Morgunblaðið - 14.06.1988, Síða 18
SVOXA CERUM VIÐ HLUTAFÍLAC SÍA
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988
Trilene
Nemendur Tónlistarskóla ísafjarðar á samæfingu.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
þ ftttfYgpisstMitfrife
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
NÍÐSTERK
ÞUNGAVIGTARLÍNA
Fœst í nœstu sportvöruverslun.
Tónlistarskóla ísafjarðar slitið:
40 ára afmælis Tón-
listarfélagsins minnst
Myllu Grillbrauö eru Ijúffeng smábrauð, sem þú grillar í fáeinar mínútur,
- og grillmaturinn bragðast betur en nokkru sinni fyrr. Grillbrauð eru kjörin
til að taka með í útilegu eóa sumarbústað. Myllu Grillbrauð er úrvals
meðlæti með hvaða grillmat sem er, - alveg grillandi góð.
BRAUÐ HF. - SlMI 83277
TÓNLISTARSKÓLA ísafjarðar
var slitið í hátíðarsal Grunn-
skólans á ísafirði þann 21. maí
s.l. Við sama tækifæri var 40
ára afmæli Tónlistarfélags ísa-
fjarðar minnst en það var stofn-
að 20. maí 1948.
Við skólaslitin flutti Sigríður
Ragnarsdóttir skólastjóri ávarp
þar sem hún rifjaði upp skólastarf-
ið í vetur. 170 nemendur stunduðu
reglulegt nám við skólann en
kennarar voru 16. Kennt var á öll
algengustu hljóðfæri: píanó,
strengjahljóðfæri, tréblásturs-
hljóðfæri og málmblásturshljóð-
færi. Tónfræði var kennd í mörg-
um deildum auk hljómfræði og
tónmenntar fyrir fullorðna byij-
endur. Fjölmargir tónleikar voru
haldnir á vegum skólans, bæði ein-
stakra nemenda, lúðrasveitar og
bamakórs.
Aðrir sem fluttu ávörp voru
Bára Einarsdóttir, formaður Tón-
listarfélags ísafjarðar, Sigurður
Jónsson einnig frá Tónlistarfélag-
inu og Kristján K. Jónasson for-
seti bæjarstjórnar ísafjarðar. Aðal
uppistaða hátíðahaldanna var
hljóðfæraleikur nemenda skólans
auk þess sem barnakórinn söng.
Stofnandi Tónlistarskóla ísa-
fjarðar var Ragnar H. Ragnar og
stjómaði hann skólanum frá upp-
hafí til ársins 1983 og kenndi við
skólann til haustsins 1987. Þá tók
við stjóm Sigríður Ragnarsdóttir,
núverandi skólastjóri.
Tónlistarfélag ísafjarðar var
stofnað 20. maí 1948 og er til-
gangur þess m.a. að vinna að því
að jafnan sé völ á sem fujlkomn-
astri tónlistarkennslu á ísafirði,
að halda uppi almennri tónlistar-
starfsemi og gangast fyrir heim-
sóknum þekktra listamanna, inn-
lendra og erlendra. Félagið heldur
fema áskriftartónleika á hveiju
starfsári en gengst einnig fyrir
öðrum tónleikum eftir því sem
tækifæri gefast.
Ragnar H. Ragnar var ráðinn
framkvæmdastjóri félagsins árið
1963 og gegndi því starfí til 1983.
Núverandi framkvæmdastjóri
Tónlistarfélags ísaQarðar er Jónas
Tómasson tónskáld.
\Ivi li Grillbrald
Grillamb Gód