Morgunblaðið - 06.08.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988
Unnið að undirbúningi kjarnorkutilraunarinnar í Nevada-eyðimörkinni í Bandaríkjunum.
Risaveldin:
Reuter
Fyrsta sameigiiilega Igarn-
orkutilraunin undirbúin
Sovéskir eftirlitsmenn munu fylgjast með
tilraunasprengingu í Nevada-eyðimörkinni
Mercury, Nevada. Reuter.
FYRSTA kjarnorkutilraunin, sem risaveldin standa saman að, mun
fara fram í Nevada-eyðimörkinni i Bandarikjunum þann 17. þessa
mánaðar. Tilraunin er í samræmi við samning sem rikin tvö gerðu
með sér á síðasta ári varðandi eftirlit með kjarnorkutilraunum.
Sovéskir og bandarískir sérfræðingar munu fylgjast með spreng-
ingunni og er tilgangurinn sá að tryggja að ekki verði farið fram
úr þeim skorðum sem þegar hafa verið settar við slikum tilraunum.
Um 40 sérfræðingar hafa unnið
að undirbúningi tilraunarinnar á
undanfömum vikum. Tækjabún-
aðurinn hefur verið reyndur á degi
hverjum en kjamorkusprengjunni
verður komið fyrir 700 metmm
undir yfírborði Nevada-eyðimerk-
urinnar.
Sprengd verður 150 kílótonna
kjamorkusprengja en samkvæmt
sáttmála risaveldanna um tak-
markanir kjamorkutilrauna neð-
anjarðar eru öflugri sprengingar
óleyfílegar. Sprengikrafturinn
jafngildir 150.000 tonnum af TNT.
„Þetta verður söguleg tilraun"
C. Paul Robinson, helsti samn-
ingamaður Bandaríkjastjómar í
viðræðum við fulltrúa Sovétstjóm-
arinnar um takmarkanir kjamork-
utilrauna sem fram fara í Genf.
Risaveldin hafa gert með sér tvo
samninga um framkvæmd kjam-
orkutilrauna en þeir hafa enn ekki
verið staðfestir á Bandaríkjaþingi
þar eð eftirlitsákvæði þeirra þykja
ófullnægjandi. Von manna er sú
að sameiginlegar kjamorkutil-
raunir og eftirlit með þeim geti
orðið til þess að leysa þann hnút.
í samningum þessum er kveðið á
um 150 kflótonna markið og hafa
bæði ríkin virt það þó svo samning-
amir hafí enn ekki öðlast lagagildi.
í næsta mánuði áforma Sovét-
menn að sprengja kjamorku-
sprengju neðanjarðar og vinna
bandarískir eftirlitsmenn nú að því
að koma upp tækjum og tólum í
tilraunastöðinni í Semípalatínsk í
Kazakhstan.
ERLÉNT
Noregur:
Víðtæk leit að
níu ára telpu og
ræningja hennar
Peningaverðlaunum heitíð fyrir ábendingar
Ósló, frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
VEÐTÆK leit að 9 ára stúlku,
sem talið er að hafi verið rænt,
stendur yfir í Noregi. Yfir eitt
hundrað lögreglumenn taka
þátt í leitinni að Terese Johann-
essen, sem hvarf frá heimili
sínu í Drammen 3. júlí síðastlið-
inn.
Lögregla telur nú næsta öraggt
að Terese hafí verið rænt og að
ræninginn hafí ekið á brott með
hana frá Drammen í bifreið. Eng-
in vitni eru þó til að staðfesta
þetta. Hvarf stúlkunnar hefur vak-
ið mikinn óhug meðal almennings
í Noregi. Óttast er að hún hafí
verið myrt af kynferðisglæpa-
manni. Lögreglunni hafa borist
mörg hundrað ábendingar frá fólki
sem telur sig hafa séð Terese og
yfír flögur hundrað manns hafa
verið yfírheyrðir án þess að það
hafí borið nokkum árangur.
Yfírvöld í Noregi ætluðu fyrir
skömmu að hætta eftirgrennslan
vegna fjárskorts og vegna þess
að litlar líkur era taldar á að telp-
an fínnist heil á húfi eftir svo lang-
an tíma. Dómsmálaráðherra Nor-
egs, Helen Besterad, tók þá til
sinna ráða og sagði að leitinni að
Terese yrði ekki hætt fyrr en hún
fyndist. „Það skiptir ekki máli
hversu mikið það kostar, ég mun
sjá til þess að fé muni ekki skorta,"
sagði ráðherrann.
Hundrað manna lögreglulið hef-
ur verið kallað til víðs vegar að
til að taka þátt í leitinni að Terese
og þeim sem rændi henni. Almenn-
ingur í Noregi fylgist grannt með
gangi leitarinnar og fjöldi lög-
reglumanna hefur ákveðið að
fresta sumarleyfum vegna hennar.
Tveir einkaaðilar hafa hvor um sig
heitið 20.000 norskum krónum
(svarar til um 140.000 ísl. kr.) í
verðlaun til þeirra sem gefa ábend-
ingar er leiða til þess að telpan
og ræningi hennar finnist.
Alnæmisrannsóknir:
Gerviprótm styrk-
ir ónæmisvarnir
Washington. Reuter.
BANDARÍSKUM visindamönnum
befur tekist að búa til prótin, sem
virðist geta komið i veg fyrir að
frumur i ónæmiskerfi mannslika-
mans sýkist af veirunni, sem veld-
ur alnæmi. Visindamennirnir
birtu niðurstöður sínar i nýjasta
hefti timaritsins Science.
Lee Eiden, sem stjómar rannsókn-
unum, sagði í viðtali við Reuters-
fréttastofuna að svo virtist sem
prótín kæmi í veg fyrir að frumur í
ónæmiskerfinu sýktust af alnæmis-
veirunni. Fram til þessa hafa tilraun-
imar eingöngu farið fram á rann-
sóknarstofum en í næsta mánuði
ráðgera vlsindamennimir að hefja
prófanir á öpum sem smituð hafa
verið af veiru sem svipar til alnæmis-
veirunnar. Eiden lagði áherslu á að
enn væri of snemmt að segja til um
hvort prótínið gæti komið í veg fyrir
að frumur í mannslíkamanum sýkt-
ust af veirunni. Þá væri ekki heldur
ljóst hvort efnið gæti komið I veg
fyrir að sjúkdómurinn brytist út eftir
að tiltekinn einstaklingur hefði smit-
ast af alnæmisveirunni.
Moskva:
Ózon-lagið yfir borginni
í hættu vegna mengunar
VESTRÆNUM gestum, sem heimsækja Moskvu, býður í grun,
þegar þeir sitja fastir í umferðarþvögu eða skoða tré sem farin
eru að fella lauf um miðjan júlí, að mengun sé komin á hættu-
legt stig í borginni. Nú hafa sovéskir vísindamenn staðfest þenn-
an grun að þvi er segir í grein frá fréttaritara breska dagblaðs-
ins The Independent nú nýverið. í gTein sem birtist I sovésku
dagblaði fyrir skömmu segir að mengun sé orðin svo mikil f
borginni að hætta sé á að ózon-lagið yfir henni sé í hættu af
þeim sökum.
Prófessor Fatei Shípúnov, einn
þeirra sem rannsakað hafa meng-
unina í Moskvu, segir að athu'^n-
ir hafí leitt í ljós að göt séu á
ózon-laginu yfír Moskvu. Versni
ástandið geta Moskvubúar beðið
heilsutjón vegna aukinnar geisl-
unar og eitranar, segir Shípúnov.
Þynning' ózon-lagsins
aðeins hluti vandans
Ógnin vegna þynningar ózon-
lagsins er aðeins hluti af vandan-
um samkvæmt greininni sem birt-
ist í dagblaðinu Moskvu Prövdu
fyrir skömmu. í henni er dregin
upp svört mynd af ástandinu í
Moskvu. Um árabil hefur borgin
stækkað, bifreiðum fjölgað og iðn-
aður aukist án þess að nokkuð
hafí verið reynt til þess að stemma
stigu við menguninni sem af þessu
stafar, segir í greininni.
Shípúnov leggur til að gripið
verði til neyðaraðgerða hið fyrsta
til að draga úr menguninni. Tillög-
ur hans fela meðal annars í sér
að fímmtungur miðborgar
Moskvu, þar sem sögufrægar
byggingar borgarinnar er að
fínna, verði Iokaður allri umferð
vélknúinna ökutækja. Einnigtelur
Shípúnov, sem er prófessor við
sovésku vísindaakademíuna, að
nauðsynlegt sé að loka þeim iðn-
fyrirtækjum sem ekki hafí efna-
hagslega þýðingu fyrir borgina
og I þeirra stað verði farið að
huga að iðnaði eða framleiðslu
sem ekki hefur í för með sér
mengun.
Prófessorinn tetur nauðsyn að
setja lög varðandi mengun frá
iðnfyrirtækjum og að veðurstofan
gefí út sérstakar tilkynningar
þegar horfur era á „áhættuveðri",
þ.e.a.s. veðurskilyrði verði með
þeim hætti að íbúum stafí hætta
af menguninni sem ekki berst
fyrir vindum frá borginni.
Veðurskilyrði valda
uppsöfnun mengunar
Landfræðileg staðsetning
Moskvu gerir það að verkum að
yfír borginni myndast oft hita-
hvarf sem kallað er. Þá hækkar
hitastig eftir því sem fjær dregur
jörðu gagnstætt því sem venju-
lega gerist og kaldara mengað
loft niðri við jörð stígur ekki upp.
Mengun frá bflum og iðnfyrir-
tækjum berst ekki burt úr borg-
inni. „Við þessi skilyrði verður að
Reuter
Reykingabannið á Rauða torginu í Moskvu breytir varla mildu
um mengunina i borginni.
reyna að koma í veg fyrir að
mengun berist út í andrúmsloft-
ið,“ segir Shípúnov.
Alla jafna berst gífurlegt magn
efna út í andrúmsloftið I Moskvu.
Samkvæmt upplýsingum Shíp-
únovs er um ein milljón bifreiða
I Moskvu, sem hafa ekki hreinsi-
búnað af neinu tagi, þessar bif-
reiðar brenna um 14.000 tonnum
af eldsneyti á degi hveijum. Til
þess að hreinsa mengun af völdum
útblásturs bifreiða í Moskvu.
þyrftu að berast 46.000 tonn af
hreinu súrefni til borgarinnar á
degi hveijum, sem er töluvert
minna en vindar og gróður í
grenndinni sjá borginni fyrir.
Mælingar sýna að daglega ber-
ast yfir 500 mismunandi mengun-
arvaldar út I andrúmsloftið í
Moskvu. Meðal annars berast um
það bil 2.700 tonn af kolmónox-
íði, 480 tonn af köfnunarefnisox-
íði, 30 tonn af sóti og 12 tonn
af mismunandi klór-, bróm-,
brennisteins- og fosfatsambönd-
um út í andrúmsloft sem
Moskvubúar anda að sér dag
hvem.