Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988
11
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Starfsmenn Pósts og síma ásamt Björgvin Lútherssyni símstöðvarstjóra. Nú starfa 54 starfsmenn hjá
Pósti og síma í Keflavík, 34 verða í nýja pósthúsinu og 20 tæknimenn verða áfram í gömlu símstöðinni.
Kpflflvík*
Nýtt pósthús tekið
Keflavík.
Iþróttahátíð á Sól-
heimum í Grímsnesi
NÝTT húsnæði Pósts og síma í
Keflavík hefur verið tekið í notk-
un á Hafnargötu 89. Á miðviku-
daginn afhenti Matthías Á. Mathi-
esen samgönguráðherra Björgvin
Lútherssyni símstöðvarstjóra
húsið formlega til afnota við hát-
íðlega athöfn. Öll almenn þjón-
usta verður í nýja pósthúsinu, en
gamla símstöðin við Hafnargötu
40 verður aðsetur tæknimanna,
en þar er sjálfvirka og stafræna
símstöðin staðsett.
Framkvæmdir við nýja pósthúsið
hófust í ágústmánuði 1986 þegar
þáverandi póst- og símamálastjóri
í notkun
Jón Skúlason tók fyrstu skóflustung-
una. Þorgeir K. Þorgeirsson, for-
stöðumaður umsýsludeildar Pósts og
símu, rakti gang byggingarfram-
kvæmda sem tóku tæp tvö ár. Nýja
húsið er á tveim hæðum, á jarðhæð
er öll almenn afgreiðsla, en á efri
hæðinni eru skrifstofur og aðstaða
starfsfólks. Ólafur Tómasson póst-
og símamálastjóri talaði og síðan
afhenti samgönguráðherra húsið til
afnota.
Björgvin Lúthersson símstöðvar-
stjóri sagði að mikil þörf hefði verið
fyrir nýja pósthúsið vegna þrengsla
á gamla pósthúsinu og sökum þess
hefði hann orðið að taka hluta af
húsinu undir bögglapóst í desember
síðastliðnum. Björgvin sagði enn-
fremur að með tilkomu nýja póst-
hússins væri brotið blað í sögu þjón-
ustu pósts og síma, því nú fengju
viðskiptavinir alla afgreiðslu á sama
staðnum við afgreiðsluborðið. Allt
frá því að koma með bréf eða bögg-
ul í póst, með bilaðan síma, eða til
að kaupa nýjan.
- BB
Íþróttahátíð fyrir þroskahefta,
fatlaða og aðstandendur þeirra
verður haldin á Sólheimum í
Grímsnesi sunnudaginn 7.
ágúst. Tilgangurinn er að fá
sem flesta til að koma út, hreyfa
sig svolítið og skemmta sér á
eftir.
Dagskráin hefst með Sólheima-
göngu kl. 12.00. Þátttakendur
geta valið um þijár vegalengdir, 5
km, 10 km og Sólheimahring, 24
km. Verðlaun verða veitt fyrir
hverja vegalengd. Þátttakendur
komi eigi síðar en kl. 11.30 til
skráningar.
Að loknu þessu létta heilsubót-
arrölti verður öllum boðið í risaúti-
grillveislu með tilheyrandi með-
læti. Því næst gefst tækifæri til
að skreppa í sund, í heita pottinn
eða gufu og margt annað verður
gert.
Allt endar þetta með da'nsleik í
íþróttahúsinu þar sem góðir gestir
verða.
Sætaferðir verða frá BSÍ kl.
9.00 fyrir þá sem ætla að vera
með í göngunni og fyrir aðra gesti
kl. 11.30. Ferðir verða til baka að
loknum dansleik um kl. 18.45.
Þátttaka og aðgangur er ókeyp-
is og allir velkomnir.
(Fréttatilkynning)
Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra.
Íþróttahátíð verður haldin á Sólheimum í Grímsnesi á sunnudaginn.
SAMKEPPNI UM SLAGORÐ!
í ágúst mánuöi gefst þér tækifæri á því aö taka þátt
í samkeppni um slagorð fyrir Royal Export Bjór.
Verðlaun eru 6 daga ferð til Kaupmannahafnar
með gistingu á lúxushóteli, fyrirtvo.
Sendu inn hugmynd þína aö slagorði fyrir 30.
ágúst n.k. ásamt nafni, heimilisfangi og síma-
númeri.
Valiö veröur úr innsendum tillögum af fulltrúum
verksmiöjanna þann 1. september n.k. og veröa
úrslit tilkynnt samdægurs.
Nafn:
Sími:
Heimilisfang:
Póstnúmer:
Slagorð: (Ath. Ein hugmynd)
Líklega sá besti!
Sendist til: Ó. Johnson & Kaaber hf. ■ Pósthólf 5340 ■ 125 Reykjavík