Morgunblaðið - 07.06.1988, Page 72
■g^r^pQR1 £5 jltilf lirir (söií ÍSirit Á GRÆ/V/VIGREÍN MEÐ
1 40&&S&'
ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNI 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Verðlagsráð sjávarútvegsins:
Fundur án full-
trúa sjómanna
Framkvæmdastjóm Sjó-
mannasambands Islands ákvað í
gær að draga fulltrúa sinn úr
Eltu uppi
stolinn
leigubíl
► •» LÖGREGLAN á Selfossi elti í
gærkvðldi uppi ökumann stolinn-
ar leigubifreiðar úr Búðardal.
Auk tveggja bíla Selfosslögregl-
unnar tók lögreglubifreið úr
Reykjavfk þátt í eftirförinni frá
Hveragerði. Ökumaðurinn lét
ekki staðar numið fyrr en á Eyrar-
bakka þar sem hann var króaður
inni.
Eigandi leigubifreiðarinnar, sem
er nýr Mercedes Benz, uppgötvaði
hvaifið þegar hann ætlaði til vinnu
sinnar á mánudagsmorgun. Lýst var
eftir bifreiðinni í hádegisútvarpi og
hafði lögreglan síðar fregnir af henni
á leið í austurátt.
Það var svo um kvöldmatarleytið
að lögregluþjónar frá Selfossi mættu
bifreiðinni við Hveragerði og reyndu
að stöðva hana. Ökumaðurinn sinnti
ekki merkjum þeirra en reyndi að
komast undan. Hann ók afleggjarann
niður á Eyrarbakka, en virtist ekki
þeklga staðháttu betur en svo að
hann lenti í blindgötu.
Bílinn er óskemmdur. Ökumaður-
inn og farþegi hans voru fluttir í
fangageymslur lögreglunnar í
Reykjavík. Þeir mun báðir hafa kom-
ið við sögu lögreglunnar áður.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sprangaðá
sjómannadegi
Hátíðarhöld Sjómannadagsins
í Vestmannaeyjum hófust á
laugardag. Á meðan fólk var
að koma sér fyrir og beðið var
eftir að dagskráin byijaði
sýndu nokkrir ungir peyjar fimi
sína í „Spröngunni". Þessi sýn-
ir hér glæfrastökk á annarri
hendi í 20 metra hæð.
Sjá ennfremur bls. 28, 29
og 39.
Verðlagsráði sjávarútvegsins
fram í september, en þá mun
þing Sjómannasambandsins taka
afstöðu til setu fulltrúans í ráð-
inu. Verðlagsráð kemur saman í
dag kiukkan 15 til að fjalla um
verð á rækju og hörpudiski.
Hólmgeir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sjómannasambandsins, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær
að nú væri verið að athuga með
hvaða hætti væri hægt að vísa físk-
verðsákvörðuninni síðastliðinn
fostudag til gerðardóms, en lög-
fræðingur Sjómannasambandsins
hefur það mál nú til athugunar.
Sjómenn telja fiskverðsákvörð-
unina brot á bráðabirgðalögunum,
þar sem segir að laun, þar á meðal
kauptrygging sjómanna, skuli
hækka hinn 1. júní um það sem
kann að vanta upp á 10% hækkun
frá 31. desember 1987. Fiskverð
hækkaði sem kunnugt er um 5%
að meðaltali, gegn atkvæðum full-
trúa seljenda.
í 6. grein bráðabirgðalaganna
segir að rísi ágreiningur um túlkun
á ákvæðum laganna geti verkalýðs-
félög og félög vinnuveitenda vísað
honum til sérstaks gerðardóms og
á þessa grein vilja sjómenn nú láta
reyna. Gerðardómurinn skal skipað-
ur þremur fulltrúum; einum frá
hvorum aðila kjarasamnings og
þeim þriðja frá Hæstarétti. Úr-
skurður þessa gerðardóms er fulln-
aðarúrskurður.
Penderecki, söngvarar og hljóðfæraleikarar í lok tónleikanna á laugardag.
Morgunblaðið/Þorkell
Sálumessan „stórvirki í
alþjóðlegum skilningi“
ÁHEYRENDUR á sálumessu
Pendereckis í Háskólabíói á
laugardaginn fögnuðu tón-
skáldinu og stjórnandanum
mjög að flutningi loknum.
„Hann er snillingur . . . requi-
em Pendereckis er stórvirki í
alþjóðlegum skilningi, furðu-
legur millivegur auðveldrar
áhrifatækni og dýpstu sann-
inda,“ segir Leifur Þórarinsson
tónskáld í DV í gær. í Morgun-
blaðinu i dag segir Egill Frið-
leifsson: „Við urðum vitni að
glæsilegum flutningi á einu at-
hyglisverðasta tónverki, sem
fram hefur komið hin siðari
ár.“
Á tónleikum Fílharmóníuhljóm-
sveitarinnar frá Poznan á Lista-
hátíð á sunnudag lék píanóleikar-
inn Piotr Paleczny undir stjóm
Wojcieh Michniewskis. Leifur
Þórarinsson segir svo meðal ann-
ars um leik Palecznys í fyrsta
píanókonsert Chopins: „Slíka
músíkinnlifun og fullkomnun í
túlkun er sjaldgæft að heyra, þar
sem hver frasi er fluttur af svo
sannfærandi frumleika að áheyr-
endur sundlar næstum við flugið."
Sjá ennfremur bls. 12, 13 og
miðopnu.
Efnt til viðræðna í Lund-
únum um stækkun álversins
Alusuisse o g þrjú önnur stórfyrirtæki ræða samstarf
VIÐRÆÐUNEFND íslenskra
stjómvalda mun um miðjan mán-
uðinn eiga fund i Lundúnum með
fulltrúum Alusuisse og þriggja
stórfyrirtælqa um hugsanlega
stækkun álversins i Straumsvík.
Hugmyndin er að stækka álverið
um helming og hefja verkið á
næstu þremur ámm. Að sögn
Jóhannesar Nordal oddvita
nefndarinnar hrekkur orka
Blönduvirkjunar ekki til og
þyrfti að virkja meira á Búrfelli
og Sultartanga ef af fram-
kvæmdum yrði.
Álverð í heiminum er nú hærra
en nokkru sinni. Að sögn Ragnars
Halldórssonar forstjóra ÍSAL var
verðið í lægð um fímm ára skeið
en rauk síðan skyndilega upp og
var orðið viðunandi um mitt síðasta
ár. Þegar verðbréfahrunið varð í
október lækkaði álverðið nokkuð
en tók síðan við sér og sveiflast
þriggja mánaða verðið nú á milli
80.000 og 100.000 króna tonnið.
„Sökum mikilla fjárhagsörðug-
leika á sínum tíma varð Alusuisse
afhuga hugmyndum um stækkun
álversins en staða fyrirtækisins
hefur batnað mjög að undanfömu
og því hefur það tekið afstöðu sína
til endurskoðunar,“ sagði Jóhannes
Nordal í samtali við Morgunbiaðið.
Hann kvað fundinn í Lundúnum
fyrst og fremst haldinn til að kanna
hvort af samvinnu þessara aðila
gæti orðið.
Fyrirtækin sem sýnt hafa áhuga
eru auk Alusuisse Alumined Beheer
í Amsterdam, Austria Metall í Ran-
eshofen í Austurríki og Gröanges
Aluminium í Stokkhólmi. Þau tvö
fyrmefndu reka álver og úrvinnslu-
stöðvar en sænska fyrirtækið sem
er dótturfyrirtæki Electrolux hefur
byggt upp úrvinnsluiðnað úr áli á
undanfömum árum.
Friðrik Sophusson iðnaðarráð-
herra sagðist vera bjartsýnn á
árangur í viðræðunum, en nokkur
tími kynni að líða þar til hann
kæmi fram. Meðal óvissuþátta
væri hvort þessi þijú fyrirtæki
væru fús til samvinnu við Alusu-
isse. „Ég tel að góður árangur
geti orðið af slíkri samvinnu. Alusu-
isse er að því leyti betur sett en
hinir aðilamir að það þekkir að-
stæður hér mætavel en íslensk
stjómvöld þekkja svo aftur á móti
best til þess fyrirtækis. Það væri
því hugsanlega hægt að nota samn-
ingsform frá fyrri tíð,“ sagði Frið-
rik Sophusson.
Flugleiðir funda með flugmönnum:
Tafír á irnianlandsfíugi
FLUGMENN og forsvarsmenn Flugleiða funduðu í gær um kjara-
mál og er það fyrsti fundur þessara aðila eftir setningu bráðabirgða-
laga ríkisstjórnarinnar hinn 20. maí síðastliðinn. Fundinum, sem
haldinn var að beiðni flugmanna, lauk án niðurstöðu og honum
frestað um óákveðinn tíma. Síðasti gildandi kjarasamningur flug-
manna rann út um áramótin.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði að á fundinum
hefði flugmönnum verið kynnt sú
afstaða félagsins að bráðabirgða-
lögin byndu hendur þess í kjaramál-
um, þar sem þar hefðu ákveðnar
hækkanir verið lögboðnar og
síðustu gildandi kjarasamningar
framlengdir.
Minniháttar tafir hafa orðið á
innanlandsflugi Flugleiða undan-
farið og hefur reynst nokkrum erf-
iðleikum bundið að halda settri
áætlun. Að sögn blaðafulltrúa Flug-
leiða má að hluta til rekja tafimar
til veðurskilyrða. Baldur Oddsson,
varaformaður Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna, sagði aðspurður
að hann vissi ekki til þess að flug-
menn færu sér hægt við störf sín,
hins vegar gættu þeir fyllsta örygg-
is eins og þeir gerðu raunar alltaf.
Um bráðabirgðalögin sagðist hann
búast við að menn ættu erfítt með
að sætta sig við að vinna undir
þvingun og það væri mat félagsins
að hægt væri að gera kjarasamn-
inga innan ramma bráðabirgðalag-
anna. Búið hefði verið að halda
sárafáa stutta fundi, þegar kom til
lagasetningarinnar.