Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
Afmælisvika Siglufjarðar
Komið til guðsþjónustu í Hvanneyrarskál. Á myndinni má sjá Erling Óskarsson bæjarfógeta og sr.
Vigfús Þor Árnason.
Hátíðarhöld vegna kaup-
staðar- og verslunar-
afmælis Siglufjarðar
Síðast liðinn laugardag hófst afmælisvika Siglufjarðar. Það var 20.
maí 1818 að Siglufjörður varð löggiltur verslunarstaður, en réttri öld
síðar eða sama dag árið 1918 voru bænum veitt kaupstaðarréttindi
með lögum frá Alþingi. Árið 1988 er því tvöfalt afmælisár i sögu Siglu-
fjarðar og ekki að undra þótt bæjarbúar minnist afmælisins nú. Saga
Siglufjarðar er svo nátengd síldinni að varla er hægt að hugsa um
annað nema að hitt komi upp í hugann. Yfir síldarárunum hvílir ævin-
týraljómi sem á sér engan líka í allri Islandssögunni. Ævintýrið hófst
með komu Norðmanna til Siglufjarðar eftir síðustu aldamót. Þeir réðu
yfir nýjum veiðarfærum og tóku að veiða síld úti á opnu hafi. Reistar
voru síidarsöltunarstöðvar og síðar síldarbræðslur. Innlendir athafna-
menn létu ekki sitt eftir liggja og silfri hafsins var mokað á land.
Vöxtur Siglufjarðar var meiri en nokkurs annars kaupstaðar á lands-
byggðinni frá aldamótum og fram tii síðari heimsstyrjaldar. Á því tíma-
bili fjölgaði íbúum úr því að vera um 150 í 3100. Tölurnar tala sínu máli.
En síldin kom og síldin fór. Á fáum árum fækkaði bæjarbúum um
þriðjung. Þótt síldin hafi brugðist lögðu flestir Siglfirðingar ekki upp
laupana. Á undanförnum árum hefur verið lyft Grettistaki í atvinnumál-
um bæjarins og óhætt er að segja að menningar- og mannlíf á Siglu-
firði standi í blóma.
Það var hátíðlegt um að litast á
upphafsdegi afmælisvikunnar á Si-
glufirði. Fánar alls staðar dregnir
að húni og bærinn snyrtilegri en
nokkum tíma fyrr. Prúðbúnir bæj-
arbúar og gestir þeirra héldu árdeg-
is út á flugvöll og biðu þar komu
forseta Islands, Vigdísar Finnboga-
dóttur. Menn létu það ekki á sig fá
þótt ekki sæist til sólar nema ein-
staka glenna og fjölmenntu til að
heilsa forsetanum.
Þar sem draumar rættust
Hátíðarsamkoma var í Siglufjarð-
arkirkju eftir hádegi. Björn Jónas-
son, forseti bæjarstjórnar, setti sam-
komuna og bauð Siglfirðinga oggesti
velkomna til hátíðarinnar. Auk for-
seta íslands, héldu Jóhanna Sigurð-
ardóttir, félagsmálaráðherra, og
Birgir ísleifur Gunnarsson, mennta-
málaráðherra, ræður á hátíðarsam-
komunni.
I ræður sinni minntist Vigdís Finn-
bogadóttir mikilvægi Siglufjarðar í
tímans rás og sagði alla íslendinga
standa í þakkarskuld við Siglufjörð.
„Hér varð silfur hafsins að gulli og
hingað kom fólk svo að draumar
þess mættu rætast," sagði Vigdís
Finnbogadóttir í ræðu sinni.
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, færði bæjarbúum góð
tíðindi er hún sagði að ákveðið hefði
verið að veita 3 milljónum króna til
þess að endurreisa skíðalyftu Sigl-
firðinga sem eyðilagðist í snjóflóði
síðast liðinn vetur. Birgir ísleifur
Gunnarsson, menntamálaráðherra,
flutti Siglfirðingum kveðju forsæti-
ráðherra, Þorsteins Pálssonar, sem
ekki komst til afmælisins vegna opin-
berrar heimsóknar til Bandaríkjanna.
Menntamálaráðherra varaði í ræðu
sinni við því að alltaf væri hætta á
Blásarakvartett Siglufjarðar lék við hátíðarmessu í Hvanneyrarskál.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, flytur hátíðarræðu sína í Si-
glufjarðarkirkju.
Sr. Vigfús Þór Árnason flytur stólræðu við hátíðarmessu í Hvanneyr-
arskál.
undanhaldi ef ekki væri spyrnt við
fótum. Ræddi hann í þessu sambandi
um skólamál á Siglufirði og sagði
að skipað hefði verið í nefnd til að
athuga hvort hægt væri að setja á
fót framhaldsnám á fiskvinnslubraut
á staðnum. Slíkt myndi leiða til auk-
innar uppbyggingar í bænum og að
sjalfsögðu vera til hagsbóta fyrir alla
Siglfirðinga.
Aðrir ræðumenn á hátíðarsam-
komunni voru Páll Pétursson, 1.
þingmaður Norðurlands vestra,
Heiðar Ástvaldsson, formaður Sigl-
firðingafélagsins í Reykjavík og ná-
grenni, og Isak J. Ólafsson, bæjar-
stjóri á Siglufirði. I máli Isaks kom
fram að á þessu afmælisári stæði
bærinn á tímamótum. Mikið átak
hefði verið gert í umhverfisvernd og
fegrun bæjarins og atvinna næg.
Bæjarfélagið hefði náð sér að fullu
„Afmæli sem þetta
er tengiliður for-
tíðar við framtíð“
-segir Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands
„Þetta var góður dagur,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, um heimsókn sína til Siglufjarðar á fyrsta degi afmælisvi-
kunnar. „Það er fátt skemmtilegra en að fara út á land og hitta
fólkið sem býr á landsbyggðinni. Það er svo margt minnisvert úr
förinni, allir voru glaðir, með spaugsyrði á vörum og þessi sérstaka
birta yfir fólkinu."
hinu góða að forsetinn taki sem
mestan þátt í að tengja okkur sam-
an sem föstustum böndum, ekki
síst fyrir minníngar barnanna sem
eru að alast upp og eiga að taka
við landinu," sagði Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, að lok-
um. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, heilsar siglfirskum börnum eftir hátíðarsamkomu í Siglu-
fjarðarkirkju.
„Afmæli sem þetta er tengiliður
fortíðar við framtíð. Þá er staldrað
við og rifjað upp, einkum það sem
frægt er. Margir eiga góðar og
skemmtilegar minningar tengdar
Siglufirði og á hátíðisdegi sem
þessum styrkist. kærleikurinn til
átthagana. Við íslendingar þurfum
að standa vel saman og það er af