Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
47
það var ekki um að villast að nú var
hásumar í ranni hins unga manns.
Konan hans, Lalla, eins og við köll-
uðum hana, varð einnig góður vinur
okkar. Þau voru mjög samhent og
elskuleg hjón og nutum við oft
greiðasemi þeirra og hlýhugar. Þau
Lalla og Þórður eignuðust sitt fyrsta
bam 29. nóvember 1943, dreng, sem
skírður var Erlendur, mikið efnis-
bam og sjálf sólin í lífi hinna unga
hjóna. En skyndilega syrti að, dreng-
urinn veiktist af heilahimnubólgu og
dó aðeins tæplega tveggja ára, þann
15. júlí 1945. Því áfalli verður ekki
með orðum lýst. En í lífi hvers og
eins fylgjast að ljós og skuggar og
ljósið braust fram á ný þegar þau
eignuðust annan dreng 11. október
1945. Erlendur heitir hann og er
bifreiðastjóri hér í Reykjavík. Hann
var kvæntur Ólafíu Guðnadóttur og
eiga þau 3 böm, Þórð,, Guðlaugu og
Maríu Dröfn. Þau hjónin skildu og
býr nú Erlendur með Unu Hlíf Gunn-
arsdóttur.
Þórður var í Oddfellow-reglunni í
40 ár í stúkunni Ingólfi.
Og nú er aftur vor, en komið að
leiðarlokum hjá Þórði í okkar veröld.
Ég bið góðan Guð að blessa og varð-
veita hann í síðustu ferðinni. Við
systumar þökkum honum samfylgd-
ina og sendum innilegar samúðar-
kveðjur elskulegri vinkonu okkar,
Guðlaugu, syni og barnabörnum.
Blessuð sé minning hans.
Svanlaug Böðvarsdóttir
Ég, sem þessar línur rita, fyrir
hönd nokkurra starfsfélaga Þórðar
Sigurðssonar hjá Olíufélaginu hf.,
var staddur erlendis er ég frétti að
vinur minn Þórður hefði fengið
hjartaáfall og lægi helsjúkur á
sjúkrahúsi og væri vart hugað líf.
Þar lést hann fáum dögum síðar án
þess að komast til meðvitundar.
Þórður Sigurðsson fæddist í
Reykjavík 13. ágúst 1917, sonur
hjónanna Kristjönu Erlendsdóttur og
Sigurðar íshólms. Þórður ólst upp
hér í Reykjavík til 13 ára aldurs en
þá fór hann til vinnu á búi Böðvars
Magnússonar á Laugarvatni þar sem
hann vann næstu árin að öllum hefð-
bundnum bústörfum. Á Laugarvatni
kynntist Þórður Ólafí Ketilssyni, sér-
leyfishafa, sem þá var farinn að aka
milli Laugarvatns og Reykjavíkur og
réðst til hans til aksturs og viðgerða
á bflum hans.
Um 1941 fluttist Þórður til
Reykjavíkur og vann við akstur og
bflaviðgerðir, meðal annars á bfla-
verkstæðinu Þrótti og síðar Stefni,
en ók sérlejrfis- og hópferðabflum á
summm. Árið 1954 réðst Þórður til
Olíufélagsins hf., sem lagerstjóri á
bflalager félagsins þar sem hann
starfaði til ársins 1975, er hann flutt-
ist á aðalskrifstofu félagsins þar sem
hann sá um útréttingar skjala í tolli
og bönkum ásamt flutningi fjármuna
milli afgreiðslustaða og aðalskrif-
stofu. Öll þessi störf vann Þórður
af mikilli árvekni og samviskusemi
og vann sér traust yfirmanna sem
annarra samstarfsmanna. Þegar
Þórður varð 70 ára, fyrir tæpu ári,
lét hann af störfum og hugðist njóta
ellinnar við ýmis hugðarefni sín.
31. maí 1941 kvæntist Þórður eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Guðlaugu
Erlendsdóttur, og taldi Þórður það
sitt mesta gæfuspor, enda reyndist
Guðlaug manni sínum mikil stoð og
stytta í gegnum þeirra löngu sambúð
allt þar til yfír lauk. Þau eiga einn
son á Hfi, Erlend Þórðarson, leigubif-
reiðarstjóra, fæddan 11. október
1945. Þau hjón vom miklir unnendur
íslenskrar náttúm og ferðuðust mik-
ið, og hygg ég að þeir staðir séu
fáir hér á landi sem þau hafa ekki
augum litið. Sérstakt dálæti höfðu
þau á Þórsmörk og Þingvöllum, þar
sem þau staðsettu hjólhýsi sitt í
nokkur sumur. Þá vom ferðir þeirra
á Vatnajökul ófáar og starf þeirra í
þágu Jöklarannsóknafélagsins mikið
í fjölda ára. Þá naut Flugbjörgunar-
sveitin í Reykjavík starfskrafta
þeirra í fjölda ára. Virkur þátttak-
andi í mannúðarstarfi Oddfellow-
reglunnar á íslandi var Þórður í
fjölda ára.
Við starfsfélagar Þórðar hjá Olíu-
félaginu þökkum honum að leiðarlok-
um samfylgd liðinna ára og biðjum
honum blessunar guðs. Eftirlifandi
eiginkonu, syni og öðmm aðstand-
endum sendum við innilegar samúð-
arkveðjur og biðjum Guð að styrkja
þau í sorg sinni.
Samstarfsmenn
LANDSPITALi
BLÓDBANKI
RANNSÓKNARSTOFA
HÁSKÓLANS
SKRIFSTOFUR 60 10 00
GEDDEILDIR
DALBRAUT 60 25 00
KLEPPSSPÍTALI 60 26 00
KÓPAV0GSHÆLI 60 27 00
VÍFILSSTADASPÍTALI 60 28 00
Hin nýja símstöd Landspítalans verður með beinu innvali.
Það þýðir að aðilar utan spítalans geta
hríngt beint í innanhússnúmer,
í stað þess að fara í gegnum skiptiborð. Þetta gerist með því móti
að 60 er bætt fyrir framan viðkomandi innanhússnúmer.
Dæmi: Innanhússnúmer 22 51
Beint innval 60 22 51
Vinsamlegast léttið á skiptiborðinu og nýtið beina innvalið.
RÍKISSPÍTAÍAR
essemm/slA 19.12