Morgunblaðið - 16.08.1988, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
39
Kennaraháskóli Islands:
Fyrirlestur um náms-
mat og námskeið
TVEIR bandarískir uppeldis-
fræðingar eru staddir hér á
landi, Robert Stake, prófessor
við University of Illinois og
Bernadine Stake, kennari við
sama skóla. Robert Stake flytur
fyrirlestur um áhrif námsmats á
skólastarf i Kennaraháskóla ís-
lands, fimmtudaginn 18. ágúst.
Bernadine Stake verður með
tveggja daga námskeið fyrir
kennara um kennslu í stræðfræði
og raungreinum á vegum Kenn-
araháskólans dagana 17. og 18.
ágúst.
Robert Stake hefur um árabil
verið prófessor við University of
Illinois og forstöðumaður rannsókn-
arstofunarinnar Center for Instruc-
tional Research and Curriculum
Evaluation, C.I.R.C.E., við sama
skóla. Hann lauk doktorsgráðu við
Princton og hefur skrifað fjölda
greina og bóka um námsmat og
mat á skólastarfi. Á íslensku hefa
birtst eftir hann tvær greinar, Fræ-
kom efans í Menntmálum árið 1975
og Við bætum ekki menntun með
því að staðla námið í Nýjum
menntamálum árið 1987.
Fyrirlestur Roberts á fimmtudag,
tengist rannsóknum á áhrifum
námsmats á skólastarf, sem hann
hefur staðið að undanfarið. Hann
verður fluttur á ensku og nefnist
„Implications of Assessment on
Schooling".
Bernadine Stake lauk doktors-
gráðu frá University of Illinois og
hefur kennt kennaranemum þar og
starfandi kennurum. Þá hefur hún
stundað rannsóknir og tilraunir með
breyttar aðferðir við kennslu stærð-
fræði og raungreina ásamt Jack
A. Easely við sama háskóla. Stake
hefur einnig unnið að rannsóknum
á notkun tölva við kennslu og mat
á skólastarfi og tilraun til að auka
jafnrétti kynjanna í skólum. Nám-
skeið Beranadine Stake er fyrir
kennara um kennslu stærðfræði og
raungreina.
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
NÍÐSTERK
ÞUNGAVIGTARLÍNA
Fœst í nœstu sportvöruverslun.
Ein af Ijósmyndum Bengts S.
Eriksson.
Sænskur ljós-
myndari sýnir
á Kjarvals-
stöðum
SÆNSKI ljósmyndarinn Bengt
S. Eriksson sýnir nú ljósmyndir
sínar á Kjarvalsstöðum. Sýningin
hófst 6. ágúst og henni lýkur
sunnudaginn 21. águst.
. Bengt S. Eriksson er fæddur
árið 1948, búsettur í GÁvle í
Svíþjóð. Hann er meðlimur í sænsk-
um samtökum náttúruljósmyndara
og hefur fengið ýmis verðlaun fyrir
ljósmyndir sínar, m.a. „Hasselblad
master avard“. Hann hefur haldið
margar einkasýningar, m.a. í Upp-
sala Konsthal 1983, Hasselblad
Gallery í Gautaborg 1983 og í Norð-
urlandahúsinu í Færeyjum 1987.
Einnig hefur hann tekið þátt í sam-
sýningum, m.a. Camera Obscura í
Stokkhólmi og Annarri alþjóðlegu
list- ljósmyndasýningunni í Peking
í Kína. Hann hefur fengið myndir
sínar birtar í ýmsum tímaritum um
ljósmvndun, m.a. bandaríska tíma-
ritinu Modem Photograph, franska
blaðinu Zoom og tímaritinu Foto í
Svíþjóð.
Bengt S. Eriksson hefur tekið
myndir hér á landi og var hann hér
síðast í apríl 1986.
„Þúfœrð öll fáanleg, örugg verðbréfhjá VIB, “
segir Sigurður B. Stefánsson.
Hvad með upplýsingar um
verðbréf?
„Þaö nægir að koma í VIB til að fá alla
þá þjónustu og upplýsingar um verð-
bréí' sem þú jrarf't. VIB býður allar
tegundir skuldabréfa og hlutabréfa
þeirra fyrirtækja sem eru á markað-
num hverju sinni. Við getum útvegað
skuldabréf og hlutabréf frá öðrum
auk [reirra sem við gefum út. Það er
jrví nóg að koma í VIB til að fá örugg
skuldabréf. Ráðgjafar VIB ráða þér
heilt í verðbréfaviðskiptum."
Kaupi ég eitt stórt bréf eða
mörg lítil?
„Þaö fer nú alveg eftir því hvaða
fjárhæöir er verið að ávaxta. Venju-
lega mælum við með því að fjárhæð-
inni sé skipt á nokkur bréf. Sé um
allháa fjárhæð að ræða er henni
oftast dreif't á nokkrar tegundir
bréfa, t.d. ríkisskuldabréf, banka-
tryggð bréf, Glitnisbréf og Sjóðsbréf.
En Jréttt aðeins sé keypt ein tegttnd
bréfa mælum við samt með því að
dreif'a fénu á nokkur bréf' Svo að f'ólk
geti innleyst hluta Jreirra ef þörf
kref'ur."
Marga óar við umslangi og fyrirhöfn
vegna verbbréfaviöskiþUi. lin þau verda
ofur einfóld og arbbœr þegar þú kemur i
VIB. Þar færbu uþþlýsingar um öll
verdbréf á markabnum og heilreébi í
kauþbceli.
Veríd velkomin i VIB.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF.
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30
Þarf éjg að fara
út um allan bæ til að kaupa
verðbréf?
Trilene