Morgunblaðið - 09.12.1989, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989
Gabriele
100
Rifrvélar
í úrvcali
Verð frá kr. 17.900,-stgr
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
HITASTILLT
MORATERM blöndunar-
tæki með sjálfvirkri hita-
stillingu og öryggis-
hnapp, sem takmarkar
hitastig við 38 C.
Mora sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í byggingavöruverslunum.
nneiriánægja^
Revolit
Revolit eldhúsáhöldin eru
sterk, stílhrein og um-
fram allt, endingargóð.
Láttu plastvörurnar frá
Revolit létta þér heimilis-
störfin.
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
BURSTAGERÐINf
SMIÐSBÚÐ 10, GARÐABÆ
SÍMI41630 & 41930
4
Guðsþjónustur í Reykjavikur-
prófastsdæmi:
ÆSKR: Guðsþjónústa á vegum
Hjálparstofnunar kirkjunnar verður
í Langholtskirkju sunnudag kl. 11.
Kór Æskulýðssambands kirkjunn-
ar í Reykjavíkurprófastsdæmi
syngur söngva frá Suður-Afríku.
Forsöngvarar Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Egill Ólafsson. Prestur
sr. Þórhallur Heimisson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Gideonfélagar kynna starf sitt
í messunni. Guðsþjónusta í Safn-
kirkjunni í Árbæ kl. 16. Sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson messar. Kirkju-
kór Árbæjarsóknar syngur undir
stjórn Jóns Mýrdal organista. —
Aðventusamkoma í Árbæjarkirkju
kl. 20.30. Ræðumaður kvöldsins:
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra. Flautuleikur Camilla
Söderberg og Snorri Örn Snorra-
son, Skagfirska söngsveitin,
Barnakór Árbæjarskóla og Kirkju-
kór Árbæjarsóknar syngja. Mið-
vikudag: Fyrirbænastund kl. 16.30.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Sr. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14, altar-
isganga. Prédikun flytur kínversk-
bandarísk kona frá Hawaii, Ada
Lum, starfsmaður alþjóðlegu
kristilegu stúdentasamtakanna-
sem dvelur hér á landi á vegum
kristilegu skólahreyfingarinnar.
Organisti Daníel Jónasson. Bæna-
guðsþjónusta þriðjudag kl. 18.30,
altarisganga. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11, Guðrún Ebba Ólafsdóttir,
sr. Pálmi Matthíasson. Guðsþjón-
usta kl. 14. Einsöngur Ingveldur
Ólafsdóttir. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Sr. Pálmi Matt-
híasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: í dag, laugardag:
Barnasamkoma kl. 10.30. Egill
Hallgrímsson. Sunnudag: kl. 11.
messa með altarisgöngu. Sr. Jón
Kr. ísfeld prédikar. Kirkjukaffi
Bílddælinga á Hótel Borg eftir
messu. Sr. Jakob Ágúst Hjálmars-
son. — Kl. 14. Messa. KórTónlist-
arskólans í Reykjavík syngur. Sr.
Hjalti Guðmundsson. Daglegar
kvöldbænireru íkirkjunni kl. 17.15.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl.
14. Sr. Stefán Lárusson. Organisti
Kjartan Ólafsson. Félag fyrrver-
andi sóknarpresta.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónsta kl. 11 í umsjón Ragn-
heiðar Sverrisdóttur. Guðsþjón-
usta kl. 14, prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Einsöngur Ragnheiður
Guðmundsdóttir. Organisti Guðný
M. Magnúsdóttir. Stúdentar út-
skrifaðir frá MR 1955 sérstaklega
boðnir velkomnir. Nk. miðviku-
dagskvöld er guðsþjónusta kl. 20.
Prestur sr. Hreinn Hjartarson.
Tónlist annast Þorvaldur Halldórs-
son og félagar. Sóknarprestar.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Barnamessa kl. 11 í Félagsmið-
stöðinni Fjörgyn við Foldaskóla.
Sunnudagspóstur — söngvar. Að-
stoðarfólk Guðrún, Valgerður og
Hjörtutr Skólabíll fer frá Hamra-
hverfi kl. 10.45. Aðventuhátíð kl.
20.30 í Félagsmiðstöðinni. Hátíð-
arræðu flytur biskup íslands herra
Ólafur Skúlason. Einsöngur Signý
Sæmundsdóttir. Kór Grafarvogs-
sóknar syngur undir stjórn Sigríðar
Jónsdóttur organista. Fermingar-
börn flytja helgileik og börn úr
Foldaskóla flytja Lúsíuleik. Að-
ventukaffi. Sr. Vigfús Þór Árnason.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl.
11. Eldri börnin uppi og yngri börn-
in niðri. Guðsþjónusta kl. 14. Fyrir-
bænir eftir messu. Laugardag:
Bænastund og biblíulestur kl. 10.
Prestarnir.
Guðspjall dagsins:
Lúk. 21.:
Teikn á sólu
og tungli.
HALLGRÍMSKIRKJA: í dag laugar-
dag: Samvera fermingarbarna kl.
10. Sunnudag: Messa og barna-
samkoma kl. 11. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Matur eftir messu.
Kvöldmessa með altarisgöngu kl.
17. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þeir sem vilja bílfar hringi í Hallgr-
ímskirkju í síma 10745 eða
621475. Þriðjudag 12. des. Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beð-
ið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa
kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson.
Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Kirkjubíllinn fer um Hlíðarnar fyrir
og eftir barnaguðsþjónustuna.
Hámessa kl. 14. Sr. Arngrímur
Jónsson. Aðventutónleikar kl. 21.
Kolbeinn Bjarnason og Robyn Koh
leika á flautu og sembal. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkjunni
á miðvikudögum kl. 18. Prestarnir.
HJALLAPRESTAKALL: Messusal-
ur Hjallasóknar Digranesskóla.
Föndurstund kl. 10.30. Barna-
messa kl. 11. Almenn guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Fjöl-
skylduguðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11,'Litli kór Kársnesskóla
syngur undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur. Aðventukvöld í
Kópavogskirkju kl. 20.30. Hug-
vekju flytur Signý Pálsdóttir leik-
húsritari, Ragnhildur Ófeigsdóttir
flytur frumsamin trúarljóð. Fjöl-
breytt tónlist. Veitingar í safnaðar-
heimilinu í lok samkomunnar. Sr.
Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Útvarpsmessa kl.
11 á vegum Hjálparstofnunar kirkj-
unnar í samvinnu við Langholts-
söfnuð. Fjölskylduguðsþjónusta kl.
14. Léttir söngvar. Sr. Þórhallur
Heimisson.
LAUGARNESKIRKJA: í dag, laug-
ardag: Guðsþjónusta í Hátúni 10B,
9. hæð, kl. 11. Sunnudag: Guðs-
þjónusta kl. 11. Börn úr barna-
starfi kirkjunnar syngja. Lárus
Sveinsson leikur einleik á trompet.
Barnastarf á sama tíma. Kl. 17
hefst tónlistarvika Laugarneskirkju
með tónleikum kórs Laugarnes-
kirkju undir stjórn Ann Toril Lind-
stad. Undirleik annast hljóðfæra-
leikarar úr Sinfóníuhljómsveit ís-
lands. Fjórir einsöngvarar syngja
með kórnum. Biskup íslands herra
Ólafur Skúlason setur tónlistarvik-
una. HádegistónleÍKar alla vikuna
kl. 12. Þriðjudag 12. des.: Helgi-
stund kl. 22. Fimmtudag 14. des.
Kyrrðarstund í hádeginu kl. 12.
Orgelleikur, altarisganga og fyrir-
bænir. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Munið kirkjubílinn. Messa kl.
14. Sr. Ólafur Jóhannsson. Orgel-
og kórstjórn Reynir Jónasson. Mið-
vikudag: Fyrirbænamessa kl.
18.20, sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson. Leikið verður á orgel í
kirkjunni frá kl. 17.45.
SEUAKIRKJA: Kirkjudagur Selja-
kirkju sunnudag 10. des. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Eiríkur Pálsson
leikur á trompet. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Kirkjukórinn syngur.
Aðventukvöld kl. 20.30. Ræðu-
maður Áslaug Friðriksdóttir fv.
skólastjóri. Básúnukvartett leikur
aðventulög undir stjórn Odds
Björnssonar. Helgileikur í umsjón
Æskulýðsfélagsins. Hugleiðing,
Þröstur Einarsson formaður sókn-
arnefndar. Kaffisala að loknu að-
ventukvöldinu. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Organisti
Gyða Halldórsdóttir. Prestur Sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Börn úr Tónlistarskólanum koma í
heimsókn. Barnastarf á sama tíma i
í umsjón Öddu Steinu, Sigríðar og
Hannesar. Mánudag: Fyrirbæna-
stund í kirkjunni kl. 17.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Aðventu-
hátíð kl. 20.30. Ræðumaður
kvöldsins Baldur Sveinsson kenn-
ari. Kirkjukórinn syngur, ritningar-
lestrar, bænir. Kertin tendruð.
Léttar veitingar í Kirkjubæ á eftir.
Safnaðarprestur.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 11.00 (athugið
tímann). Einsöngur Guðlaugur
Tryggvi Karlsson. Tónleikar kórs
Kennaraháskóla íslands kl. 14.30.
Helgistund með Skírn kl. 17.00. -
Leikið á orgelið frá kl. 16.40. Mið-
vikudagur kl. 7.30 morgunandakt.
Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Har-
aldsson. J
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fílad-
elfía: Almenn guðsþjónusta kl. 20.
KRISTSKIRKJA Landakoti: Lág-
messa kl. 8.30. Stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18 nema á laugardög-
um, þá kl. 14. Á laugardögum er!
ensk messa kl. 20.
MEÐFERÐ
JÓLABLÓMANNA
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
151. þáttur
Að prýða vistarverur blóma-
skreytingum um jól og gefa lifandi
blóm er löngu orðin algeng venja.
Þörf fyrir blóm er ætíð fyrir hendi
og á árlegum stórhátíðum nær þessi
háttur jafnan hámarki. Margir eru
vanafastir með val á jólablómum,
enda hefur það leitt til þess að viss-
ar tegundir eru þá öðrum fremur í
uppáhaldi. Ilmandi hýasintur á lauk
í laglegri skál með mosa, greni-
sprotum, könglum og öðru skrauti
eru mjög eftirsóttar og sennilega
finnst flestum mest til siíkra jóla-
skreytinga koma. Um jól er einnig
um það að ræða að njóta afskorinna
blóma í fallegum vasa. Margir halda
sig þá við túlípana, riddarastjörnur
eða hátíðarliljur. Ég tek t.d. lit-
skæra túlípana fram yfir önnur
blóm. Kannski er það vegna þess
að þá eru fyrstu túlípanar vetrarins
rétt að byija að sjást. Á þessum
tíma eru þeir hvorki háir í lofti né
blómstórir, en hvort tveggja tekur
skjótum breytingum þegar þeir
koma í stofuyl. Eftir 1-2 daga eru
bæði blóm og blöð orðin fyrirferðar-
mikil. Afskorin blóm lifa því aðeins
vel og lengi að þeim sé sýnd nær-
gætni og umhyggja, en allt of mörg-
um hættir til að hugsa lítið út í þau
atriði. Varðandi þetta þykir því rétt
að draga fram eftirfarandi minnis-
atriði:
1. Mikil ogjöfn hlýja allan sólar-
hringinn gerir ætíð afskorin blóm
og blómaskreytingar skammlífar.
Geymið því ævinlega blómin á svöl-
um stað á næturnar sé unnt að
koma því við. Kjörhiti er 4-5° fyrir
flest algeng blóm.
2. Fylgjast þarf l-2svar á dag
með vatnsþörf blóma, en vatns-
eyðslan er oft ótrúlega mikil í hlýj-
um húsakynnum. Bætið vatni í ílát-
in eftir þörfum ef verið er með
blómafæðu í vatninu. Að öðrum
kosti skyldi vatnið endurnýjað
alveg daglega, ella fúlnar það fijótt
og blómstilkarnir stíflast. Forðist
að hafa mjög mikið vatn í blómavös-
um sé verið með laukblóm. Helst
aðeins 5-6 cm.
3. Gætið þess að láta blóm ekki
standa þar sem dragsúgs eða hita-
streymis kann að gæta. Reykjar-
stybbu þola þau einnig illa. Sama
gildir um nærveru ávaxta.
4. Haldið hyasintulaukum í
skreytingum jafnrökum án þess þó
að þeir standi að staðaldri í vatni
því þá visna blómin fljótt. Geymíð
hyasintur einnig í svala um nætur.
5. Notið ætíð yljað vatn. Þetta
á ekki síst við um öll jólablóm sem
standa í pottu'm á víð og dreif í
vistarverunum.
Gleðileg jól!
Óli Valur Hansson
"V: