samin?
„Verkið verður ekki til fyrr en
það hefur verið flutt. Þó ég semji
verk og hafí skoðanir á hvemig það
sé og svo framvegis, þá skynja ég
það á allt annan hátt í flutningi.
Samvinnan við Þorgerði er líka sér-
stök, því hún hefur fyrir löngu sýnt
og sannað að hún er miklu meira
en kórstjóri. Hún er listamaður.“
Hvemig berðu þig að við
tónsmíðamar?
„Ég syng . . . en ekki endilega
upphátt. Mér er sagt að ég hafi
haft mikla náttúmrödd. Ætli ég
hefði ekki átt að verða söngvari,
líklega gott að hafa eitthvað til að
sjá eftir . . . Ég lærði reyndar svo-
lítið í söng, ekki þó til að verða
söngvari og er alinn upp við al-
þýðulög og þjóðlög. Fyrsta hljóð-
færið, sem ég lærði á var orgel,
lærði á það af sjálfum mér. Það var
alltaf notað við söng og söngurinn
er mér hið uppmnalega. Hef líka
samið mikið af söngverkum.
Þegar ég er að semja, hugsa ég
fyrst og fremst um hvemig ég upp-
lifí verkið, ekki um einhveija
ákveðna byggingu. Allt, sem ég hef
lært, hjálpar auðvitað, en það er
erfitt að átta sig, fóta sig og finna
leið, sem maður trúir á tilflnninga-
lega. Mér hefur aldrei fundist skipta
máli að fylgja nýjustu tísku. Ég vil
flnna til í því, sem ég er að vinna
í. Auðvitað hefur það tekist misjafn-
lega, en mér hefur fundist það
skipta meira máli en fræðileg for-
skrift.
Maður eins og Penderecki, sem
heimsækir okkur á þessari lista-
hátíð, hefur að nokkm losað sig
undan forskrift tólftónatækninnar
og farið að búa til tónlist, án þess
að hugsa um hvort hann tengist
ákveðinni tækniforskrift eða ekki.
Áhrifín em mjög sterk. Hann beitir
tónlistinni til að túlka tilflnningar
sínar til fyrirbæra eins og nasism-
ans eða mannlegra samskipta. Ég
hef aldrei getað litið svo á, að það
sé listsköpun að búa eitthvað til,
heldur að hún sé fyrst og fremst
tilfinningatjáning."
Eins og áður er sagt er það Þor-
gerður Ingólfsdóttir, sem stjómar
Hamrahlíðarkómum í flutningi
verksins nú. Þau em ekki ófá verk-
in, sem kórinn hefur fmmflutt og
nú bætist enn einn frumflutningur-
inn við. Hvað hefur stjómandinn
um verkið að segja?
„Það er með þetta verk eins og
alla góða hluti að það leynir k sér,
en opnast við frekari kynni. í upp-
hafl var það að ýmsu leyti óaðgengi-
legt, einkum vegna þess hve ljóðið
er torskilið. Flókinn texti, sem vinn-
ur á í kynningu. Við fengum til
okkar bókmenntafræðing til að fara
í gegnum textann með okkur. Eins
hefur tónskáldið sagt okkur frá til-
urð ljóðsins og þeim skilningi, sem
hann leggur í það. Þessi ígmndun
textans var okkur mikil hjálp.
Jón kemur til móts við torræðni
ljóðsins, í því era ákveðnar svipting-
ar, sem koma kannski fram í tónlist-
inni sem tempó- og blæbrigða-
skipti. Jón leggur mikla áherslu á
að kvæðið sé ástarljóð og við viljum
gjaman upplifa það þannig. En ég
vona að við getum komið biæbrigð-
um þess áleiðis, komið því til skila,
að þama er margt að fínna.
Eins og alltaf, þá er það mikil
vinna að æfa og flytja svo viðamik-
ið verk með áhugafólki. En kórfólk-
ið mitt þefur staðið sig alveg prýði-
lega. Ég er undrandi, að verkið
skuli ekki hafa verið flutt áður.
Mér er minnisstætt, þegar Pólýfón-
kórinn flutti fyrsta hluta þess undir
stjóm föður míns á sínum tíma.
Kvæði Steins hafa lengi verið mér
hugleikin. Lærði mörg þeirra utan
að sem unglingur, því foreldrar
mínir lögðu ríka áherslu á, að það
gæti enginn talið sig menntaðan
Islending, án þess að þekkja kvæði
Steins vel.
Það er alltaf mikið gleðiefni, þeg-
ar ný íslensk tónverk verða til. Og
í þessu tilfelli hefur tónskáldið valið
eitt af stórverkum íslenskrar ljóð-
listar til að búa í tónverk og gert
það á afar áhrifamikinn hátt. Von-
andi verður þessi flutningur okkar
nú til þess að verkið verði skoðað."
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
SIEMENS
Fullkomið símakerfi frá SIEMENS fyrir lítil fyrirtæki:
SATURN12
Stærð: 4 bæjarlínur og 8 innanhússnúmer.
Dæmi um möguleika kerfisins:
• Innbyggt innanhússkallkerfi
• Handfrjáls notkun
• Tónlistá biðlínu
• Næturtenging
• Valeftirlit
• Símafundur
Hringivörn
Eltisími
Skammval
Eins númers minni
Svaraðfyrirannan
Bókun bæjarlínu
Leitið nánari upplýsinga hjá símatæknideild okkar.
SMUH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Libby>
Stórgóða tómatsósan