Morgunblaðið - 06.08.1988, Page 7

Morgunblaðið - 06.08.1988, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 7 Veislu- og matargerð Axels Jónssonar veitingamanns í Keflavík var skoðuð, en þar eru útbúnir 600 matar- skammtar á dag fyrir flugfarþega. Morgunblaðið/Björn Blöndal Frá hádegisverðarfundinum á Glóðinni. Þar flutti iðnað- arráðherra framsöguræðu og svaraði siðan fyrirspurn- um. Ofnasmiðja Suðurnesja skoðuð, Jón William Magnússon framkvæmdastjóri útskýrir starfsemina fyrir ráðherra og fylgdarliði hans. Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra á Suðurnesjum: Anægjulegt að sjá hinn öra vöxt í ferðamannahiónustu Kpflnvík ■*- Keflavík. „MÉR sýnist gróandi í atvinnulíf- inu hjá þeim fyrirtækjum sem ég heimsótti," sagði Friðrik Sop- husson iðnaðarráðherra i samtali við Morgunblaðið að lokinni heimsókn í nokkur iðnfyrirtæki í Keflavík og Njarðvík á miðviku- daginn. Friðrik sagði það ánægjuefni hversu ör vöxtur væri í ferðamannaþjónustu á Suðurnesjum og benti i því sam- bandi á þijú hótel sem tekið hefðu til starfa í Keflavík og Njarðvik á siðustu tveim árum. Friðrik sagði að vandi fyrirtækj- anna væri sá sami og blasti við i atvinnuvegunum almennt, en það væri hár fjármagnskostnað- ur.„Við erum hér til að kynnast vandamálum fyrirtækjanna og jafnframt að segja frá því sem ríkisstjórnin hefir á prjónunum," sagði Friðrik Sophusson enn- fremur. Með iðnaðarráðherra í ferðinni voru Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Zoéga aðstoðarmaður ráð- herra og Bragi Michaelsson formað- ur kjördæmaráðsins, en að heim- sókninni stóðu kjördæmisráð og miðstjóm Sjálfstæðisflokksins. Heimsókn ráðherra hófst með há- degisverðarfundi í Glóðinni i Keflavík. Þar flutti hann framsögu- erindi og að því loknu svaraði hann fyrirspumum. Meðal þeirra sem komu með fyrirspumir til ráðherra vom Vilhjálmur Grímsson sveitar- stjóri í Vogum, Ellert Eiríksson sveitarstóri í Gerðahreppi, Finnbogi Bjömsson, stjórnarformaður Hita- veitu Suðumesja, Halldór Guð- mundsson framkvæmdastjóri í Njarðvík og Ólafur B. Ólafsson framkvæmdastjóri í Keflavík. Einn- ig talaði Ólafur G. Einarsson form- aður þingflokks Sjálfstæðisflokks- ins. Fundarstjóri var Ámi Ragnar Ámason formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Keflavík. Að loknum hádegisverðarfundi skoðuðu ráðherra og fylgdarlið hans nokkur iðnfyrirtæki, fyrst lá leiðin í Ofnasmiðju Suðumesja, Hótel Keflavík, Veislu og matar- gerð Atxels Jónssonar í Keflavík og í Njarðvík voru heimsótt fyrirtækin Glugga- og hurðaverksmiðjan, Rammi hf. og Stapaprent. Síðan var iðnaðarráðherra með við- talstíma í Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík og að honum loknum átti hann rabbfund með trúnaðarmönn- um Sjálfstæðisflokksins á Suður- nesjum. Um ástæðuna fyrir heimsókninni sagði Friðrik Sophusson iðnaðar- ráðherra að ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins hefðu ákveðið að heim- sækja öll kjördæmi landsins í sumar og væri markmiðið tvíþætt. Annars- vegar að tala við flokksmenn á sem flestum stöðum og stuðla þannig að vexti Sjálfstæðisflokksins. Gott hljóð væri í mönnum og skoðana- kannanir bentu til að flokkurinn væri nú í sókn. Hinsvegar væri þetta kærkomið tækifæri til að heimsækja hin ýmsu fyrirtæki í kjördæmunum og kynnast starf- semi þeirra af eigin raun. Heimsókn iðnaðarráðherra um Reykjaneskjördæmi heldur áfram mánudaginn 8. ágúst og þá fer hann um Kjalameshrepp, Garðabæ og Hafnarfjörð og daginn eftir heimsækir hann Kópavog. Með ráð- herra í ferðinni verður Salome Þor- kelsdóttir alþingismaður. - BB í Njarðvík var glugga- og hurðaverksmiðjan Rammi hf. skoðuð og þar tók Einar Guðberg Gunnarsson framkvæmdastjóri á móti ráð- herra og fylgdarliði og útskýrði gang verksmiðjunnar. Komið - Skoðið - Reynsluakið z Ingvar i Helgason hf. m Syningarsalurinn, Rauöageröi Sími: 91 -3 35 60

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.