Morgunblaðið - 07.06.1988, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
Hringskyrfið undir
Eyjafjöllum í rénun
Holti.
LOKIÐ er að girða vamargirðing-
ar um beitarhólf nautgripa á þeim
fjórum bæjum þar sem hring-
skyrfi hefur komið upp í Vestur-
Eyjafjallahreppi. Bændur lýsa
sjúkdómnum sem hættulausum,
sem læknast mun auðveldar en
þeir héldu, og jafnframt að smit-
hætta sé mun minni en þeir reikn-
uðu með. Telja þeir að sjúk-
dómurinn muni ekki breiðast
meira út en orðið er.
Tveir menn frá Girðingarverki á
Hvammstanga hafa undanfarið unn-
ið við að setja um 27 km rafmagns-
girðingu í beitarhólfum nautgripa á
þeim fjórum bæjum þar sem hring-
skyrfí hefur komið upp, í Indriða-
koti, Mið-Grund, Efstu-Grund og
Yzta-Skála. Júlíus Guðni Antonsson,
sem veitir fyrirtækinu forstöðu, sagði
aðspurður að hann færi með flokk
manna víða um landið til að setja
upp rafmagnsgirðingar. Þær væru
mun ódýrari í uppsetningu, en köll-
uðu á ákveðið viðhald og eftirlit, sem
tryggði að þær væru í lagi og héldu
skepnum frá. Þetta hefði verið frem-
ur erfítt viðfangsefni sökum fjölda
lítilla beitarhólfa, hliðin væru líklega
um 40, homstólpamir 250 og mikil
aukavinna við að girða yfír skurði.
Girðingamar væra tvöfaldar og mið-
uðust við einangran nautgripa, enda
hefði sjúkdómurinn ekki komið í nein
önnur dýr svo vitað væri. Verkið
væri unnið fyrir yfírdýralæknisem-
bættið.
Fréttaritari Morgunblaðsins hafði
samband við þá bændur þar sem
veikinnar hefur orðið vart og spurði
þá frétta um hver reynsla þeirrá
væri varðandi veikina.
„Skapi næst að þiggja
ekki þessar bæturnar"
Lárus Hjaltested á Mið-Grund
sagði að fyrst þegar veikin kom upp
í fyrrasumar hefðu engir áttað sig á
hvað þetta hefði verið. Fyrst hefði
hann álitið að þessir litlu blettir á
kúnum hefðu verið sólarexem. Síðan
hefði þetta komið í heimilisfólkið sem
sá um mjaltir en ekki aðra. Þegar
kom í ljós hvað þetta var, sem vora
litlir hringlaga blettir á höndum og
minni útbrot, var að læknisráði borið
á þetta joðspritt og hurfu þá blettim-
ir á skömmum tíma. Þrennt af heim-
ilisfólkinu fékk þetta og er fyrir
löngu læknað. Ekki er vitað um að
neinir aðrir hafi fengið þetta hér
undir Eyjafjöllum. Láras sagði að
eftir þeirri reynslu sem Eyfírðingar
hefðu orðið fyrir þegar veikin kom
þangað fyrir um 20 áram hefði hann
talið best að veikin bærist í alla naut-
gripina og reynt að stuðla að því.
Núna virtist honum þetta gengið
yfír og að hann sæi hringskyrfíð
aðeins í yngstu kálfunum. Hann
sagðist aldrei hafa séð að kýmar
hefðu haft nein óþægindi af þessum
blettum. Þær hefðu haldið nytinni
og með því að bera joðfor á blettina
hefði sér virst að þetta gengi mjög
fljótt yfír. Hins vegar sagði Láras
að umfjöllun ráðamanna um vamir
og bætur til bænda, sem hefðu orðið
fyrir tjóni, væra í megnasta ólestri.
Honum hefði verið skipað að slátra
öllum sínum hrossum, 44 að tölu,
af Sigurði Sigurðarsyni dýralækni,
vegna þess að hrossin gengu með
nautgripunum í haga. Ekki hefði
þessi veiki fundist í neinu hrossi
hans en verst væri að hann þyrfti
að sækja eftir á um bótagreiðslur
sem ekki væri enn ljóst hvenær eða
hvemig fengjust greiddar. Þær bæt-
ur sem rætt hefði verið um væra litlu
meiri en andvirði hrossanna fram-
reiknað með folaldainnleggi til
hausts. Sauðféð hefði aðeins verið
14 kindur sem hann samþykkti að
yrði slátrað. Bætumar vora svo litlar
sem boðnar væra að honum væri
skapi næst að þiggja þær ekki. En
mest væri afurðatjónið af kúabúinu,
því honum væri meinað að setja á
Aðstæður heyrnarlausra kannaðar:
VATN
giörðu
svo vel
Hvort sem þú ætlar aö veita vatni um lengri eöa skemmri veg
ervarlatil auöveldari og ódýrari leiö
en gegnum rörin frá Reykjalundi.
Rörin frá Reykjalundi eru viöurkennd fyrir gæði
og auövelda meðferö.
Flestar stærðir vatnsröra, kapalröra, frárennslisröra
og hitaþolinna röra eru jafnan til á lager og
meö tiltölulega stuttum fyrirvara er hægt aö afgreiða sverari rör.
Sérstök áhersla er lögö á mikla og góða þjónustu.
Rörin frá Reykjalundi
- rör sem duga.
REYKJALUNDUR
Söludeild • Sími 666200
Túlkunarþj ón-
usta og’textasími
brýnustu málin
Heymarlausir búa við lakari
kjör en almennt gerist og félags-
leg staða þeirra er slæm, sam-
kvæmt könnun er félagsmálaráðu-
neytið lét gera sl. febrúar. Leiðir
til úrbóta fyrir þennan hóp eru í
undirbúningi. Má þar helst nefna
túlkunarþjónustu, textasíma, og
tryggingabætur.
Spurt var m.a. um aðstæður s.s.
húsnæði, ijölskylduaðstæður, at-
vinnuástand, tekjur, menntun, fé-
lagsleg tengsl, og hugmyndir félags-
manna um úrbætur. Niðurstöður
könnunarinnar leiddu í ljós að að-
stæður heymarlausra era á langf-
lestum sviðum mun lakari en al-
mennt gerist í þjóðfélaginu. „Er sú
staðreynd ekki áfellisdómur, heldur
vegvísir að því sem betur mætti fara"
sagði Gunnar Salvarsson, skólastjóri
Heymleysingjaskólans
Hér á landi era nú 150 — 200
manns heymarlausir, eða heymar-
skertir. Allflestir eiga, eða hafa átt
við húsnæðisvanda að glfma, og búa
yfírleitt þröngt. Um 54% félags-
manna era einstaklingar sem búa
einir, eða hjá aðstandendum. I langf-
lestum tilvikum giftist fólk innan
hópsins og búa þá báðir aðilar við
þessa fötlun. Er það dæmigert fyrir
erfíð tjáskipti milli heyrandi fólks og
heymarlausra í landinu.
Meira en helmingur svarenda er
virkur á vinnumarkaði og er mikill
meirihluti þeirra ófaglært verkafólk.
Langflestir félagsmenn vinna lág-
launavinnu, s.s. ýmisskonar iðnaðar-
störf. Era yfír 40%, eða 12 manns,
menntaðir til þess. Háskólamenntun
hafa 17% þeirra sem svöraðu, sem
era 5 manns. Tölvumenntun hafa 9
manns, en áhugi félagsmanna var
mikill á frekari menntun og sérstak-
lega tölvumenntun. Rúmur helming-
ur þeirra sem svöraðu hafa ekki lok-
ið námi eftir 18 ára aldur. Menntun-
armöguleikar hafa hingað til ekki
verið miklir, en heymarlausir þurfa
á túlk að halda við nám í skólum.
Oskir heymarlausra era fyrst og
fremst þær að félagsleg einangran,
sem þeir búa við vegna fötlunar
sinnar, verði rofín. Hinn heyrandi
maður gerir sér ekki ljóst hve vandi
þeirra heymarlausu er mikill. Dagleg
umgengni er vandkvæðum bundin,
t. d. samskipti við allar opinberar
stofnanir, s.s. læknaþjónustu, lög-
reglu, skóla osfrv. Heymarlausir
hafa ekki venjulegan málskilning og
geta oft ekki nýtt sér ýmsa fjöl-
miðla, jafnvel ekki lesmál. Þeir njóta
ekki sjónvarps sem skyldi nema texti
fylgi mynd, en því hefur verið ábóta-
vant til þessa. Textuð myndbönd era
því vinsæll hluti af þeirra tómstund-
un. Síma geta þeir einir notað sem
eiga svokallaðan textasfma, en þeir
era fáir og tæki þessi úrelt að verða.
I stað þeirra er komin ný tölva á
markaðinn sem gegnir sama hlut-
verki, gefur fleiri möguleika og er
kostnaðarminni.
Nefndina skipa Vilhjámur G. Vil-
hjálmsson, formaður í félagi heymar-
lausra, Anna Jóna Lárusdóttir, vara-
formaður félagsins, Gunnar Salvars-
son, skólastjóri Heymleysingjaskól-
ans, Sólrún Jensdóttir, skrifstofu-
stjóri Menntamálaráðuneytis, og
J