Morgunblaðið - 16.08.1988, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
Tilnefning ráðu-
neyta ekki komin
RÁÐUNEYTI fjármála og heilbrigðismála hafa ekki skipað full-
trúa í þriggja manna samstarfsnefnd sem sjá á um að samkomu-
lag til lausnar fjárhagsvanda Landakotspitala verði framkvæmt.
Fulltrúaráð Landakotsspítala tilnefndi Loga Guðbrandsson, fram-
kvæmdastjóta Landakots, í nefndina af hálfu spítalans.
Guðmundur Bjamason heil- heita eftirlitsstjórn. Stefán Frið-
brigðisráðherra sagði við Morgun-
blaðið að hann hefði ekki enn skip-
að fulltrúa síns ráðuneytis, sem
verður formaður nefndarinnar, en
hann biði eftir tilnefningu fjár-
málaráðuneytissins. Stefán Frið-
fínnsson aðstoðarmaður íjármála-
ráðherra sagði að fulltrúi ráðuney-
isins hefði ekki verið valinn.
Samkæmt samkomulagi ráð-
herranna tveggja, sem fulltrúaráð
Landakots féllst á eftir ákveðnar
breytingar, segir að samstarfs-
nefndinni beri að sjá um að sam-
komulagið verði framkvæmt og
hún skuli kappkosta að atriði sam-
komulagsins verði framkvæmt á
naestu íjórum mánuðum.
I athugasemdum fulltrúaráðs
Landakotsspítala við samkomu-
lagið, sem sendar voru heilbrigðis-
ráðherra, segir að það sé skilning-
ur fulltrúaráðsins að samstarfs-
nefnd þessi gegni samráðshlut-
verki en ekki stjómunarhlutverki.
Það hafí lengi skort mjög á að
samskipti milli spítalans og ráðu-
nejtianna hafi verið fullnægjandi
og yrði mikil bót af þessari nefnd
sem gæti orðið tengiliður á milli
spítalans ’og ráðuneytanna.
Upphaflega átti nefndin að
fínnsson sagði við Morgunblaðið
að fjármálaráðuneytið hefði fallist
á að það væri sama hvað þessi
nefnd héti enda væri fullur skiln-
ingur á að hlutverk hennar væri
ekki að hafa samráð við fólk held-
ur stjórna spítalanum.
Guðmundur Bjarnason sagði við
Morgunblaðið að það væri verkefni
þessarar nefndar að fylgja tillög-
unum í samkomulaginu eftir. I
sínum huga hefði aldrei verið
stefnt að því að breyta stjórnskipu-
lagi sjúkrahússins, né setja þar
einn eða neinn af heldur ætti
nefndin að geta verið samstarfs-
vettvangur þessara aðila. Hins
vegar væri verkefni nefndarinnar
alveg skýlaust: að sjá um að þau
atriði, sem samkomulagið kvæði á
um, verði framkvæmd.
INNLENT
Samstarfsnefndin um Landakotsspítala:
Hljómsveitin Neistar.
Morgunblaðið/Einar Falur •
Afmælisveizla Kringlunnar
í TILEFNI af eins árs afmæli
Kringlunnar, voru þar ýmsar
uppákomur og skemmtiatriði á
föstudag og laugardag. Hljóm-
sveitir léku og boðið var upp á
nýjan jógúrtís og blöðrur.
Kringlan hélt upp á eins árs
afmæli sitt með skemmtiatriðum
og veitingum á föstudag og laug-
ardag. Spænski sirkusinn, sem nú
er staddur hér á landi, sýndi listir
sínar og ýmsir hljómlistarmenn
komu fram. Hljómsveitin Neistar
lék dægurlög, Birgir Birgisson
spilaði á hljómborð og Hafnfírska
blásarasveitin lék. Þá var fólki
boðið að smakka á nýjum jógúrtís
og allir gátu fengið kók og blöðrur.
Að sögn Einars Inga Halldórs-
sonar, framkvæmdastjóra Kringl-
unnar komu á milli 25.000-30.000
manns í Kringluna á afmælinu.
Forseti í opinbera heim-
Eru
þeir að
fá 'ann
-?
■
Stefnir í met í Haukunni.
Mikil veiði hefur verið í
Haukadalsá það sem af er sumri
og þó hefur lengst af í sumar
verið leiðindaveður og lítt fýsi-
legt að standa við veiðar. Alls
hafa tæplega 900 laxar veiðst í
ánni á stangimar fímm, en menn
hafa gert sér í hugarlund að lax-
amir í ánni um þessar mundir
séu milli 2500 og 3000 talsins.
Og enn streymir í ána nýgenginn
lax. Holl sem lauk tveggja daga
veiðum á sunnudaginn og
hreppti aftakarok varð að láta
sér lynda 18 laxa, en flestir lax-
anna voru nýgengnir og margir
lúsugir. Ógurlegar torfur eru
víða af laxi í ánni, eins og í
Neðri Streng, Blóta, Eggert og
víðar. Stórfenglegt sjónarspil.
Mest er þetta smálax, 5 til 6
punda fiskar eru liðflestir í aflan-
um og stærstu laxar sumarsins
hafa vegið 17 og 18 pund. Stór-
ir laxar eru vissulega í bland í
ánni, en fáir miðað við smálaxa-
gerið.
Reytingxir í Efri Hauku.
Reytingsafli hefur verið í Efri
Haukadalsá, ofan Haukadals-
vatns og nokkur góð bleikjuveiði-
skot hafa drýgt veiðina enn
fremur. Þetta em þó ekki marg-
ir laxar og til í dæminu að eitt-
hvað sé ekki skráð. í veiðibókina
sem er í veiðihúsiriu við neðri
ána eru skráðir milli 10 og 20
laxar og veiddust eir fyrstu
óvenjulega snemma, eða
snemma í júlí, 12 og 13 punda
fískar.
Dofnar yfir Hvolsá og
Staðarhólsá.
Veiðin hefur dofnað nokkuð í
Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum,
síðasta holl var með aðeins 8
laxa, en drjúga silungsveiði, allt
að 4 punda bleikjur og sumar
bleikjumar sem ekki glöptust á
voru stærri en stærstu laxamir
sem til sást í ánni. Þó hefur veið-
in í heild verið afar góð, sú besta
fyrr og síðar og komnjr eru um
500 laxar á land. Er það met-
veiði sem bjartsýnustu menn
geta vart ímyndað sér að verði
slegið í bráð.
Lélegt í Langholti.
Léleg veiði hefur verið í Hvítá
í Ámessýslu í landi Langholts
að undanfömu. Harðsnúinn hóp-
ur um helgina síðustu náði eng-
um laxi og vikuna áður höfðu
aðeins 5 laxar veiðst og er þama
þó barið með þremur stöngum
dag hvem. Þykir þetta ekki
sæma jafn góðum veiðistað og
Langholtið er. Tíðindamaður
Morgunblaðsins sagði eitthvað
af laxi vera á svæðinu, hann
stykki vítt og breitt, en greini-
legt væri að það vantaði nýjar
göngur til að hressa upp á leiða
veiðimenn.
gg
sókn í Húnavatnssýslur
FORSETI Islands, Vigdís Finn-
bogadóttir fer í opinbera heim-
sókn í Húnavatnssýslur, dagana
25.-28. ágúst næstkomandi. í
fylgd með forseta verða Korne-
líus Sigmundsson forsetaritari
og eiginkona hans, Inga Her-
steinsdóttir. Fer dagskrá heim-
sóknarinnar hér á eftir.
8.15 Brottför frá Reykjavík.
11.00 Komið að sýslumörkum við
Hrútafjarðará. Sýslumaður og
sýslunefnd Vestur-Húnavatns-
sýslu taka á móti forseta.
11.15 Ekið að Reykjaskóla. Tijám
plantað. Byggðasafnið skoðað.
Sýslunefnd og hreppsnefnd Stað-
arhrepps bjóða til hádegisverðar.
Síðan verður opið hús og kaffi-
veitingar fyrir íbúa sveitarinnar.
15.00 Ekið í Miðfjörð. Skoðaður
minnisvarði um Ásdísi, móður
Grettis Ásmundssonar að Bjargi.
Mögulegt er að fara innar í sveit-
ina, að Efra-Núpi, og skoða leiði
Skáld-Rósu.
17.00 Komið að Laugabakka, Mið-
fírði. Þar verður opið hús og
kaffíveitingar fyrir íbúa Fremri-
og Ytri-Torfustaðahreppa í boði
hreppsnefndanna.
18.30 Ekið að Hvammstanga. Gist
verður í Vertshúsinu.
20.00 Kvöldverður sýslunefndar og
hreppsnefnda Hvammstanga-
hrepps og Kirkjuhvammshrepps.
21.30 Opið hús og kaffiveitingar í
félagsheimilinu í boði hrepps-
nefndanna.
Föstudagur 26. ágúst 1988
8.30 Tijám plantað við barnaskól-
ann.
9.00 Ekið frá Hvammstanga út
Vatnsnes fram hjá Tjörn, Hind-
isvík o.fl. að Hvítserki.
10.00 Komið að Hvítserki. Klettur-
inn skoðaður.
10.20 Ekið að Þorfínnsstaðaskóla.
10.30 Opið hús og kaffiveitingar í
skólanum fyrir íbúa Þverár-
hrepps. Tijám plantað.
12.00 Ekið að Borgarvirki. Gengið
upp í virkið.
12.40 Ekið frá Borgarvirki inn í
Viðidal austanverðan að Kolu-
gljúfrum í Víðidalsá. Þaðan að
Víðihlíð.
14.15 Komið í Víðihlíð. Opið hús
og kaffíveitingar fyrir íbúa Þor-
kelshólshrepps í boði hrepps-
nefndar. Tijám plantað.
16.15 Ekið frá Víðihlíð að sýslu-
mörkum við Gljúfurá. Þar tekur
sýslunefnd Austur-Húnavatns-
sýslu á móti forseta.
16.45 Ekið að hótelinu á Blönduósi.
17.15 Komið á Blönduós. Gisting
þar í 2 nætur.
18.15 Ekið til Skagastrandar.
Bærinn skoðaður. Tijám plantað.
19.45 Kvöldverður í boði hrepps-
nefnda Höfðahrepps (Skaga-
strönd), Vindhælis- og Skaga-
hrepps.
21.30 Opið hús og kaffiveitingar í
félagsheimilinu fyrir íbúa hrepp-
anna. Að því opnu verður ekið
til Blönduóss og gist þar.
Laugardaginn 27. ágúst 1988
9.00 Ekið frá Blönduósi í Húna-
ver.
10.00 Opið hús og kaffíveitingar í
Húnaveri fyrir íbúa Svínavatns-,
Bólstaðarhlíðar- og Engihlíðar-
hreppa. Tijám plantað.
11.30 Ekið frá Húnaveri að
Blönduvirkjun. Jóhannes Nordal,
stjómarformaður, Halldór Jóna-
tansson, forstjóri Landsvirkjunar,
og Sveinn Þorgrímsson, staðar-
verkfræðingur, taka á móti for-
seta við op jarðganga. Stöðvar-
húsið skoðað. Síðan verður ekið
ÞRÍR bílar lentu í hörðum
árekstri á mótum Bústaðavegar
og Suðurhlíðar á laugardaginn.
Bílunum var öllum ekið austur
Bústaðaveg. Okumaður þess
fremsta stöðvaði þar sem rautt Ijós
var að kvikna fyrir akstursstefnu
hans. Þeim sem næst kom tókst
að stíflumannvirkjum á Auðkúlu-
heiði og þau skoðuð.
13.45 Hádegisverður í mötuneyti
starfsmanna í boði Landsvirkjun-
ar.
15.00 Tijáplöntun í skógræktarreit
á staðnum.
15.15 Ekið frá Blönduvirkjun áleið-
is til Húnavalla.
15.45 Opið hús og kaffiveitingar á
Húnavöllum fyrir íbúa Torfulækj-
ar-, Sveinsstaða- og Ásahreppa.
Ttjám plantað.
17.45 Ekið til Blönduóss.
18.00 Komið á hótelið á Blönduósi.
19.30 Kvöldverður í boði bæjar-
stjórnar Blönduóss
Sunnudagur 28. ágúst 1988
9.00 Ekið frá Blönduósi út Skaga,
ef veður leyfir. Skoðaðir ýmsir
markverðir staðir, m.a. Kálfs-
hamarsvík og sjávarhamrar úr
stuðlabergi. E.t.v. ekið að Digra-
múla; en þaðan er mjög víðsýnt.
12.00 Komið til Blönduóss. Hádeg-
isverður á heimili sýslumanns-
hjóna.
13.30 Bærinn skoðaður. Tijám
plantað í Hrútey.
15.00 Opið hús og kaffiveitingar í
félagsheimilinu fyrir bæjarbúa og
aðra Húnvetninga, sem hitta vilja
forseta.
17.00 Ekið frá Blönduósi að Þing-
eyrum. Kirkjan skoðuð. Ekið það-
an um Vatnsdal. Staðnæmst við
Þórdísarlund. Tijám plantað.
E.t.v. boðið upp á hressingu á
einu býlinu áður en ekið verður
til Reykjavíkur.
ekki að stöðva í tæka tíð og ók
aftan á hann. Sá þriðji, sem grunað-
ur er um ölvun við aksturinn, ók
svo aftan á hina tvo. Teljandi
meiðsli urðu ekki á fólkinu, sem í
bílunumn var, en vanfær kona sem
var í einum þeirra var þó færð til
rannsóknar.
Þriggja bíla árekstur