Morgunblaðið - 16.08.1988, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
9
RAGNHEIÐAR-
STAÐAHÁTÍÐ
Hin árlega Ragnheiðarstaðahátíð verður haldin 20. ágúst
næstkomandi á Ragnheiðarstöðum.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu félagsins.
Hestamannafélagið Fákur.
tilbreyting...
Á sólarströnd Spánar:
Eldri maður í mjög æstu skapi sneri sér að
konu einni og sagði:
„Er það sonur yðar, þessi litli þorpari, sem
notar nærbuxurnar mínar til að bera sand í?“
„Nei, það er systursonur minn. Það er sonur
minn þarna sem er að moka sand með
hattinum þínum.“
KÓKÓmJÓUc RyKIK 6LATT FÓLK /
MjÓLKURSAMSALAN I REYK|AV(K T~
Þríhyrnings-
formið vanda-
samt
í laugardagsblaði Al-
þýðublaðsins er viðtal við
Jón Sigurðsson, við-
skiptaráðherra. Hann er
í upphafi viðtalsins
spurður hvað hafi mest
komið honum á óvart við
árs veru sína á Alþingi
og í ríkisstjóm:
„Það hefur ekki margt
komið á óvart, nema
hvað þriggja flokka sam-
starf er vandasamt.
Þríhymingsformið er
erfitt form fyrir stjóm-
arsamstarf.
Stjómin hefur þrátt
fyrir ýmsa erfiðleika
komið mörgum góðum
málum' fram á fyrsta
starfsárinu.
Ég nefni fyrst endur-
skipulagningu á tekjuöfl-
un ríkissjóðs, þá undir-
búning aðskilnaðar
dómsvalds og fram-
kvæmdavaJds, breyting-
ar á bifreiðaskoðun, auk-
ið útflutningsfrelsi,
kaupleigukerfið og ýmsa
lagahreinsun."
Síðar í viðtalinu ræðir
Jón vaxtamál og spyr
Alþýðublaðið hvort hann
sé slíkur „fijálshyggju-
gaur“ að vilja ekki
„hamra vexti niður"
nema með nokkurri vit-
und markaðarins.
Jón svarar þvi þannig:
„Ég vil heldur flokka
mína afstöðu i þessum
efnum sem raunsæi en
að velja henni aðrar ein-
kunnir, þvi að þótt með
stjóravaldsákvörðunum
væri sagt að vextir
skyldu lækka, þá er alveg
víst að með þeirri dreif-
ingu á valdi og viðskipt-
um og fjármagni, sem
sem betur fer er hér í
landinu, myndu verða
viðskipti með affölium,
sem breyttu þeim kjömm
sem stjómvöld ákvæðu.
Stjómvöld komast
aldrei hjá þeirri þörf að
koma jafnvægi á í grund-
vallarstærðunum til að
ná raunvöxtum niður i
eðlilegt horf. Það þýðir
jafnvægi i rikisfjármál-
um, og það þýðir hóflega
eftirspum i landinu.
Þetta er markið sem við
keppum að.
Viðskiptaráðherra og
vextirnir
í Staksteinum í dag er vitnað í viðtal við
Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, í Al-
þýðublaðinu á laugardag þar sem hann
ræðir m.a. um stjórnarsamstarfið og
vaxtamál. Einnig er litið á forystugrein í
Þjóðviljanum þar sem rætt er um framtíð
frystihúsa á íslandi.
Mér er engin launung
á þvi að ég tel raimvexti
nú alltof háa. Þeir fá
ekld staðist til lengdar,
en leiðin til að ná þeim
niður er einmitt sú sem
við höfum valið — hún
er torsótt og hefur ugg-
laust orðið erfiðari en við
hugðum í fyrra, þegar
stjómin var mynduð.
Vandamálin vom áreið-
anlega djúpstæðari en
menn sáu þá, og að hluta
má líka rekja vandamál
líðandi stundar til þess
að það var ekki tekið
nógu fast á í byijun. Ég
minni á að í stjómar-
myndunarviðræðunum
vildum við harðari upp-
hafsaðgerðir."
FJármagns-
kostnaðurinn
er fylgikvilli
Síðar er viðskiptaráð-
herra spurður hvort
þjóðfélagið hafi getað
gengið á þeim vöxtum
sem menn hafa verið að
taka lánin á. Hann svar-
ar:
„Vextir hafa skotið
yfir markið og ástæðum-
ar em margar. í fyrsta
lagi var við þvi að búast.
í kjölfar frelsis til vaxta-
ákvarðana hjá lánastofn-
unum að þær seildust of
langt, vegna þess að eft-
irspumin bregst ekki
nógu fljótt við háum
vöxtum. Menn átta sig
ekki á því hvað fjármagn
er dýrt og halda áfram
að taka lán. Og við mikla
vaxtabyrði eykst fjár-
þörfin. En það er ekki
rétt að segja í ölluin
greinum að það sé fjár-
magnskostnaður sem sé
að sliga fyrirtæki og ein-
staklinga. Fjármagns-
kostnaðurinn og vandinn
sem honum fylgir er oft
fylgikvilli annars konar
og djúpstæðari fjárhags-
vanda — þ.e.a.s. hjá fyrir-
tækjúm er um hallarekst-
ur að ræða og í grund-
vallarskilyrðum rekstr-
arins, og hjá einstakling-
um og fyrirtækjum em
oft dæmi um að menn
Iiafi reist sér hurðarás
um öxl í framkvæmdum
og útgjöldum. Því bjarga
ekki lágir vextír tíl
lengdar heldur gætu
bara gert illt verra.“
Áttu við að menn hafi
dembt sér út í að taka I&n
á háum vöxtum þó vitað
væri fyrirfram að um
halla væri að ræða?
„Stundum getur þetta
verið ástæðan, og þá
kemur spumingin: Ef
jafnan er slegið undan,
næst þá nokkura timann
hið langþráða jafnvægi?
Það em merki um að
þetta sé að snúast við.
Bílainnflutningur
hriðfellur. Það er að
koma fram rekstrar-
vandi í verslunar- og
þjónustugreinum sem
döfnuðu mjög á upp-
gangsskeiðinu.
Spuminginn er þessi:
Komumst við nokkum
tímann út úr verðbólgu-
vandanum, sem er afleið-
ing þenslunnar sem hef-
ur rikt hér að undan-
fömu, ef slaki fær aldrei
að koma fram. Ef menn
bregðast við honum fyr-
irfram með því að fjár-
magna alla þörf sem
þannig rís með erlendum
lánum eða með því að
„lækka“ fjármagnskostn-
aðinn með valdboði í
ótíma. Raunhæfur
árangur í því að ná verð-
bólgunni niður næst þá
fyrst að jafnvægi er i
sjónmáli bæði á launa-
markaði og lánamark-
aði.“
Framtíð
frystíhúsanna
í forystugrein Þjóðvilj-
ans á laugardag er fjall-
að um framtíð frystihús-
anna. Þar segir:
„Á sama tima og freð-
fiskur fellur i verði,
bendir margt til þess að
nútima flutningatækni sé
að stækka það markaðs-
svæði þar sem unnt er
að selja ferskan fisk.
Fiskur er sendur með
flugvélum til Evrópu og
er boðinn til sölu í Róma-
borg daginn eftir að
hann er sendur héðan. Á
slíkum markaði er freð-
fískur ekki að keppa við
isfisk sem landað er úr
veiðisldpi eftir þriggja
vikna túr, heldur það
ferskan fisk að jafnvel
íslendingar ætu hann.
Enda selst ferski fiskur-
inn stundum á betra
verði en sá frysti.
Margt bendir til að
skipuleggja þurfí fisk-
vinnslu Islendinga upp á
nýtt. Þar þarf að huga
að þeim verðmætum sem
þegar hafa verið lögð i
hús og tæki og hvað talin
er vera æskileg byggða-
þróun í landinu. Hrossa-
lækningar á borð við
gengisfellingu duga
skammt í þeim efnum."
1 MILLJON
VERÐURAÐ
IM
• • •
Maður á 45. aldursári leggur fyrir eina milljón
króna og kaupir skuldabréf með 10% föstum
vöxtum. Eftir 7,3 ár verður sú fjárhæð orðin 2
milljónir, 4 milljónir eftir 14,6 ár og 8 milljónir
eftir 21,9 ár en þá er maðurinn á 67. aldursári.
Sú fjárhæð nægir fyrir 67 þúsund króna
mánaðarlegri greiðslu án þess að ganga á
" höfuðstólinn eða fyrir 94 þúsund krónum á
mánuði í 12 ár.
Það borgar sig að spara hjá VIB.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF.
Árifiúla 7, 108 Reykjavík. Sími68 15 30