Morgunblaðið - 06.08.1988, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988
39
VATNA-
SILUNGUR
Smásilungur, urriði, bleikja,
murta hafa ekki verið í miklum
metum hérlendis, og er það
mjög furðulegt. Margir segja,
að þeir vilji ekki fiskinn vegna
þeirra smábeina, sem eru í
honum. Hvemig getur fisk-
þjóðin leyft sér að segja þetta?
Enginn vandi er að forðast
fiskbein, við vitum þó væntan-
lega flest, eða ættum að vita,
hvar beinin liggja í fiskinum.
Við fullorðnu beinhreinsum
fískinn fyrir bömin.
Heill smásilungur steiktur í
smjöri er einhver sú besta
fæða sem völ er á, en þegar
maður kemur á veitingahús,
jafnvel þau sem næstum em
staðsett á bakka veiðivatn-
anna, er enginn smásilungur
á matseðlinum. Kannski það
sé svo að fleiri vilji pylsur með
öllu, hamborgara og franskar
en hinn ljúffenga smásilung.
En af hveiju? Hefur nokkuð
verið reynt að bjóða smásilung
sem er hægt að grípa sem
sjoppur hafa örbylgjuofna,
tekur að djúpsteikja smásil-
ungsflak og bregða á pönnu
eða í heitan bakaraofn. Ég er
hrædd um að margar þjóðir
myndu nýta sér þessi hlunn-
indi og auglýsa nýveiddan
smásilung sem skyndibita.
Jafnvel mætti síðan nota hinar
ómissandi frönsku með sil-
ungnum eða þá eitthvað af
þeim sósum sem notaðar em
með pylsum og hamborgumm.
Smásilungur í pylsubrauði
með grænmeti og sósu er
herramannsmatur.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Djúpsteikt silungsflök
í pylsubrauði
Deigið utan um flökin:
1 dl pilsner
100 g hveiti
Ú2 tsk. salt
V4 tsk. pipar
V2 tsk. paprikuduft
1 egg
1. Þeytið eggið með salti og
kryddi.
2. Setjið pilsner og hveiti út í
og hrærið vel saman.
Flökin:
8 lítil silungsflök
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. salt
Vs tsk. pipar
2 msk. hveiti
3. Hreinsið flökin vel, skafið
roðið lauslega ef þið ætlið að hafa
það á, en roðdrágið annars. Hrein-
sið beinin.
4. Stráið salti og pipar á flökin,
hellið yfir þau sítrónusafa og látið
standa í 10 mínútur.
5. Veltið flökunum upp úr
hveitinu.
6. Veltið flökunum upp úr deig-
inu og djúpsteikið í 2—3 mínútur
á hvorri hlið.
Sósa á brauðin:
1 dós sýrður rjómi
1 msk. olíusósa
V2 lítil gúrka
5 dropar tabaskósósa
Vs tsk. salt
nokkur strá graslaukur eða
fersk steinselja
7. Blandið saman sýrðum rjóma
og olíusósu.
8. Setjið tabaskósósu og salt
út í.
9. Saxið gúrkuna og graslauk-
inn eða steinseljuna og setjið sam-
an við.
Utan um flökin:
8 pylsubrauð
8 stór salatblöð
10. Kljúfið pylsubrauðin.
11. Setjið salatblöð og sósu inn
12. Leggið silungsflakið á og
lokið brauðinu.
Steiktur heill smásilungur
10 smásilungar eða murta
IV2 tsk. salt
V4 tsk. nýmalaður pipar
safi úr 1 sítrónu
1 dl hveiti
100 g smjör
steinselja
1 lítil sítróna í bátum
1. Slægið fiskinn, hreinsið blóð-
ið vel úr, takið síðan tálknin úr
hausnum en hafið hann á.
2. Klippið uggana af, skerið
örlítið upp með þeim.
3. Þvoið fiskinn og þerrið með
eldhúspappír.
4. Hellið sítrónusafa á silunginn
og rifumar upp með uggunum.
5. Bræðið smjör og matarolíu
á pönnu, hafið ekki mikinn hita.
6. Setjið salt og pipar saman
við hveitið og veltið fiskinum upp
úr því.
7. Steikið fiskinn í feitinni í 5—7
mínútur á hvorri hlið. Veltið hon-
um aðeins einu sinni.
8. Setjið fiskinn á fat, klippið
steinselju yfír.
9. Skerið sítrónuna í báta og
berið með.
Meðlæti: Soðnar kartöflur.
Soðinn smásilungnr
4 smásilungar, 200—250 g hver
1 msk. gróft salt
1 lítri vatn
1 peli mysa
1 lárviðarlauf
6 piparkorn
1. Þvoið fiskinn, takið allt blóð
innan úr honum, takið úr honum
tálknin, en látið hausinn vera á.
Skerið af ugga.
2. Skafið allt slím af roðinu.
3. Setjið vatn, mysu, lárviðar-
lauf, piparkorn og salt í víðan
pott. Látið sjóða.
4. Setjið silunginn heilan í pott-
inn, sjóðið við hægan hita í 12—15
mínútur. Ef þið eigið ekki pott
sem rúmar silunginn er hægt að.
sjóða hann í steikingarpotti í bak-
araofninum.
Meðlæti: Soðnar kartöflur,
brætt smjör og milt hrásalat.
Glóðarsteikt silungsflök
4 silungsflök, 150—200 g hvert
IV2 tsk. salt
V4 tsk. nýmalaður pipar
safi úr V2 sítrónu
25 g smjör
2 msk. sólblómafræ (eða
möndluflögur)
1. Hellið sjóðandi vatni á roð
fisksins og skafið vel. Flakið fisk-
inn og hreinsið úr bein. Betra er
að hreinsa roðið áður en fiskurinn
er flakaður.
2. Hellið sítrónusafa á fiskhlið
flaksins, stráið á það salti og pip-
ar og látið bíðá í 10—15 mínútur.
3. Hitið glóðarrist.
4. Bræðið smjörið, penslið roðið
með því. Leggið flökin á fat eða
grind. Látið roðhliðina snúa upp.
5. Stráið sólblómafræi yfir flök-
in.
6. Glóðið flökin nálægt glóðinni
í 6 míiiútur.
Meðlæti: Soðnar kartöflur, hrá-
salat og kryddsmjör.
Kryddsmjör:
100 g smjör
safi úr V4 sítrónu
mikið ferskt dill
1. Hrærið smjör og sítrónusafa
saman. Klippið dillið og hrærið
saman við. Notið ekki leggina.
2. Leggið smjörið á álpappírs-
bút, vefjið saman svo að það
myndist löguleg rúlla.
3. Setjið rúlluna í frysti.
4. Takið úr frysti, skerið í sneið-
ar og .berið með silungnum.
Silungxir með papriku,
lauk og sveppum
1 kg silungsflök (4 flök)
safi úr V2 sítrónu
1 tsk. salt
nýmalaður pipar
1 stór græn paprika
100 g sveppir
1 meðalstór laukur
15 g smjör (1 smápakki)
1 msk. matarolía
1. Skafið roðið lauslega, flakið
síðan fiskinn. Skerið úr honum
bein sem liggja niður innarlega í
flakinu. Hægt er að finna staðinn
með því að strjúka fingrinum nið-
ur eftir miðju flaksins. Beinin
liggja í beinni línu niður eftir flak-
inu. Gott getur verið að taka bein-
in úr með flísatöng.
2. Hellið sítrónusafa yfir fisk-
hlið flakanna, stráið á þau salti
og pipar og látið bíða í 10—15
mínútur.
3. Þerrið sveppina með eld-
húspappir, skerið síðan í sneiðar.
4. Afhýðið laukinn og saxið
smátt.
5. Takið steina úr paprikunni
og saxið smátt.
6. Setjið smjör og olíu í pott.
Hafið hægan hita. Sjóðið sveppi,
lauk og papriku í feitinni í 10
mínútur.
7. Takið 4 álpappírsrenninga,
setjið 1 flak á hvern renning.
Látið roðhliðina snúa niður.
8. Skiptið grænmetismaukinu
jafnt á flökin. Bijótið pappírinn
saman um flakið, þó þannig að
ekki renni út úr honum.
9. Hitið bakaraofn í 200°C,
setjið álpakkana í heitan ofninn
og bakið í 15 mínútur.
10. Leggið pakka á hvern disk,
losið pappírinn örlítið í sundur að
ofan og borðið úr pappírnum.
Meðlæti: Soðnar kartöflur.