Morgunblaðið - 14.06.1988, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 14.06.1988, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988 59 mót í útgáfu námsbóka handa nem- endum í skyldunámi og er óhætt að fullyrða að ráðning Jóns Emils til að fylgja þeim þáttaskilum eftir hafi skipt sköpum um framkvæmd lag- anna. Kom þar margt til. Samvisku- semi hans og heiðarleika var við brugðið, þannig að hann vann hús- bændum sínum betur en sjálfum sér. Hann var málafylgjumaður, en lipur og sanngjam og kom það sér vel þegar semja þurfti við aðra útgefend- ur um útgáfurétt á námsbókum sem þeir höfðu áður gefið út eða við prentsmiðjur um útlit og frágang þeirra bóka sem Ríkisútgáfan sendi frá sér. Þar skyldi allt vandað sem best, málfar, prófarkalestur og útlit. Þeir sem störfuðu við kennslu á skyldunámsstigi á þessum árum muna breytinguna sem varð í allri gerð námsefnis og þjónustu við skól- ana á þessum árum. Lítill og fremur einhæfur bókakostur að efni og út- liti vék fyrir nýjum og fjölbreyttari kosti bæði varðandi útlit og innihald. Fyrirmyndir sínar sótti Jón Emil til þeirra sem best gerðu erlendis og kostaði enda kapps um að fylgjast vel með á sínu sviði. Þjónusta sem nú þykir sjálfsögð og eðlileg var sett á laggirnar á þessum árum af van- efnum en framsýnum metnaði. Skólavörubúðin hóf starfsemi sína þegar árið 1957 og opnaði kennurum nýja möguleika til að útvega sér og nemendum sínum gögn frá innlend- um og erlendum aðilum. Jafnframt tók Jón Emil og samstarfsfólk hans að gefa út í nafni Skólavörubúðarinn- ar og á kostnað hennar margs konar hjálparbækur og viðbótamámsefni, þannig að allur hagnaður sem varð af þjónustu hennar var notaður til útgáfu og aukinnar þjónustu. Fyrstu árin var Ríkisútgáfa náms- bóka leiguliði og á hálfgerðum hrak- hólum með starfsemi sína. Einnig á því sviði sýndi Jón Emil stórhug og framsýni, þannig að útgáfan eignað- ist smám saman myndarlegt hús- næði fyrir starfsemi sína, fyrst í Tjarnargötu 10, þar sem skrifstofur og Skólavörubúð voru til húsa og síðar í Brautarholti 6, þar sem enn eru birgðageymslur fyrir námsgögn og námsbækur. Þáttaski! urðu í námsefnisgerð á síðustu árunum fyrir 1970 er frum- kvæði að námsefnisgerð var flutt til skólarannsóknadeildar menntamála- ráðuneytisins. Sá flutningur stafaði ekki af slælegri frammistöðu Ríkisútgáfunnar heldur þótti þetta vænleg leið til að koma skjótum breytingum og æskilegri þróun til leiðar í skólakerfinu sem full þörf var á eftir setningu grunnskólalaga 1974. Jón Emil tók þátt í þessum breytingum af sömu festu, einlægni og heiðarleika og öðru sem hann kom nærri, þannig að allir máttu við una. Jón Emil lét af störfum sem fram- kvæmdastjóri Ríkisútgáfu námsbóka á árinu 1978. Ári síðar voru sett lög um Námsgagnastofnun, sem samein- aði starfsemi ríkisútgáfunnar og Fræðslumyndasafns ríkisins auk þess sem stofnuninni voru fengin ný verkefni. Segja má að Námsgagnastofnun búi enn að þeim störfum sem Jón Emil vann Ríkisútgáfu námsbóka á mörgum sviðum. Og enn eru þar starfsmenn sem hann réði og skólaði til starfa og vita engir betur en þeir sjálfir hvers virði sá skóli var. Það er því ekki aðeins Námsgagnastofn- un sem á honum þökk og heiður að gjalda heldur einnig einstaklingar sem sjá á bak mætum manni með þakklæti og virðingu. Kanntu ajð búa tíl gomsæta grillsósu? Þú þarft ekkert að kunna í matar- < v- gerð til þess. Þú opnar dós af sýrðum rjóma, kíkir inn í eldhússkápana, notar hugmyndaflugið og velur eitthvað girnilegt, td. grænmeti eða krydd, sem þú blandar út í sýrða rjómann. Arangurinn kemur bæði þér og þínum þægilega á óvart! Auðveld, fín sósa með kjötinu. Taktu mælieiningarnar ekki of alvarlega. 1 dós sýrður rjómi Vi msk saxaður laukur 'h msk söxuð græn paprika 'h msk söxuð rauð paprika 2 msk Heinz eða Libby’s tómatsósa örlítill sítrónupipar. Blandaðu öllu saman og berðu sósuna fram með glóðarsteiktu kjöti eða pylsum. Fleiri tillögur birtast á naestunni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.