Morgunblaðið - 14.06.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ1988
Þing norrænna barnalækna:
Islensk böm í hópi þeiira
stærstu og þyngstu
Kynþroski hefst fyrr hér en á Norðurlöndunum
Á þing’i norrænna barna-
lækna sem nú stendur yfir,
kynna fjórir íslenskir bama-
læknar niðurstöður rannsókna
sem þeir gerðu á hæð, þyngd
og kynþroska rúmlega 5.500
bama á aldrinum 6-16 ára. I
ljós kom að islensk börn em
nokkm stærri og þyngri en
jafnaldrar þeirra annars stað-
ar; t.d. Svíþjóð og að kynþroski
íslenskra unglinga hefst
nokkm fyrr en hjá jafnöldmm
þeirra á hinum Norðurlöndun-
um.
Könnunin fór fram á tímabilinu
nóvember 1985 til apríl 1987.
Skoðuð voru 5554 börn; 4.173
börn af Stór-Reykjavíkursvæðinu
og 1.381 af landsbyggðinni. Mæld
var hæð og þyngd barnanna, kyn-
þroski auk fleiri athugana, sem
ekki verða kynntar á þinginu.
Voru niðurstöðumar bornar sam-
an við athuganir Svía og Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar í ýms-
um löndum.
Kynþroski íslenskra unglinga
hefst að nokkrum mánuðum fyrr
en jafnaldra þeirra á Norðurlönd-
um. Fyrstu einkenni kynþroska
íslenskra stúlkna em að jafnaði
um IOV2 ára aldur og drengja um
12 ára og tíðablæðingar stúlkna
heijast um 13 ára aldur, að sögn
Áma Þórssonar, bamalæknir en
hann er einn læknanna úögurra
sem að könnunni standa.
„Við kynnum hér íslenskan
stalal á hæð og þyngd bama en
slíkt er afar hjálplegt þegar vaxta-
rörðugleikar barna em til rann-
sóknar. Þá gefur slíkur staðall
okkur mikilvægar upplýsingar um
mataræði og félagslegt ástand
bamanna," sagði Ámi. Ami sagði
muninn á íslenskum bömum og
t.d. sænskum, marktækan. Sé
tekið dæmi af hæð 12 ára
íslenskra barna, er meðalhæð
drengja 151,6 sm og meðalhæð
stúlkna 152,9 sm. Aðspurður
sagðist Ámi ekki viss um að
íslensk böm væm stærst allra
VEÐURHORFUR í DAG, 13. JÚNÍ 1988
YFIRLITIGÆR: Yfir austurströnd Grænlands vestur af Vestfjörðum
er 1.000 mb lægð, sem þokast norðaustur og önnur álíka vestur
við Nýfundnaland og mun hún einnig hreyfast norðaustur. Áfram
verður hlýtt um norðaustan- og austanvert landið en mun svalara
sunnan- og vestanlands.
SPÁ: Suðlæg eða suðvestlæg átt. Allhvasst og rigning á Suðvest-
ur- og Vesturlandi, og þegar líður á daginn fer einungis að rigna
suðaustanlands og á vestanverðu Norðurlandi. Þurrt norðaustan-
lands og jafnvel bjart veöur fram eftir degi. Hiti á bilinu 10—20
stig, hæstur á Noröausturlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðsuðvestan átt, rigning og siðar skúr-
ir á Suður- og Vesturlandi en úrkomulítið annars staðar. Hiti 8—15
stig, hlýjast norðaustanlands.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestan átt og smáskúrir vestan-
lands, en þurrt og bjart veður austanlands. Hiti verður 8—12 stig
á Suðvestur- og Vesturlandi en 12—18 stiga hiti i öðrum lands-
hlutum.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjökoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
híti veóur
Akureyri 13 skýjað
Reykjavtk 7 skúr
Bergen 10 skýjað
Hetsinki 12 rígning
Jan Mayen +1 þoka
Kaupmannah. 18 léttskýjað
Narssarssuaq 5 rigning
Nuuk 2 rigning
Osló 19 skýjað
Stokkhólmur 17 skýjað
Þórshöfn 9 léttskýjað
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 16 heiðskirt
Aþena vantar
Barcelona 17 þokumóða
Chicago vantar
Feneyjar 18 þokumóða
Frankfurt 14 léttskýjað
Glasgow 11 léttskýjað
Hamborg 12 léttskýjað
Las Palmas vantar
London 12 léttskýjað
Los Angeles vantar
Lúxemborg 13 þokumóða
Madríd 13 skýjað
Malaga 20 skýjað
Mallorca vantar
Montreal vantar
New York vantar
París 14 þokumóða
Róm 19 þokuruðningur
San Diego vantar
Winnipeg vantar
Moprgunblaðið 'KGA
Árni Þórsson kynnir niðurstöður rannsókna á 5.500 íslenskum böm-
um.
bama á Norðurlöndum.
„Þessar niðumtöður em í sam-
ræmi við bættan aðbúnað bama,
enda teljum við að hér á landi sé
hann með því besta sem gerist."
Að könnuninni stóðu Atli Dag-
bjartsson, Árni Þórsson, Víkingur
Amórsson og Gestur Pálsson.
SigurðurS. Gíslason
hótelstjóri látínn
SIGURÐUR S. Gíslason, hótel-
stjóri á hótel Borg, lést í Borg-
arspítalanum aðfaranótt 12.
júní, 67 ára að aldri.
Sigurður var fæddur í
Reykjavík 31. ágúst 1920 sonur
hjónanna Gísla Þorkelssonar og
Rannveigar Jónsdóttur. Hann hóf
ungur nám við framreiðslustörf á
hótel íslandi og starfaði þar þang-
að til það brann árið 1944. Þá hóf
hann störf á hótel Borg, þar sem
hann starfaði til dauðadags, fyrst
sem framreiðslumaður og síðan
sem hótelstjóri hátt á annan ára-
tug. Auk þessa hafði hann í árar-
aðir veg og vanda af opinberum
veislum í Ráðherrabústaðnum fyr-
ir stjómvöld.
Sigurður kvæntist árið 1940
Jónu Salvöru Eyjólfsdóttur, en hún
lést 1980. Þeim varð sex bama
auðið. Síðustu æviárin bjó Sigurð-
ur með Ólöfu Runólfsdóttur.
Sigurður S. Gíslason.
Monika frá
Merkigili lá tin
MONIKA S. Helgadóttir frá
Merkigili í Skagafirði lést á
sjúkrahúsi Sauðárkróks föstu-
daginn 10. júní á áttugasta og
sjöunda aldursári.
Monika var fædd 25. nóvember
árið 1901 að Ánastöðum í Skaga-
firði dóttir hjónanna Helga Bjöms-
sonar og Margrétar Sigurðardótt-
ur. Hún fluttist að Merkigili árið
1924 og giftist Jóhannesi Bjarna-
syni bónda þar árið 1926. Þau
eignuðust átta böm, sem öll kom-
ust upp. Monika missti mann sinn
árið 1944 og bjó eftir það með
börnum sínum á Merkigili allt til
dauðadags, en alls bjó hún 62 ár
á Merkigili.
Monika varð landsfræg eftir að
Dagskráin í dag
20.00 Iðnó
Théatre de l’Arbre
„S.O.S." - látbragðsleikur
Yves Lebreton
Monika S. Helgadóttir.
Guðmundur G. Hagalín skrifaði
bók um hana, sem nefndist Konan
í dalnum og dæturnar sjö. Bókin
kom út árið 1952.