Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 34

Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 Ungur Blöndósingur segir frá útilegn í Asíu: m. hiuti Undur Indlands eftirRóbert Víði Gunnarsson Höll vindanna, reist til að frillur konungs gætu óséðar horft á lýðinn á götunni. Við að heyra orðið „Indland" kemur fram í huga margra einhver óljós hugmynd um slöngutemjara, dansandi reipi og fakíra sem vaða eld og brennistein og sofa á nagla- brettum, en þó fyrst og fremst seið- andi hugmynd um mannlíf sveipað einhverri óskilgreindri mystík eða dulúð. En veruleikinn sem við blas- ir er annar. Strax við fyrstu kynni af hinu raunverulega Indlandi er þessari slæðu dulúðar svipt af og þrátt fyrir margar stórkostlegar byggingar, hin sannkölluðu undur Indlands, blasir oft á tíðum við aumlegur veruleiki sem fyrst og fremst einkennist af miklum and- stæðum ótakmarkaðrar auðlegðar og sárustu fátæktar. Þann 11. desember komum við suður um Punjab-hérað til Delhí og settum upp tjöld á tjaldstæði borg- arinnar. Þenpan dag hef ég skrifað eftirfarandi klausu í dagbókina mína; „Fórum á rölt í nágrenni við tjaldstæðið, sáum skít og drullu, betlara og aumingja, fullt af beljum sem ganga um skítandi og étandi grænmeti úr sölukörfum og hjá standa sveltandi böm og horfa á.“ Þetta voru fyrstu áhrif Indlands á mig og þó ég ætti eftir að kynnast fleirir hliðum þess átti þetta eftir að blasa við ansi oft í fátækrahverf- um borganna og sitja mér ofarlega í minni. Það skyldi enginn Indlands- fari sem vill fá sannari mynd af landinu en þá sem leiðsögumennim- ir í loftkældu rútunum gefa, veigra sé við því að ganga um indversk fátækrahverfi. Það yrði mörgum heimtufrekum íslendingnum þörf lexía að horfast í augu við hungrað bam með útrétta hönd eftir rúpíu fyrir brauði. En þó að þetta sé mér ofarlega í minni er Delhí ekki al- vond. Þar er sitt af hveiju að sjá; gömul virki, konungshallir, minnis- varða og söfn, en eitt það áhuga- verðasta í borginni er stór neðan- jarðarmarkaður undir aðaltorgi borgarinnar. Þar eru á annað hundrað verslanir með allskonar vörur og á veggjum hengu spjöld þar sem stóð að verð væri fast og ekkert hægt að prútta. En samt var nú svo að ef manni leist ekki á verð á einhverju þá var alltaf til „special price for you, you’re my friend“. Það er reyndar mín kenning að það sé ekkert til á Indlandi sem kallast fast verð, einn ferðafélaginn gat meira að segja prúttað um verð á flugfari frá Kalkútta til Bangkok. Aður en við komum til Indlands höfðum við farið nokkuð hratt yfir en þegar hér var komið fórum við að aka stuttar dagleiðir og taka lífinu með meiri ró. Enda var það svo að eftir þijá daga í Delhí ókum við aðeins fjögurra tíma leið til borgarinnar Jaipur með viðkomu í Amber-höll, einu af undrum Ind- lands, sem fengi margar konungs- hallir Evrópu til að skammast sín fyrir að vera til. Jaipur gengur undir nafninu „bleika borgin“ og það er ekki að ástæðulausu. Á Indlandi er bleikur nefnilega hefðbundinn litur gest- risninnar og þegar Albert Breta- prins kom í heimsókn til Jaipur árið 1883 var fyrirskipað að borgin skyldi öll máluð bleik. Gamla borg- in hefur haldið þeim lit síðan og gefur það henni mjög sérstætt og skemmtilegt yfírbragð sem kórón- ast af hinni stórundarlegu HöII vindanna, Hava Mahal. Höll vind- anna er reyndar ekki höll í þess orðs fyllstu merkingu heldur aðeins framhlið með fjölmörgum gluggum þar sem frillur konungs gátu óséðar horft á mannlífíð á götunni fyrir neðan. Eitt af því sem einkennir Jaipur eru mikil viðskipti með gimsteina og það ku vera hægt að hagnast á að kaupa þar stéina og selja á Vest- urlöndum. En það skyldi þó enginn kaupa þar steina nema hafa þekk- ingu til, sölumennimir eru nefnilega ekki nema rétt temmilega heiðar- legir við þá sem þeir sjá að þekkja ekki inná gimsteina. Ég er ekki frá því að ég hafi verið snuðaður svolí- tið en þó ekkert á við annan í hópn- um sem borgaði 80 dollara fyrir lítinn og ljótan smaragð í þeirri trú að hann fcngi fimmfalt verð fyrir hann í Ástralíu. Þegar hann svo komst að því að steinninn var að- eins tveggja dollara virði tóku þrír úr hópnum sig saman, spýttu í lóf- ana og brettu upp ermamar og fóru til að lúskra á svikaranum ef hann skilaði ekki peningunum. Það þótti heldur ólíklegt að þeir hefðu eitthvað út úr þessu annað en að- hlátur og skömm í hattinn, en þeir vom á öðm máli og þrem tímum síðar komu þeir til baka sigri hrós- andi, veifandi þessum 80 dollumm og vom heldur dijúgir með sig. Delhí og Jaipur em tvö homa hins svokallaða Gullna þríhymings, sem svo er kallaður vegna glæstrar sögu svæðisins og allra hinna sér- stæðu bygginga og stórkostlegu halla sem þar er að finna. Þriðja homið og að mínu mati það stór- kostlegasta er hin fomfræga Agra, en þangað lá leið okkar næst. Agra hefur að geyma hið mikla Agra- virki og borgina Fathepur Sikri, sem af ókunnum ástæðum var yfír- gefin örfáum ámm eftir að hún var reist, en umfram allt hefur Agra að geyma Taj Mahal. Eg er ekki einn um þá skoðun að Taj Mahal sé fegursta bygging heims. Jafnt skáld sem ferðamenn og aðrir sem skrifað hafa um Taj Mahal hafa haft um það stór orð, svo sem: „hinn fullkomni arkitekt- úr“, „ástarljóð í marmara" og „feg- ursti og rómantískasti minnisvarði eilífrar ástar". Og sagan á bak við Taj Mahal er svo sannarlega róm- antísk. Á fyrri hluta sautjándu ald- ar ríkti á Norður-Indlandi keisarinn Shah Jahan. Hann átti margar kon- ur, en eina þeirra, Mumtaz Mahal, elskaði hann heitar en nokkra aðra. Hún var honum trú og ástrík eigin- kona og fæddi honum mörg böm, en eftir að hafa fætt honum þeirra þrettánda bam, þá 39 ára'gömul, lést hún af bamsfömm. Þegar hún var að deyja sat Shah á rúmstokk hennar og spurði í örvæntingu; „Ó Mumtaz, hvað get ég gert til að sýna heiminum hversu heitt ég elska þig?“. Mumtaz hafði svörin á reiðum höndum og sagði; „Sjáðu vel fyrir bömunum okkar og taktu þér ekki fleiri eiginkonur eftir minn dag,“ og síðan kom þessi hógværa ósk; „heiðraðu minningu mína með einstöku grafhýsi og minnisvarða svo að ég muni aldrei gleymast“. Síðan dó hún. Shah Jahan var yfir- bugaður af sorg, hann tók ekki framar þátt í neinum skemmtunum og kom ekki fram opinberlega við önnur tilefni en minningarathafnir um hina heittelskuðu eiginkonu sína og þá grét hann beisklega. Shah Jahan uppfyllti hinstu óskir Mumtaz, hann tók sér ekki fleiri eiginkonur og tveim ámm eftir dauða hennar, árið 1632, var hafíst handa við að reisa henni grafhýsi. Verkið tók tuttugu þúsund menn tólf ár og kostaði alla fjármuni ríkis- ins þann tíma. Til verksins vom fengnir fæmstu lista- og hand- verksmenn hins múslímska heims og ekkert var til sparað, hvorki gull, silfur né dýrmætir steinar og árangurinn varð í samræmi við það, fullkomnum jafnt í því smæsta sem hinu stærsta. Árangurinn varð hið óviðjafnanlega Taj Mahal. Frá Ágra var ekið austur á bóg- inn og af sömu ástæðum og fyrr, þ.e. vegna fjölda fólks og dýra á veginum, gekk ferðin um hina „frið- sælu og ósnortnu" náttúm ind- versku hásléttunnar, heldur hægt. Við vomm heldur ekkert að flýta okkur, gáfum okkur góðan tíma til að skoða mannlíf í þorpum og bæj- um sem við komum til og einn dag- inn stoppuðum við í þorpinu Khaj- uraho. Khajuraho er þekkt er fyrir mikinn íjölda hindúahofa sem mörg hver em skreytt mjög svo erótískum höggmyndum sem talið er að hafí verið hugsaðar sem eldingavarar, en hin hindúska gyðja eldingarinnar Heilagur maður, sem þó er ekki heilagri en svo að hann lætur taka af sér myndir gegn þóknun. mun nefnilega vera siðvönd jómfrú sem ekki gæti hugsað sér að snerta byggingar með svo ósiðsamlegum myndum. En áfram var ekið og daginn fyrir Þorláksmessu komum við til Varinasi á bökkum Ganges- fljóts. Tíminn í Varinasi fór að mestu leyti í jólaundirbúning, en einn morguninn fómm við þó í róður á Ganges til að sjá þegar hindúar, í pílagrímsferðum frá öllu Indlandi, hreinsa sál sína í fljótinu helga í morgunsárið og til að sjá bálkesti á stöllum á árbökkunum þar sem lík em brennd eftir að hafa verið lauguð í ánni. Það ku vera æðsti draumur hindúa að fá að deyja í Varinasi, láta brenna sig á bökkum Gánges og láta strá öskunni yfir ána. í Varinasi.héldum við okkar jól býsna ólíkt því sem við Hrólfur átt- um að venjast, hátíðin líktist meira grímuballi eða garðveislu að sumar- lagi en jólum. En til að fá smá jóla- stemmningu á jólanótt fór ég, ásamt nokkmm öðmm úr hópnum, á kaþólska miðnæturmessu sem fór fram á hindí. Ég skildi að sjálf- sögðu hvorki seremóníumar né orð af því sem fram fór, en þetta var samt ólýsanleg upplifun sem gaf jólunum meiri hátíðarblæ en grímu- ballið eitt hefði gert. Það var kominn 26. desember, gegnumreiðinni um Indland að ljúka og farið að síga á seinni hluta ferðarinnar. Frá Varinesi fómm við norður að landamæmnum og að morgni þess 27. desember kvöddum við Indland og ókum inn í hið fyrir- heitna land allra sannra hippa og blómabama, Nepal. Á Indlandi höfðum við verið á flatlendi allt síðan í Jammu-héraði, en við höfð- um ekki ekið lengi í Nepal áður en ráðist var til atlögu við sjálfan Hi- malayjafjallgarðinn og innan skamms vomm við komin upp fyrir rakamistur sléttunnar í hreint og tært fjallaloft. Og áfram var ekið utan í snarbröttum, skógivöxnum fjöllum, fram hjá litlum þorpum og sveitabæjum sem á undraverðan hátt er tyllt utan í hlíðamar og eftir að hafa villst nokkra stund komum við til bæjarins Pokhara á bökkum lítils stöðuvatns í skjóli nokkurra af hæstu tindum veraldar. Nepal í Nepal er að fínna flest það sem mögulega getur laðað að ferða- menn, nema kannski diskótek og sólarstrendur, i Kathmandudal em stórkostleg listaverk af manna höndum, alls staðar annars staðar, þ.á m. í Pokhara, em enn stórkost- legri listaverk af náttúmnnar hendi. Þann eina dag sem við vomm í Pokhara fóm sumir í göngu á út- sýnisstað fyrir ofan bæinn, aðrir fóm í siglingu á vatninu eða leigðu sér reiðhjól og hjóluðu um bæinn en næsta dag fómm við til þorpsins Sauraha í jaðri Chitwanskógar og eyddum þar síðustu dögum ársins. I Chitwan fengu flestir sér leið- sögumenn til að fara með sig í tveggja tíma og upp í hálfs dags ferðir inn í fmmskóginn til að sjá þar nashyminga, krókódíla, dádýr og fugla en þó umfram allt ein- hvem þeirra 30 Bengaltígra sem þar mun enn vera að fínna þrátt fyrir mikla fækkun í stofninum. En við Hrólfur og þrír aðrir úr hópnum fómm í tveggja daga ferð. Fyrri daginn gengum við tuttugu kíló- metra ævintýralegan gang um skóginn, reyndar án þess að sjá nokkuð annað en sofandi krókódfla og nokkra fugla. Um kvöldið kom- um við svo út úr skóginum og fómm í lítið gistihús í rafmagnslausu smá- þorpi rétt í útjaðri skógarins. Þar gistum við í fmmstæðum húsa- kynnum, inni á heimili ijölskyldu sem hafði aukatekjur af að leigja út tvö aukaherbergi fyrir örfáar rúpíur og við kertaljós borðuðum við hinn daglega rétt Nepala, Dhal Bhat, sem matreitt var yfir eldi. Þama komumst við líkega í nánari snertingu við daglegt líf og aðstæð- ur heimamanna en nokkurs staðar annars staðar í ferðinni og það var sannkallað upplifelsi. Morguninn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.