Morgunblaðið - 06.08.1988, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 06.08.1988, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 fclk í fréttum Lengi lifir í gömlum glæðum Lengi lifir í gömlum glæðum, segir máltækið. Og það jafn- vel þótt bitur orð hafi verið látin falla eftir erfiðan skilnað þeirra Silvesters Stallone og Brigitte Nielsen. Síðan þau slitu samvist- um hafa þau ekki fundið hamingj- una hjá öðrum. Það heldur því enda enginn fram að frægðinni fylgi aðeins dans á rósum. Gitte hefur nú slitið samvistum við Mark Gastineau fótbolta- kempu og Silvester gengur ekki vel að fínna hina einu sönnu þótt hann hafí víða leitað. Gitte og Silvester senda hvort öðru flökt- andi glæður í gegn um hina ýmsu fjölmiðla. Gitte hefur Iýst einka- málum sínum í viðtölum, og lýsir- ástandi sínu nokkuð vel. Þar seg- ir hún að hún elski hann ennþá og sakni hans. Hún hefur skrifað ástarljóð eftir skilnaðinn tileinkað Silvester í sjálfsævisögu sem hún vinnur að um þessar mundir. Hún hefur átt erfítt eftir skilnaðinn við Mark, varð bamshafandi, en hætti við, og því fylgdi áfall segir Gitte í viðtali við ítalskt vikublað. Hún átti ætíð í stríði við Mark því hann var sjúklega afbrýðissamur og sá keppinaut í hveiju homi. Þetta þoldi Gitte engan veginn og hún fór að leika en hann að sparka. Stallone hefur hins vegar átt margar vinkonur síðan Gitte var hans, en ekkert til þess að gera alvöru úr, segir hann í nýju við- tali f Ameríku. „Ég hef verið hræddur við að verða ástfanginn, ég hætti ekki á frekari pínu eins og eftir skilnaðinn. En Gitte er sú eina sem ég hef elskað." Hann bætir því við brosandi að hann hafi margoft látið gera á sér al- næmispróf, en það fýrirskipi líftryggingafélag hans, því líf hans er hátt metið þar. Þar skipti ekki bara máli hversu oft hann skipti um bólfélaga. Hann hefur hinsvegar ekki farið í felur með vinkonur sínar og má þar sjá ýmsar frægar með í för. En, ef það yrðu nú Gitte og Stallone sem mættust aftur á hún við smávegis vandamál að etja. Hún hefur nefnilega látið húðflúra nafn Marks á aðra kinn sína í neðra. En ef hún færi til Ameríku gætu Iæknar þar sjálfsagt bjargað því fyrir hana. 11___i*'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.