Morgunblaðið - 09.12.1989, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1989
53
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Hjálpræðissam-
koma kl. 20.30. Flokkstjórarnirtala
og stjórna.
NÝJA postulukirkjan: Háaleitis-
braut 56-58. Messa kl. 11
MOSFELLSPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu kl.
11. Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
Guðný Hallgrímsdóttir prédikar.
Sr. Birgir Ásgeirsson.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Þröstur Eiríksson.
Barnasamkoma í Krikjuhvoli kl. 13.
Sr. Bragi Friðriksson.
BESSASTAÐASÓKN: Barnasam-
koma í Álftanesskóla í dag, laugar-
dag kl. 11.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Aðventuhátíð kl.
20.30. Fjölbreytt dagskrá í tali og
tónum. Kennarar og nemendur
Tónlistarskólans ásamt kór kirkj-
unnar flytja dagskrá. Organisti
Kristjana Þórdís Asgeirsdóttir. Sr.
Einar Eyjólfsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Prestur sr. Ægir Sigurgeirsson.
Tónleikar kl. 17. Sigurður Kr. Sig-
urðsson og Kjartan Sigurjónsson
flytja sönglög og orgelverk. Sr.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Að-
ventusamkoma kl. 17. Barnakór
syngur. Organisti Frank Herlufsen.
I dag; laugardag, er barnasam-
koma í Stóru-Vogaskóla kl. 11.
Sóknarprestur.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Að-
ventustund í safnaðarheimilinu kl.
14. Barnakór og kirkjukórinn
syngja aðventu- og jólalög undir
stjórn organistans, Gróu Hreins-
dóttur, og Steinars Guðmunds-
sonar. Jólakaffi eftir samveru-
stundina. Sr. Þorvaldur Karl Helga-
son.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarf kl. 11. Aðventutónleik-
ar kl. 16. Barnakór, kór fermingar-
barna og kirkjukórinn syngja að-
ventu- og jólalög undir stjórn Gróu
Hreinsdóttur organista og hljóð-
færaleikarar aðstoða. Bjöllukórinn
úr Garðinum leikur nokkur lög. Sr.
Þorvaldur Karl Helgason.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Vænst að foreldrar
komi með börnum sínum. Munið
skólabílinn. Aðventutónleikar kl.
20.30. Þessir kórar taka þátt í fjöl-
breyttri dagskrá: Suðurnesjakór-
inn, blandaður kór Karlakórs
Keflavíkur og kór Keflavíkurkirkju.
Stjórnendur Sigvaldi Kaldalóns og
Örn Falkner. Einsöngvarar Guð-
mundur Ólafsson, María Guð-
mundsdóttir, Sverrir Guðmunds-
son og Steinn Erlingsson. Hallbera
Pálsdóttir les jólasögu. Sóknar-
prestur.
KAÞÓLSKA kapellan Keflavík,
Hafnargötu 71: Messað á sunnu-
dögum kl. 16.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Aðventusam-
koma kl. 20.30. Kórar syngja.
Sýndur helgileikur. Sóknarprestur
flytur hugvekju. Bænasamkomur
alla þriðjudaga kl. 20.30. Sr. Örn
Bárður Jónsson.
KIRKJUVOGSKIRKJA: Messa kl.
14. Altarisganga. Börn sýna helgi-
leik. Tekinn verður í notkun han-
dofinn aðventu- og föstuhökull,
gefinn kirkjunni í minningu sr. Jóns
Árna Sigurðssonar fyrrv. sóknar-
prests. Messukaffi í skólanum eft-
ir messu. Sr. Örn Bárður Jónsson.
HVALSNESKIRKJA: Sunnudaga-
skóli í grunnskólanum í Sandgerði
kl. 11, hinn síðasti fyrir jól. Fjallað
um jólin í söng, mynd- og talmáli.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 14, hinn síðasti fyrir jól.
Fjallað um jólin í söng, mynd- og
talmáli. Aðventukvöld kl. 20.30.
Þorvaldur Halldórsson söngvari
ásamt öðru tónlistarfólki annast
dagskrána að mestu leyti. Að-
ventusaga o.fl. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Sóknar-
prestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl.
14. Sóknarprestur.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta í Borgarneskirkju kl.
10. Aðventusamkoma með fjöl-
breyttu efni í Borgarneskirkju kl.
17. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli
yngstu barnanna í safnaðarheimil-
inu Vinaminni í dag, laugardag, kl.
13. Sunnudag: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11 í kirkjunni. Aðventu-
hátíð hefst í kirkjunni kl. 20.30 með
helgistund, en síðan er fjölbreytt
dagskrá flutt í safnaðarheimilinu.
Fyrirbænaguðsþjónusta mánudag
kl. 18.30. Organisti og söngstjóri
Einar Örn Einarsson. Sr. Björn
Jónsson.
■ JÓHANNES Páll II páfí kom
hingað til lands snemma í júní
síðastliðnum, eins og mönnum er
enn í fersku minni. Nærri má geta
að páfi hefur ekki lagt leioð sína
svo langt norður á bóginn til þess
eins að sýna sig og sjá aðra, heldur
átti hann erindi við fólkið, flutti því
boðskap og sá boðskapur hans til
íslendinga er viðfangsefni séra
Hjalta Þorkelssonar í erindi sem
hann flytur á fundi Félags kaþól-
skra leikmanna mánudaginn 11.
desember kl. 20.30 í Safhaðar-
heimili kaþólskra, Hávallagötu
16. Allir eru velkomnir að hlýða á
erindi séra Hjalta.
UAÐALFUNDUR Hins íslenskn
bókmenntafélags verður haldinn í
Iðnaðarmannahúsinu við Tjörnina
í dag, 9. desember, kl. 14. Að loknum
venjulegum aðalafundarstörfum flyt-
ur Ólafur Davíðsson hagfræðingur,
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
iðnrekenda, erindi sem nefnist Sam-
eing Evrópu og framtíð þjóðríkja.
í erindi sínu gerir fyrirlesari grein
fyrir því hvað Evrópubandalagið er
og þó öllu heldur hvað það er ekki.
Hann leitast við að svara því hvað
gerist næsta áratug á þeim vett-
vangi. Síðan víkur hann að hlutverki
Evrópu í menningarmálum, þar á
meðal verkaskiptingu milli Evrópu-
ráðs og Evrópubandalags. Þá víkur
fýrirlesari að breytingum þeim sem
eru að verða í heiminum, einkum
áhrif tæknibyltingarinnar á þjóðríki
og þjóðmenningu, en þessari þróun
má ekki blanda saman við það sem
er að gerast í Evrópu innan Evrópu-
bandalagsins. Loks ræðir fyrirlesari
hvort líkur eru á fjölbreyttara menn-
ingarlífi með tilkomu Evrópubanda-
lagsins. Bendir margt til að svo
verði. Gagnkvæmur áhugi á menn-
ingu ólíkra þjóða Evrópu fer nú vax-
andi og það örvar menningarstarf.
■ ÞINGEYRINGAR eru lystugir
á list og jafnt þótt stutt sé á milli
listviðburða. Miðvikudaginn 15.
nóvember síðastliðinn heimsóttu
séra Gunnar Björnsson og frú
grunnskólann á Þingeyri og lék
Gunnar á selló fyrir nemendur og
kennara þeim til óblandinnar
ánægju. Síðar settist hann við píanó
skólans og allir tóku lagið. Næsta
dag fóru þau, prestshjónin í Holti,
vestur í Arnarfjörð og sóttu skóla-
böm í Auðkúluhreppi heim. Laug-
ardaginn 18. nóvember síðastliðinn
voru nemendur Tónlistarskólans
með samleik í félagsheimilinu og
fluttu ýmis tónverk á flygil. Líka
léku þau á blokkflautu og gítar.
Húsfyllir var og að loknum hljóm-
leikum var boðið upp á kaffi og
hlaðborð. Nemendur skólans færðu
skólastjóranum, Guðbjörgu Leifs-
dóttur, 34 rauðar rósir frá verð-
andi barnfóstmm. Fullorðnu fólki
hefur fjölgað í tónlistarskólanum í
vetur. L/jks hefur aðstaðan til tón-
listarkennslu verið löguð í hólf og
gólf svo sómi er að.
- Hulda
Þ.ÞDRCBlMSSON &C0
mWABMA
PLAST
ÁRMÚLA 1 6 OG 29, S. 38640
Björnsson
SANDGREIFARNIR eftir Björn Th. Björnsson. Heillandi og
skemmtileg bók um uppvaxtarár höfundar í Vestmannaeyjum. Lesendur þekkja
bragðmikinn stíl Björns Th. Björnssonar af verkum hans um listfræðileg efni og
sögulegar skáldsögur. í þessari bók nýtur orðsnilld Björns sín frá nýrri og óvæntri
hlið, aðdáendum hans til ósvikinnar ánægju.
LANDHELGISMÁUÐ - það sem gerðist bak við tjöldin.
Lúðvík Jósepsson var manna lengst í eldlínu landhelgisbaráttunnar. í þessari bók
rekur hann sögu landhelgismálsins í 40 ár og segir frá þeim átökum sem þar urðu
á bak við tjöldin heimafyrir og erlendis. Stórfróðleg bók um lífshagsmunamál
þjóðarinnar skrifuð af einum baráttuglaðasta stjórnmálamanni hennar.
I og menmng
í PJÓÐBRAUT HEIMSBÓKMENNTA
Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240.