Morgunblaðið - 16.08.1988, Síða 31

Morgunblaðið - 16.08.1988, Síða 31
TOtYnA. 51 Sf'rfÖAnUMJí3<í TflVf'Jfí30W MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988 op 31 Frá slysstað. Morgunblaðið/Gunnar Jónasson Alvarlegt bifhjólaslys á Vesturlandsvegi ÖKUMAÐUR bifhjóls slasaðist talsvert í umferðarslysi á Vestur- landsvegi við Korpúlfsstaði klukkan rúmlega 16 á laugardag. Bifhjólinu var ekið norður Vest- urlandsveg og framúr bifreið, sem í sama mund var beygt inn á veg- inn að Korpúlfsstöðum. Bifhjóla- maðurinn slasaðist talsvert, meðal annars á fótum. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 15. ágúst. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 40,50 37,00 37,58 64,463 2.422.969 Undirmál 19,00 18,00 18,50 1,400 25.900 Ýsa 79,00 35,00 57,16 13,581 776.477 Ufsi 20,00 15,00 19,19 4,677 89.769 Karfi 20,00 18,00 18,48 2,208 40.813 Steinbítur 30,00 17,00 21,91 0,440 9.653 Hlýri 19,00 19,00 19,00 0,927 17.616 Langa 15,00 15,00 15,00 0,074 1.110 Koli 38,00 38,00 38,00 1,022 38.860 Lúða 170,00 120,00 134,77 0,406 54.749 Skata 40,00 40,00 40,00 0,012 480 Skötuselur 85,00 80,00 83,20 0,079 6.573 Samtals * 38,96 89,292 3.479.623 Selt var aðallega úr Gandi VE og Keili RE. í dag veröa m.a. seld 41 tonn af þorski, 92 tonn af ufsa, 12 tonn af karfa, 1,8 tonn af ýsu og 0,9 tonn af steinbít úr Stálvik Sl og 8 tonn af blönduöum afla úr Frá VE. FAXAMARKAÐUR hf. i Reykjavík Þorskur 43,50 36,00 38,56 129,865 5.007.683 Undirmél 18,00 18,00 18,00 0,513 9.234 Ýsa 64,00 20,00 60,12 1,054 63.371 Karfi 15,00 15,00 15,00 0,155 2.325 Ufsi 11,00 11,00 11,00 0,217 2.387 Steinbítur 21,00 19,00 20,24 0,226 4.574 Hlýri 24,00 22,50 22,91 4,988 114.291 Lúða 175,00 175,00 175,00 0,047 8.225 Samtals 38,03 137,065 5.212.089 Selt var úr Hjörleifi RE og Jóni Baldvinssyni RE. i dag verða m.a. seld 100 tonn af þorski og 29 tonn af ufsa úr Vigra RE. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 43,50 27,00 39,52 87,335 3.451.460 Undirmál 17,50 17,50 17,50 7,560 132.300 Ýsa 57,00 20,00 49,48 11,237 555.995 Ufsi 19,00 16,00 18,18 29,175 530.342 Karfi 19,00 . 15,50 18,38 3,199 58.787 Steinbítur 20,50 19,50 20,08 1,391 27.928 Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,855 12.825 Langa 20,50 11,00 13,21 0,352 4.651 Langlúra 5,00 5,00 5,00 0,420 2.100 Sólkoli 48,00 39,00 46,60 0,645 30.060 Skarkoli 41,50 35,00 40,20 3,100 120.400 Lúða 157,00 65,00 92,95 0,571 53.077 Öfugkjafta 15,00 14,00 14,58 3,897 56.808 Grálúða 5,00 5,00 5,00 0,420 2.100 Skata 53,00 53,00 53,00 0,012 636 Skötuselur 209,00 52,00 175,05 0,074 12.954 Samtals 33,71 149,811 5.050.050 Selt var aöallega úr Bergvík KE, Þresti KE og Eldeyjar-Boöa. i dag verða m.a. seld 46 kör af stórþorski, 16 kör af smáþorski og 15 kör af ýsu úr Sigurborgu KÉ. Grsenmetlsverö á uppboðsmörkuðum 15. ágúst. SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA Gúrkur 85,76 2,065 177.090 Tómatar 137,02 1,974 270.468 Sérrítomatar 304,00 0,002 608 Paprika(græn) 252,73 0,620 156.690 Paprika(rauð) 353,99 0.340 120.355 Paprika(gul) 404,00 0,005 2.020 Gulrætur 178,21 1.030 183.560 Gulrætur(pk.) 166,99 0,970 161.980 Rófur 86,00 0,500 43.000 Steinselja 32,44 1,130 36.660 Kínakál 135,31 1,638 221.634 Blómkál 82,56 0,364 30.051 Hvítkál 92,32 1,360 125.560 Spergilkál 203,40 0,025 5.085 Sellerí 166,00 0,015 2.490 Sámtals 1.587.111 Einnig voru seldir 960 hausar af salati fyrir 49.860 krónur eöa 51,94 króna meðalverö. Næsta uppboö verður klukkan 16.30 i dag, þriöjudag. Skýrsla um öryggismál í f lugi: Místök flugmanns orsök í 95% slysa í einkaflugi Tillögur um hertar reglur og aukið aðhald í SKÝRSLU um öryggi í einkaflugi, sem nefnd á vegum samgöngu- ráðuneytisins vann, kemur fram að í rannsóknarskýrslum er flug- maðurinn nefndur í 95% tilvika sem orsakaþáttur í slysum og óhöpp- um i einkaflugi hér á landi. Aðrir helstu orsakaþættir eru veður í 22% tilfella og bilun í 16% tilvika. í 20% tilvika eru aðrir orsakaþætt- ir nefndir. í skýrslunni er dregin sú ályktun, að æði oft sé orsaka slysa og óhappa að leita í reynsluleysi, agaleysi, skorti á dómgreind eða kæruleysi og að þessir þættir fléttuðust oft saman á ýmsa vegu. í skýrslunni eru settar fram tillögur um hertar reglur í einkaflugi og aukið aðhald. Þá er þar sagt um ReykjavíkurflugvöII að hann sé „...afár vel staðsettur og vinna ber af alefli að þvi að halda hon- um þar sem hann er.“ Skýrslan gerir ítarlega grein fyr- ir flugumferð og flugstjóm hér á landi og hvaða reglur gilda þar um. Fram kemur, að slysatíðni í einka- flugi er í meðallagi hér á landi mið- að við nokkur tilgreind Evrópulönd, en tíðni dauðaslysa í einkaflugi er hæst hér á landi. Á fimm ára tíma- bili, 1982-1986, er íjöldi slysa mið- að við 100.000 flognar klukku- stundir að meðaltali 28,9 á ári, þar af 9,6 dauðaslys. Þar sem raun- verulegir flugtímar eru færri en 100.000 á ári hér, ■ verður þessi reiknitala um tíðni slysa hærri en tala slysanna er. T.d. urðu tvö dauðaslys í einkaflugi árið 1986, sem verða 13,3 fyrir hveijar 100.000 flognar klukkustundir. Dæmi um slysatíðni í öðrum löndum samkvæmt sömu reiknireglu og á sama fimm ára tímabili eru (slys/dauðaslys); Svíþjóð 33,2/-; Danmörk 40,7/8,6; Finnland 48,8/9,3; Noregur 52,2/9,4; V- Þýskaland 24,6/3,1; Bretland 28,2/3,3 og Belgía 8,6/3,3. í V- Evrópu eru aðalorsakaþættir flug- slysa í einkaflugi, samkvæmt skýrslum Flugmálasambands Evr- ópu, flugmaður í 70,8% tilvika, veð- ur í 6,0% tilvika og bilun í 3,6% tilvika. Aðeins er nefndur einn or- sakaþáttur í hveiju tilviki og tölurn- ar eiga við um árið 1984. Um þátt flúgmanna segir í skýrslunni til samgönguráðuneytis- ins: „Æði oft virðist orsakanna að leita í reynsluleysi, agaleysi, skorti á dómgreind eða kæruleysi og þess- ir þættir fléttuðust oft saman á ýmsa vegu. Athyglisvert er þó, að þeir flugmenn sem lentu í óhöppum eða slysum voru að meðaltali með 380 klst flugtíma reynslu." Um þátt veðurs segir: „Það var mikil afturför þegar flugveðurstof- an flutti af Reykjavíkurflugvelli og raunar var það óskiljanleg ráðstöf- un. Náið persónulegt samband flug- veðurfræðinganna við einkaflug- menn rofnaði að mestu leyti og ekki var lengur sjálfsagður þáttur í flugundirbúningi einkaflugmanns- ins að koma við á Veðurstofunni fyrir flug, skoða veðurkort og ræða augliti til auglitis við veðurfræðing- inn, sem menn þekktu þá oftast persónulega." Um bilanir er sagt: „Bilanir þær sem komið hafa í Ijós og verið meðvirkandi orsakir í flugslysum og óhoppum, voru fyrst og fremst raktar til mistaka í viðhaldsvinnu og til lélegs viðhalds." Tillögnr um úrbætur Nefndin setur fram tillögur um úrbætur og eru þær í 13 liðum. Hér verður gerð grein fyrir helstu efnisatriðum þeirra. Nefndin leggur áherslu á að gengið verði sem fyrst frá reglum sem Flugmálastjóm hefur unnið að um æfingasvæði skóla- og einka- flugs í nánd við Reykjavík. Lagt er til að þess verði krafist, að allar flugvélar sem fljúga í flugstjómar- sviðum Reykjavíkurflugvallar og Keflavíkurflugvallar hafi radar- svara. Undanþágur megi þó veita gömlum flugvélum, sem ekki hafa rafkerfí. Lagt er til að lágmarkskröfur um flugskyggni í sjónflugi (undir hinu stjómaða loftrými í innánlands- flugstjómarsvæðinu) verði 5 kíló- metrar í stað 1,5 kílómetra eins og nú er gert. Nefndin leggur einnig til að reglur um gerð flugáætlana verði endurskoðaðar og hertar og að komið verði á beinu og aðgengi- legu upplýsingasambandi við Veð- urstofuna á hentugum stað eða stöðum á Reykjavíkurflugvelli og að sett verði ríkisveðurlágmörk í sjónflugi og blindflugi fyrir alla skráða flugvelli. Þá er lagt til að ekki verði leyft sjónflug að nóttu nema í nánd upplýstra flugvalla og yfír samfelldri byggð og til þess þurfí flugmaður sérstök réttindi. Nefndin leggur til að flugum- ferðarstjórar, flugradíómenn og flugvallarverðir verði skyldaðir til, með starfsreglum þeirra, að til- kynna Flugmálastjóm strax, ef þeir^ verða þess varir að flugmenn bijóti flugreglur. Lagt er til að komið verði upp símum við flugstöðvar, sem flugmenn geta komist 1 utan starfrækslutíma flugstöðvanna. Þá er lagt til að einkaflugmenn verði skyldaðir til áskriftar að Flug* málahandbókinni, að skírteina- reglugerð verði breytt þannig að allir einkaflugmenn verði skyldaðir til að sækja endurmenntunarná- mskeið ekki sjaldnar en annað hvert ár og að endurskoða þurfi reglur um gerð og búnað loftfara. Loks leggur nefndin mikla áherslu á að Flugmálastjóm verði gert fjárhagslega kleift að ijölga mönnum í föstu starfí til þess að hafa eftirlit með starfsemi flug- skóla og annarri flugstarfsemi í landinu. Skýrsla þessi er til umfjöllunar hjá flugráði. Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra sagðist ekki vera reiðubúinn að tjá sig um inni- hald skýrslunnar þegar Morgun- blaðið leitaði álits hans í gær. Hann kvaðst bíða niðurstöðu flugráðs og að henni fenginni meta hvað gera skuli. Reykjavíkurflugvöllur: Einn öruggasti flug- völlur Vestur-Evrópu - segir formaður flugslysanefndar Reykjavíkurflugvöllur er einn af öruggustu flugvöllum V-Evrópu, segir Karl Eiríksson formaður flugslysanefndar. „Það hræðir mig verulega ef ætti að flytja flugumferðina til Keflavíkur og setja kannski þrefalda umferð þangað á hraðbraut. Reylqanesbraut er búin að vera mjög dýr í slysum og mannslífum,“ sagði Karl. Hann var spurður um röksemdir fullyrðingar sem fram kemur í skýrslu um öryggi í einkaflugi. Þar er sagt: „Reykjavíkurflugvöllur er afar vel staðsettur og vinna ber af alefli að því að halda honum þar sem hann er.“ Karl var formaður þeirrar nefndar sem gerði skýrsluna, samkvæmt ákvörðun samgönguráðherra. „Það er verið að tala um að þetta sé hættulegt, að það sé flogið yfír miðborg Reykjavíkur. En hvað eig- um við að telja upp af flugvöllum, Los Angeles, San Fransisco, Idlew- ild, Ósló, Hamborg, Hanover, Schip- hoí í Amsterdam, það er flogið yfir þéttbyggð svæði á alla þessa staði. .Þetta er svona alls staðar og allir flugvellimir í Los Angeles, sem eru einir fímm, eru hreinlega inni í miðri borg,“ sagði Karl Eiríksson. „Ég hef ekki heyrt nein rök fyrir því að það sé hættulegra að hafa Reykjavíkurflugvöll hér heldur en til dæmis að beina tugþúsundum eða hundruðum þúsunda manna til viðbótar til Keflavíkur. Reykjavík- urflugvöllur er einn af örúggustu flugvöllum í Vestur-Evrópu. Nú verður hér flugslys við völlinn og það dettur engum í hug annað en að loka honum. Reykjanesbraut er undir engum kringumstæðum undir það búin að taka við þeirri umferð sem fylgir að flytja flugið til Keflavíkur. Það er að mjög vel at- huguðu máli að ég segi að Reykjavíkurflugvöllur sé best settur hér.“ Karl sagði mikið óhagræði skap- ast auk þess fyrrir alla aðila, ef Reykjavíkurflugvöllur yrði lagður niður og flugumferðin flutt til dæm- is til Keflavíkur. „Við getum tekið dæmi um farþega sem ætlar að fara til Vestmannaeyja og fer héðan einhvers staðar úr Reykjavíkur- svæðinu út á flugvöll. Vestmanna- eyjar eru kannski einmitt dæmi- gerður staður fyrir það, að þegar á að fara af stað þá er komið óveður þar. Fólk sem væri kallað til Keflavíkur til þess að fljúga til Eyja, það er 25 mínútna flug, það eyðir kannski klukkutíma í að kom- ast að heiman út á Keflavíkurflug- völl. Svo er kannski ekki flogið. Þetta væri að mínum dómi dauða- dómur yfir þessu flugi og um leið að verulegu leyti yfir einkaflugi ef svo langt verður að fara,“ sagði Karl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.