Morgunblaðið - 16.08.1988, Qupperneq 1
72 SIÐUR B
184. tbl. 76. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 16. AGUST 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Suður-Kórea:
1.200 háskólanem-
endur handteknir
Seoul, Reuter.
Suður-kóreska lögreglan handtók í gær 1.200 háskólanema sem
fyrirhugað höfðu fund með norður-kóreskum stúdentum í landamæra-
bænum Panmunjom, þar sem ræða átti sameiningu Kóreu. Nokkrum
klukkustundum áður hafði Roh Tae-woo, forseti Suður-Kóreu, lagt
til að hann og Kim II-sung, leiðtogi Norður-Kóreu, gengju til viðræðna.
Ríkisstjóm Suður-Kóreu gaf lög-
reglunni fyrirskipun um að koma í
veg fyrir fund háskólanemanna.
Stjómin heldur því fram að það sé
hlutverk hennar að efna til viðræðna
við Norður-Kóreumenn. Roh Tae-
woo, forseti Suður-Kóreu, sagði á
hátíð sem haldin var í tilefni þess
að 43 ár eru liðin frá því hemámi
Japana á Kóreu-skaga lauk, að afar
biýnt væri að leiðtogar Suður- og
Norður-Kóreu kæmu saman til við-
ræðna.
Noregnr:
12 farast
í bílslysi
Ósló. Reuter.
AÐ minnsta kosti 12 manns fór-
ust í gærkvöldi er fólksflutninga-
bifreið ók út af veginum nærri
bænum Eidfjord skammt austur
af Björgvin í Noregi. I bifreiðinni
voru sænsk skólabörn á ferðalagi
ásamt foreldrum sínum.
Slysið varð á fáfömum sveitavegi
í dalverpi ekki langt frá Björgvin.
Slysið varð með þeim hætti að bif-
reiðin fór út af veginum nærri vega-
göngum og rakst á klett. Talsmaður
lögreglu sagði í viðtali við norsku
fréttastofuna NTB að 23 böm og
11 fullorðnir hefðu verið um borð í
bifreiðinni. { gærkvöldi var talið að
12 manns hefðu farist, en að sögn
lögreglu slösuðust flestallir far-
þegamir.
Um 4.000 stúdentar í Yonsei-
háskóla í Seoul ætluðu að fylkja liði
á fundinn en nokkur þúsund óeirða-
lögreglumenn heftu för þeirra með
því að umkringja háskólann, að sögn
sjónarvotta. Nemamir héldu á
spjöldum þar sem á var skrifað með
blóði: „Sameinum Kóreu.“
Sjónarvottar sögðu að lögreglan,
vopnuð kylfum, hefði handtekið 500
stúdentanna, sem allir hefðu verið
óvopnaðir. A meðan hefði táragasi
verið sprautað úr þremur lög-
reglubílum.
Vegatálmar höfðu verið settir á
veginn til Panmunjom og fylgst var
með rútu- og lestarstöðvum. Lög-
regluyfirvöld í Munsan, skammt frá
landamærunum, sögðu að 15 stúd-
entar hefðu verið handteknir þar í
gær og 29 á sunnudag. „Allir sem
litu út fyrir að vera stúdentar vom
færðir í rútu lögreglunnar," sagði
einn sjónarvottanna. Pulltrúar norð-
ur-kóreskra stúdenta biðu Suður-
Kóreumannanna í Panmunjom, en
yfirgáfu bæinn einni klukkustund
eftir að fundurinn átti að hefjast.
Næstum 10.000 háskólanemar víðs vegar að
frá Suður-Kóreu réðust á óeirðalögreglu-
menn við Yonsei-háskóla á sunnudag. Um
1.200 stúdentar voru handteknir og kom lög-
reglan i veg fyrir að stúdentarnir gætu farið
á fund við norður-kóreska námsmenn í landa-
mærabænum Panmunjom til að ræða samein-
ingu Kóreu. A innfelldu myndinni má sjá lög-
reglumann sparka í höfuð eins nemandans.
Afganskir skæruliðar hefja
eldflaugaárásir á Kabul-borg
Stjórnarherinn nær Kunduz-borg á sitt vald á ný
Kabúl, Reuter.
ELDFLAUGUM var skotið á
Kabúl, höfuðborg Afganistans, í
Reuter
Flokksþing repúblikana hafið
Flokksþing repúblikana hófst í New Orleans í gær og beindu
repúblikanar þegar spjótum sinum að frambjóðanda demókrata,
Michael Dukakis. Þingið stendur í fjóra daga og áætlað er að
George Bush verði útnefndur frambjóðandi repúblikana á fimmtu-
dag. Um fimm þúsund fulltrúar eru saman komnir á þinginu. Á
myndinni bregður einn öryggisvarða þingsins sér á leik með sér-
kennilegan hatt á höfðinu. Sjá ennfremur frétt á bls. 26
gær á sama tíma og Najibullah
forseti tilkynnti að Afganistan-
her hefði náð borginni Kunduz
á sitt vald á ný. Fréttastofan
Tass skýrði frá því að helmingur
100.000 sovéskra hermanna sem
barist hefðu í Afganistan hefðu
yfirgefið landið eins og gert var
ráð fyrir í samningnum sem und-
irritaður var í Genf í apríl.
Meðan Najibullah ræddi við
fréttamenn í utanríkisráðuneytinu
í Kabúl heyrðust sprengingar fyrir
utan. Afganskir embættismenn
staðfestu síðar að nokkrum eld-
flaugum hefði verið varpað á borg-
ina, meðal annars á íbúðarhverfi
þar sem sex manns hefðu fallið.
Útvarpsstöð Afganistanstjórnar-
innar skýrði ennfremur frá því að
sex manns hefðu fallið og sex særst
þegar skæruliðar hefðu skotið 42
eldflaugum á borgina Jalalabad í
austurhluta landsins.
Fréttastofan Tass greindi frá því
að afganskir skæruliðar hefðu náð
Shadardar-héraði, um 40 kílómetr-
um frá höfuðborg landsins, og að
þeir hefðu um. 1.500 eldflaugar til
að skjóta á höfuðborgina. Naji-
bullah forseti staðfesti þetta þó
ekki á blaðamannafundinum.
Skæruliðarnir réðust á Kunduz-
borg tveimur dögum eftir að sov-
ésku hermennirnir fóru þaðan og
héldu henni frá miðri síðustu viku,
að sögn vestrænna stjórnarerind-
reka í Kabúl. Þeir sögðu að um tvö
þúsund afganskir hermenn hefðu
unnið borgina aftur eftir harðvítuga
bardaga sem hefðu staðið í nokkra
daga.
Kunduz var fyrsta mikilvæga
borgin sem skæruliðarnir hafa náð
á sitt vald og var baráttan um hana
talinn prófsteinn á styrk Afganist-
anhers eftir brottflutning sovéskra
hermanna úr landinu.
Fréttastofan Tass staðfesti í gær
að 50.000 sovéskir hermenn hefðu
yfirgefið Afganistan. Næsta skrefið
í brottflutninginum hefst í nóvem-
ber, en fyrirhugað er að honum ljúki
um miðjan febrúar á næsta ári.
Samejnuðu þjóðirnar: .
De Cuellar skerist
í deilu við Rúmena
Genf, Reuter.
NEFND Sameinuðu þjóðanna, sem
fjallar um mannréttindabrot
gagnvart minnihlutahópum, sam-
þykkti í gær tillögu um að fela
Perez de Cuellar, aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna, að biðja stjórn
Rúmeníu um aðstoð við að hafa
upp á fyrrum fulltrúa Rúmeníu {
nefndinni. Rúmenanum, prófessor
Dumitro Mazilu, var falið árið
1985 að skrifa skýrslu um mann-
réttindi í heimlandi sinu en hún
hefur ekki enn borist nefndinni.
í tillögunni er þess einnig krafist
að tveir fulltrúar Sameinuðu þjóð-
anna fái að hitta Mazilu að máli.
Rúmenskir embættismenn hafa
sagt að Mazilu sé hjartasjúklingur
og megi ekki ferðast. Tengdamóðir
Mazilusar sagði embættismanni
Sameinuðu þjóðanna í Búkarest að
prófessorinn væri á heilsuhæli, án
þess að nefna hvar það væri. Nefnd-
armenn segja hins vegar að Mazilu
hafi sent formanni nefndarinnar bréf
í aprfl, þar sem hann sagðist vera
undir lögreglueftirliti og að vegabréf-
ið hefði verið tekið af honum vegna
þess að hann hefði neitað að hætta
við að skrifa mannréttindaskýrsluna.
Áður en gengið var til atkvæða í
nefndinni sagðist fulltrúi Sovétríkj-
anna, Staníslav Tsjemítsjenko, mót-
fallinn tillögunni þar sem hún væri
óframkvæmanleg og stæðist ekki
lög. Ion Diocanu, sem tók við af
Mazilu sem fulltrúi Rúmeníu í nefnd-
inni, sagði að tillagan virtist tilraun
til að hafa eftirlit með Rúmeníu-
stjóm. „Slíkt myndi ekki bæta sam-
skiptin við stjóm Rúmeníu," sagði
hann meðal annars.