Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
HAFNARFJARÐARKAUPSTAÐUR 80 ARA:
Velheppnaðri
afmælishátíð lokið
- Morgunblaðið/Ól.K.M.
í kringum tvö þúsund manns voru á fjölskylduhátíðinni í íþróttahúsinu við Strandgötu.
HÁTÍÐAHÖLDUNUM í Hafnar-
firði, í tilefni 80 ára afmælis kaup-
staðarins, lauk um helgina með
fjölskylduhátíð i Iþróttahúsinu við
Strandgötu. Þessi dagskrárliður
var fjölsóttur sem og aðrir i þess-
um hátiðahöldum. Talið er að um
2000 manns hafi verið i Iþrótta-
húsinu þegar mest var.
Dagskráin var fjölbreytt á laugar-
daginn. Fram komu fjölmargir
skemmtikraftar og íþróttahópar, þar
á meðal dansflokkurinn Túnfiskar,
fimleikaflokkurinn Björk og tónlist-
Fiat Uno 45
(gengijúm' ’88J
t * • *"*■*
. i %. (, , \ mm
(gengi júní 88)
Peugeot205XL
V ->'> \
S
Daihatsu Charade TS*
(gengi 18/5 88)
* Innifalið; nýskráning, bifreiðaskattur og verksmiðjuryðvörn
. (ca. 17.000 kr.).
SÆBK
Citroen AXIORE*
(gengi24/5 88)
’lnnifalið; fullur bensíntankur (ca 1.700 kr.).
wtm
1 s
E
•» E
Si
> S
' ------ / -/ 1 ■
S \ f \ t ' '~X/ «
: ? j / \M / « “i FPÁMTÍO ^SIJBFUNÁ lÍMÁFtt688850\& 6851|)(/ V , -
mmL* v ' s
ÖLL VERE) ERU STAÐGREIÐSLUVERÐ
armennimir Björgvin Halldórsson,
Kjartan Magnússon og Bjartmar
Guðlaugsson sem sungu og léku fyr-
ir gesti.
I Bæjarbíói var kvikmyndasýning
fyrir bæjarbúa á myndinni „Hafnar-
fjörður fyrr og nú“ og var húsið troð-
fullt áhorfendum og komust færri
að en vildu. Vegna flölda áskorana
hefur verið ákveðið að endursýna
myndina. Búið er að gefa út á mynd-
band þijár heimildarmyndir um sögu
Hafnarfjarðar og verða þær til útláns
í bæjar- og héraðsbókasafni Hafnar-
fjarðar og stefnt er að því að hafa
þær einnig til sölu.
Á föstudaginn var afhjúpað nýtt
listaverk eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur
og Gest Þorgrímsson sem prýðir hús
Fiskmarkaðarins. Þetta er veggmynd
af fiskum og eru þeir gerðir úr áli.
Á laugardag var leikin knattspyma
á Thorsplani og þar fór einnig fram
flugvélamódelsýning og fallhlífar-
stökk.
Hátíðin tókst í alla staði mjög
vel, að sögn Gunnars Rafns Sigur-
bjömssonar bæjarritara. „Þátttaka
var mjög mikil á öll dagskráratriði
og hafa aldrei jafn margir verið sam-
ankomnir í íþróttahúsinu og á laug-
ardag. Þetta gat ekki tekist betur.
Við vomm heppin með veður því
þótt það hafi ekki beinlínis leikið við
okkur þá kom það ekki í veg fyrir
að hátíðin gengi snurðulaust fyrir
sig og engu dagskráratriði þurfti að
fresta vegna veðurs," sagði Gunnar
Rafn Sigurbjömsson að lokum.
SagaHafnar-
fjarðar á
myndböndum
HAFNARFJARÐARBÆR gekkst
fyrir endursýningu á nýuppgerðu
eintaki myndarinnar „Hafnar-
fjörður fyrr og nú“ í Bæjarbíó 2.
júni síðastliðinn. Myndin er ein
þriggja heimildarmynda um sögu
Hafnarfjarðar sem Hafnarfjarð-
arbær hefur látið yfirfæra á
myndband. Bærinn hyggst safna
öllum heimildarkvikmyndum sem
gerðar hafa verið um kaupstaðinn
og beita sér fyrir varðveislu þess-
ara menningarverðmæta með
myndbandaútgáfu. í tengslum við
80 ára afmæli Hafnarfjarðar-
kaupstaðar hafa þtjár mynd-
bandsspólur verið gefnar út og
verða þær tíl útleigu hjá Bæjar-
og héraðsbókasafni Hafnarfjarð-
ar.
Myndböndin em „Hafnarfjörður
og nágrenni" sem er safn þögulla
heimildarmynda. Meðal efnis er for-
setaheimsókn Sveins Bjömssonar,
íþróttir á Hörðuvöllum og 1. maí
hátíðahöld, svo á fátt eitt sé minnst.
Sýningartími myndbandsins er 150
mínútur.
„Hafnarfjörður fyrr og nú“ er
heimildarmynd sem Hafnarfjarðar-
bær lét gera á árunum 1957 til 1962.
Myndin rekur sögu Hafnarfjarðar frá
landnámsöld fram undir 1960. Mynd-
in var frumsýnd árið 1962 í Bæj-
arbíói. Kvikmyndatökumaður var
Ásgeir Long sem gert hefur fjöl-
margar heimildarkvikmyndir á
þijátíu ára starfsferli. Þulir myndar-
innar eru hinir kunnu leikarar Ró-
bert Amfinnsson, Brynjólfur Jóhann-
esson, Steindór Hjörleifsson og Guð-
björg Þorbjamardóttir. Sýningartími
myndarinnar er 88 mínútur.
Þriðja myndbandið sem Hafnfirð-
ingum stendur nú til boða að sjá, er
heimildarkvikmynd sem gerð var í
tilefni 1100 ára afmælis íslands-
byggðar árið 1974. Myndin lýsir
hátíðahöldum í Hafnarfirði þjóðhát-
íðarsumarið 1974 og gerir grein fyr-
ir starfsemi ýmissa stofnana og fyrir-
tækja. Myndin var frumsýnd í Bæj-
arbíói 17. júní 1978. Sýningartími
hennar er 47 mínútur.