Morgunblaðið - 09.12.1989, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLABIÐ l^AUGARDAGUR ,9, DESEMBER 1989
Atvinna óskast
Korra með tungumálakunnáttu, þýsku og
ensku, óskar eftir skrifstofustarfi eða síma-
vörslu. Hef reynslu í vélritun, fjölritun og
„dictaphone".
Tilboð sendist augl.deild Mbl. merkt: „D - 6213“.
Hjúkrunarfræðingar
athugið!
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka, Ólafs-
firði, auglýsir eftir hjukrunarforstjóra.
Upplýsingar um starfið og starfskjör (hús-
næði og fríðindi), veita forstöðumaður í síma
96-62480 og formaður stjórnar í síma
96-62151.
STJÓSEFSSPfTAUaa
HAFNARFIRÐI
St. Jósefsspítali Hafnarfirði
Lausar stöður
1. Staða hjúkrunarfræðings á skurðdeiid.
Um er að ræða hlutastarf, en fullt starf
kemur til greina. Sérmenntun áskilin.
2. Staða hjúkrunarfræðings á lyflækninga-
deild. Um er að ræða hlutastarf, en fullt
starf kemur til greina.
3. Staða röntgentæknis á Röntgendeild.
Um er að ræða hlutastarf, en fullt starf
kemur til greina.
Stöður þessar eru lausar um áramót 1990
eða eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar
veitir hjúkrunarforstjóri, Gunnhildur Sigurð-
ardóttir, í síma 54325.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Hjúkrunarforstjóri
Staða hjúkrunarforstjóra við St. Jósefsspítala,
Landakoti er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 1990.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1, apríl
1990. Hjúkrunarforstjóri hefur yfirumsjón með
og ber faglega ábyrgð á allri hjúkrun á sjúkra-
húsinu.
St. Jósefsspítali, Landakoti er 200 rúma deilda-
sjúkrahús og kennslustofnun, sem veitir sér-
fræðiþjónustu á augnlækninga-, handlækn-
inga- og lyflækningadeildum, gjörgæsludeild,
skurðstofu- og svæfingadeild, móttökudeild,
barnadeild, öldrunardeild, stoðdeildum og
rannsóknadeildum.
Umsækjandi skal vera hjúkrunarfræðingur
með framhaldsnám í stjórnun eða hafa mast-
ergráðu í stjórnun, hafa minnst 3 ára starfs-
reynslu við stjórnunarstörf og 2 ára starfs-
reynslu við almenn hjúkrunarstörf.
Umsóknir skulu sendast til framkvæmdastjóra
spítalans, Loga Guðbrandssonar.
EHSSíjiS
gfessa
ST. JÓSEFSSPÍTALI, landakoti
Hjúkrunarfræðingar
Hafið þið áhuga á að kynnast fjölbreytni í
hjúkrun lyflækningasjúklinga í heimilislegu
umhverfi og vinna með fólki, sem hefur fag-
lega þróun að leiðarljósi?
Okkur vantar áhugasama hjúkrunarfræðinga
á lyflækningadeild, ganga 2-A (13 rúm) og
1-A (30 rúm, skipt í tvær einingar). Við bjóð-
um uppá sveigjanlegan vinnutíma og starfs-
aðlögun. Hjúkrunarfræðingar á deildum eiga
fulltrúa í sérgreinahópum spítalans, sem eru
ráðgefandi fyrir sjúklinga með hjarta- og
æðasjúkdóma, smitsjúkdóma, krabbamein
og fleira.
Umsóknarfrestur er til 1. janúar 1990.
Nánari upplýsingar gefa Birna Bergsdóttir,
deildarstjóri 2-A, sími 604318, Ingibjörg Ein-
arsdóttir, deildarstjóri 1-A, sími 604312, og
Rakel Valdimarsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, sími 604300.
4. desember 1989.
íslenska járnblendifélagið hf.
Icelandic Alloys Ltd.
Grundartangi - Skilmannahreppur
301 Akranes lceland
Nýtt símanúmer
Frá og með 10. desember 1989 verður síma-
númer íslenska járnblendifélagsins hf.,
Grundartanga 93-20200.
Ferðamálaskóli MK
Fjórða starfsár hefst með námskeiði í
farseðlaútgáfu 11. janúar nk. (10 kvöld -
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.30.)
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Upplýsingar og innritun í símum 43861 og
74309.
Menntaskólinn í Kópavogi.
YMISLEGT
▲\\
Meistarafélag
húsasmiða
Stjórn meistarafélags húsasmiða
auglýsir eftir umsóknum úr styrktarsjóði fé-
lagsins. Vinsamlega sendið umsóknir fyrir
15. desember.
Allar frekari upplýsingar á skrifstofunni, Skip-
holti 70, eða í síma 36977.
Stjórnin.
Verktakafyrirtæki
-tapsfrádráttur
Óska eftir að kaupa hlutafélag í vélaleigu eða
verktakarekstri, sem er hætt starfsemi en á
ónýttan tapsfrádrátt.
Tilboð óskast sent auglýsingadeild Mbl.
merkt: „M - 4554“ fyrir fimmtudaginn 14.
desember nk.
Vísnabók
Fyrir nokkru lánaði ég gamla vísnabók konu,
sem ég man ekki hvað heitir.
Ef þú lest þetta, kona góð, viltu þá hafa
samband við mig í síma 22871.
María Ásmundsdóttir,
Víðimel 19.
Jóla-framsóknarvist
Framsóknarvist verður spil-
uð sunnudaginn 10. desemb-
er kl. 14.00 í Danshöllinni
(Þórscafé).
í tilefni jólamánaðarins verða
veitt glæsileg verðlaun karla
og kvenna (jólamatarkörfur).
Aðgangseyrir kr. 400,-
Kaffiveitingar innifaldar.
Haraldur Ólafsson lektor
mun flytja stutt ávarp í kaffi-
hléi.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Verkamannafélagið Hlíf
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 11.
desember 1989 kl. 20.30 í húsi félagsins,
Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði.
Fundarefni:
1. Kjaramál.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
SJÁLFSTfEÐISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Ungt sjálfstæðisfólk
í Reykjavík -
herðum sóknina
Mánudaginn 11. desember heldur Heimd-
allur opinn sjórnarfund í Valhöll. Gestur
fundarins verður Davíð Stefánsson formað-
ur SUS og mun hann ræða stjórnmála-
ástandið, störf SUS og samstarf SUS og
félaganna fyrir sveitastjórnarkosningarnar.
Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið.
SUS og Heimdallur.